blaðið - 28.09.2005, Qupperneq 14
14 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 blaöiö
blaðið==
Útgáfufélag: Árogdagurehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
EFTIR DAVÍÐ
í gær tók nýtt ráðuneyti til starfa fyrir lýðveldið. Um leið lauk þeim kafla
sögu þess, sem kenna má við Davíð Oddsson. Þó sá langi og farsæli fer-
ill einkennist af mesta uppgangstíma í sögu þjóðarinnar hafa þeir ekki
verið án átaka, eins og við er að búast þegar jafnviðamiklar þjóðfélags-
breytingar eiga sér stað. Um leið og aukið athafnafrelsi og friður á vinnu-
markaði hefur leitt af sér víðtækari hagsæld en áður hefur þekkst hér
á landi staldra margir við auðsöfnun á fárra hendur, landlæg átök í við-
skiptalífinu og nýjar átakalínur í stjórnmálum.
Davíð Oddsson bar gæfu til þess að leiða margvísleg álitamál til lykta
á þann hátt að flestir una við. En hitt var þó kannski ríkara í fari hans,
að skerpa á skoðanamun, að draga fram hin raunverulegu deilumál og
fá menn til þess að gera út um þau. Þetta var sjálfsagt ekki alltaf meðvit-
að, því lundarfar hans er með þeim hætti að menn skiptast mjög í tvö
horn til Davíðs. Það er ómögulegt að hafa ekki skoðun á honum og hana
ákveðna.
Að því leyti má segja að friðvænlegra kunni að vera á stjórnmálasvið-
inu, en það verður vísast leiðinlegra líka. Eftir snerrur síðastliðinna ára
kunna þó margir að fagna ró á þeim vettvangi. Um sinn.
Hins vegar má vel spyrja að því hvert sé erindi ríkisstjórnar Halldórs
Ásgrímssonar. Stjórnarliðar geta vísað í stjórnarsáttmálann og fundið
þar eitt og annað sér til dundurs, en við brotthvarf Davíðs úr rikisstjórn-
inni dofnar verulega yfir leiðarljósi hennar. Ráðherrarnir eru sjálfsagt
ágætir húsverðir en hverjar eru hugsjónir þeirra?
Það verkefni ríkisstjórnarinnar að finna sér stefnu er brýnt, því annars
ber hún dauðann í sér. Áður gat hún að miklu leyti reitt sig á ratvísi
forsætisráðherrans fyrrverandi. Hið sama á við um Geir H. Haarde,
sem á ærinn starfa fyrir höndum innan Sjálfstæðisflokksins af sömu
ástæðum. En hugsanlega þurfa stjórnarandstöðuflokkarnir að grípa til
nákvæmlega sömu aðgerða líka. Þeirra starf og stefna hefur nefnilega
ekki síður mótast af andstöðunni við Davíð en grundvallarhugsjónum
flokkanna. Að því leyti var vald hans sjálfsagt meira en nokkur hugði.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar. Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aóalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiója Morgunblaósins. Dreifing: Islandspóstur.
Auglýsingar . U u/
blaðiö
Vandaðir gjafapokar
í úrvali
Eingöngu sala til fyrirtækja.
Opiðfrá kl. 08.00-16.00.
Réttarhálsi 2-110 Rvk
Sfmi: 535-8500- Netfang: info@flora.is
#
GRÆNN
MARKAÐUR
f -EG SKíL ‘EKKí HtfERM rG
Stendur A W\, cti Petta
ER, 0UPÍP MiKLV /VIEiRA -púL
ÉFTiR AP BVfeJUÐU
fíV FLoKKA RU5Lií> ÁZi
fJoW'flAy rs0$
Fárviðrinu slotar
Undanfarnir dagar hafa verið
stormasamir og naprir. Á laugardag
hóf Baugur stórsókn á síðum Frétta-
blaðsins, en vart mátti draga aðra
ályktun en að Baugsmálið hefði orð-
ið til á samsærisfundum í reykfyllt-
um bakherbergjum. Hvað þar fór
fram skipti hins vegar minna máli
en hverjar söguhetjurnar voru og
svo var orðalagið óneitanlega nokk-
uð mergjað á stundum.
Þessi fréttaflutningur hélt svo
áfram á sunnudag þar sem sérstak-
lega var vegið að þeim Styrmi Gunn-
arssyni, ritstjóra Morgunblaðsins,
og Jóni Steinari Gunnlaugssyni,
hæstaréttardómara og fyrrverandi
lögmanni Jóns Geralds Sullenberg-
er. Þessar fréttir hefðu svo sem ver-
ið misgott forsíðuefni ef þær hefðu
verið réttar, en það kom brátt i ljós
að þær voru meingallaðar og rangar
í meginatriðum.
Fyrirfram gefin niðurstaða
Fréttablaðið byggði fréttir sínar - að
því er virðist - á tölvupósti Jónínu
Benediktsdóttur, pósti sem henni
hafði borist og pósti sem hún hafði
sent á drjúgu tímabili. I þeim bunka
er að finna allan hennar póst og
mun margt í honum varða Baug, en
annað ekki eins og gengur.
Fréttirnar bera þess hins vegar öll
merki að blaðamaðurinn, Sigríður
Dögg Auðunsdóttir, hafi gefið sér
niðurstöðuna fyrirfram og valið úr
þá pósta, sem hentuðu kenningunni
um Bláu höndina, en látið hina lig-
gja milli hluta.
