blaðið - 28.09.2005, Page 12
12 I VÍSZNDI
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Nýr GPS gervihnöttur á loft:
Nákvœmni GPS
kerfisins aukin
Stjörnufrœðingar deila:
Plánetur í vanda
Stjörnufræðingar deila nú
harkalega um það hvað beri að
skilgreina sem plánetu og hvað
ekki. Deilur þessar má rekja til
þess að fyrir einu og hálfu ári
fannst nýtt stjörnufyrirbæri
við jaðar sólkerfisins sem marg-
ir skilgreindu sem hina tíundu
plánetu og nefndu Sednu.
Stungið hefur verið uppá tveim-
ur mögulegum skilgreiningum
til að leysa þessa deilu og eru
þær nú ræddar í sérstakri nefnd
sem Alþjóðasamband stjarn-
fræðinga heldur utanum.
Tvær skilgreiningar
Skilgreiningarnar tvær eru þó það
ólíkar að litlar líkur eru taldar á
því að full sátt náist í þessu máli
á næstunni. Fyrri skilgreiningin
gengur út frá því að stærð fyrirbær-
is skilgreini hvort um plánetu sé að
ræða eða ekki. Yrði þessi aðferð fyr-
ir valinu mundu plánetum i sólkerf-
inu fjölga nokkuð þar sem nokkur
fyrirbæri í hinu svokallaða Kuiper
loftsteinabelti sem liggur við Plútó
yrði að endurskilgreina sem plánet-
ur. Gagnrýnendur benda á að slík
stærðarskilgreining sé ekki vísinda-
leg heldur byggi frekar á geðþótta-
ákvörðunum vísindamanna og sé
því ekki nothæf.
Plánetum fækkar
Seinni skilgreiningin byggir á því að
fyrirbæri sé skilgreint út frá stærð í
samhengi við nánasta umhverfi og
sporbaug þess. Samkvæmt þessari
hugmynd þarf pláneta að vera ríkj-
andi massi í sínu umhverfi og spor-
baugur þess ekki skera sporbauga
annarra pláneta. Kæmi þessi skil-
greining til með að verða samþykkt
mundi plánetum í sólkerfinu fækka
þar sem ekki væri lengur hægt að
skilgreina Plútó sem slíka. Ástæð-
an er sú að sporbaugur hennar sker
sporbaug Neptúnusar. Einstaka
loftsteina í lofsteinabeltinu handan
Mars yrði heldur ekki hægt að skil-
greina sem plánetur þar sem enginn
þeirra telst vera ríkjandi massi.
Róttæk hugmynd
Þriðja skilgreiningin hefur einnig
verið rædd en hún er mun róttækari
en hinar tvær og endurskilgreinir
hugtakið pláneta alveg frá grunni.
Hún gengur út frá því að plánetur
verði skilgreindar útfrá gerð, stað-
setningu og samsetningu. Þannig
yrði t.d. jörðin skilgreind sem jarðar-
pláneta og Plútó sem söguleg pláneta.
Þeir sem aðhyllast þessa skilgrein-
ingu telja að með henni geti stjörnu-
fræðingar sinnt sínu hlutverki mun
betur, þ.e. í því að skilgreina gerð
pláneta í stað þess að vera að rífast
um hvað sé pláneta og hvað ekki.
hoskuldur@vbl.is
Fyrsta skrefið í uppsetningu
nýs GPS staðsetningarbúnaðar
var tekið sl. sunnudag þegar
bandaríski flugherinn skaut
upp gervihnetti af gerðinni
GPS IIR. Gervihnötturinn, sem
er um 75 milljón dollara virði,
er sá fyrsta af þremur sem skot-
ið verður upp á þessu ári. Með
hjálp innbyggðra eldflauga
mun gervihnötturinn svo á
næstum dögum staðsetja sig á
sporbaug í 18 þúsund kílómetra
hæð þar sem hann mun dvelja
a.m.k. næstu tíu árin.
Hernaðarlegur tilgangur
Núverandi GPS staðsetningarkerfi
er kerfi 24 gervihnatta sem stað-
settir eru á sporbaug um jörðina
og þróað var af bandaríkjaher á 8.
og 9. áratug síðustu aldar en lokið
var við endanlega uppsetningu ár-
ið 1993. Hlutverk kerfisins var fyrst
og fremst hernaðarlegt í upphafi en
undanfarin áratug hefur almenn-
ingi verið veittur aðgangur að því.