Þessiafstaða kom enn frekar í ljós
vegna þeirra „frétta“ sem reyndust
hreinlega rangar. Með góðum vilja
má kenna um misskilningi, en þeg-
ar viðmælendur vildu ekki staðfesta
tiltekinn skilning hennar á einstök-
um flötum málsins, túlkaði hún það
eftir hentugleikum.
Þetta var skýrast í „fréttinni" um
gagnasendingar Jóns Steinars til
Styrmis, sem Fréttablaðið taldi vera
í heimildarleysi skjólstæðings hans.
Þar bar fyrirsögninni ekki almenni-
lega saman við meginmálið og stang-
aðist raunar á við aðra „frétt“ af mál-
inu á næstu siðu. Yfirlýsingar frá
Jónunum Steinari og Geraldi leiddu
svo í ljós að „fréttin“ var röng.
Andrés Magnússon
Sigríður Dögg var þó ekki sátt
við þær lyktir og telur að yfirlýsing
Jóns Geralds samræmist ekki viðtal-
inu við hann. Ég skora á alla að lesa
viðtalið, því það eru spurningar Sig-
ríðar Daggar, sem eru athyglisverð-
astar. Þær eru skólabókardæmi um
leiðandi viðtal þar sem blaðamaður-
inn vill ekki gefast upp fyrr en hann
fær „réttu“ svörin.
Vindurinn snýst
En það var forsíða DV, sem gerði úts-
lagið. Þar var blað brotið í íslenskri
fjölmiðlasögu með níðingslegri árás
á þau Styrmi og Jónínu. Sú árás átti
raunar ekki að koma fullkomlega á
óvart, því áður voru blaðamenn hjá
Fréttablaðinu farnir að hringja í vini
og kunningja til þess að lesa fyrir þá
safaríka bita úr pósthólfi Jónínu.
Með DV-forsíðunni gengu Baugs-
menn fram af þjóðinni. Það var nán-
ast eins og maður fyndi vindinn í
þjóðfélaginu snúast. Menn skynjuðu
það hvernig átti að breyta Islandi á
einni nóttu og þeir höfnuðu því nýja
íslandi, sem við blasti. í boði Baugs.
1 gær datt svo allt í dúnalogn
eftir fárviðrið. Áróðursmeistarar
Baugs áttuðu sig á því að þeir höfðu
einungis uppskorið fyrirlitningu al-
mennings á vinnubrögðunum, þó
skotspónar þeirra muni sjálfsagt
seint losna við allan aurinn, sem
þeir voru ausnir.
Og hvað svo? Staðan er alveg hin
sama og fyrr: Baugsmálið verður
útkljáð í réttarsölum þar sem það
hefur ávallt átt heima. En við erum
a.m.k. einu vísari: Nú vitum við til
hvers Baugsmenn hófu að safna fjöl-
miðlum.
Höfundur er blaðamaður.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Igegnum árin hefur fátt náð að slá Morg-
unblaðið út af laginu - blaðinu sem mitt
í öllum hraða nútímans nær ennþá að
halda þeim rólegheit-
arblæ sem einkenndi
fjölmiðla í byrjun
síðustu aldar. Á þessu
varð undantekning
síðastliðinn mánudag
þegar ritstjóri Mogg-
ans, Styrmir Gunnarsson, hélt fund með
starfsmönnum vegna aðkomu sinnar að hinu
margrædda Baugsmáli. Fundurinn stóð í tvo
tíma og endaði með lófaklappi starfsmanna.
Hinsvegar hefur varla verið kiappað fyrir útgáf-
unni daginn eftir, en Mogginn hefur sjaldan
verið þynnri en í gær. Líklega hefur meiri tími
farið f vangaveltur á göngum blaðsins í gær en
vinnu.
„ Um helgina breyttist Baugsmálið endanlega
isápuóperu. Með forsíðufréttDVum ástir
Jónínu og Styrmis, einkaspæjaranum sem
varsenduráJón Geraldog síðan innkomu
Arnþrúðar Karlsdóttur -sem stormaði upp
á sjónvarp með tölvupóstþar sem Jónína á að
heimta hvítan jeppa. I dag finnst manni þetta
bara vera endaleysa; leikritmeð persónum
sem haga sér óskiljan-
legailla,-skrifaðaf
höfundi sem er farinn
að missa tökin á efninu.
Allirleikendurmeð tölu
eru farnir að virka mjög
ósympatískir.lDallas
hélduallirmeðJRaf
þvl hann varsvo mikill skúrkur. En er hægtað
halda með einhverjum I svona sápu?"
Egill Helgason, V(si 27.9.2005
Kvennabyltingin helduráfram og nú hafa
þær lagt undir sig forsætisnefnd Alþing-
is. Sjálfstæðis-
flokkurinn kaus þangað
Drífu Hjartardóttur og
eru þá allt konur í nefndinni
fyrir utan Birgi Armanns-
son, Sjálfstæðisflokki, sem
var þar fyrir. Það mátti
misskilja fréttakonu Rikisútvarpsins þegar hún
sagði að hann væri eini kariinn í forsætisnefridinni
- svo vitað sé. Athygli vekur að Jóhanna Sigurð-
ardóttir tekur ekki við sem fyrsti varaforseti af
Guðmundi Áma Stefánssyni sendiherra held-
ur stökk Rannveig Guðmundsdóttir yfir hana.
Hún studdi Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í
formannskjörinu en Jóhanna studdi Össur. Spum-
ingin er hvort Ingibjörg sé byrjuð á hreinsunum
gegn stuðningsmönnum ofurbloggarans?