Hið nýja kerfi mun áfram þjóna
hernaðarlegum tilgangi en almenn-
ingur mun einnig njóta góðs af því.
Með tilkomu nýja kerfisins mun
nákvæmni staðsetningar og öryggi
aukast enn frekar en einnig gera ný
loftnet utanaðkomandi aðilum erf-
itt fyrir að trufla sendingar frá gervi-
hnöttunum.
GPSIIR Gervihnötturinn
Samkeppni
Annað sem skilur á milli nýja kerfis-
ins og hins gamla er auka tíðni sem
sérstaklega er hönnuð fyrir almenn-
ing. Samkvæmt Allan Ballenger, tals-
manni bandaríska flughersins, er
þetta afar stórt skref. „Herinn hefur
notast við tvær tíðnir frá því að GPS
kerfið leit fyrst dagsins ljós. í fyrsta
skipti er bætt við auka tíðni sem
aðeins er ætluð almenningi,“ segir
Allan. Á næsta ári er svo áætlað að
skjóta á loft 12 nýjum gervihnöttum
sem munu bæta kerfið enn frekar.
Önnur lönd hafa einnig verið að
þróa sín staðsetningarkerfi og hefur
t.d. Evrópusambandið hafið þróun
á GPS kerfi sem aðeins á að nota í
friðsamlegum tilgangi. Áætlað er
að það kerfi komist i gagnið á næsta
ári.
VOLVOS40 VOLVOV50 VOLVO S60 VOLVOV70 VOLVO S80 VOLVO XC70 AWD VOLVO XC90 AWD
VELDU BÍL ÁRSINS VOLVO S40
Bandalag íslenskra bílablaðamanna valdi Volvo S40 bíl
ársins fyrir 2004. Skoðaðu bíl ársins og þú upplifir hrífandi
hönnun Volvo S40. Kynntu þér frábæra aksturseiginleika,
vélarnar og aðra yfirburða tækni. Þreifaðu á yfirborði inn-
réttinganna, hallaðu þér aftur í sætinu og reyndu sigurveg-
arann Volvo S40. Lifðu í lúxus. Veldu Volvo S40.
Heimsbíll ársins í fyrsta sinn í sögunni
Volvo S40 var tilnefndur sem „Heimsbíl ársins 2005“ og
bætist tilnefningin við flóru viðurkenninga Volvo S40 en
Volvo S40 er bíll ársins á íslandi. Euro NCAP öryggisstofn-
unin verðlaunaði Volvo S40 með bestu einkunn eða 5
stjörnum, sama gerði US NCAP. Breska bílablaðið Auto
Express metur Volvo S40 sem besta bílinn I sínum flokki
lúxusbíla; betri en BMW 3 series og Jaguar X-type. Volvo
S40 er besti kosturinn að mati umferðaröryggisstofnunar
Bandaríkjanna IIHS og sænska tryggingarfélagið Folksam
verðlaunar Volvo S40 með bestu háls- og bakhnykksvörn-
ina. Öryggi er lúxus. Veldu Volvo!
Draumabíll bílablaðamannsins
Bíll ársins Volvo S40 er efstur á óskalista bílablaðamanns
Morgunblaðsins. Hann segir: „Volvo hefur nefnilega tekist
það sem margir hafa áður reynt og flestir án árangurs; að
smíða gæðabíl án þess að slá nokkuð af kröfunum en um
leið að stilla verðinu í hóf“.
Komdu í Brimborg. Spurðu söluráðgjafa Volvo á íslandi um
verð og gæði. Við gerum þér gott tilboð um staðgreiðsluverð
fyrir gamla bílinn.
Finndu fegurðina sem býrígæðum einfaldleikans. Skoðaðu nýtt
stjórnborðið sem ekki átti að vera hægt að framieiða.
J? r V
*BÍLL-
ÁRSINS
, .20W. v
'“■whVf'
WORLD
cak or
THEYEAR
AWARDS
Volvo S40 bensín.
Veró frá 2.395.000 kr.*
Volvo S40 dísil.
Veró frá 2.695.000 kr.*
-I