blaðið - 28.09.2005, Síða 35
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005
KVIKMYNDIR I 35
400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
5TÆRSTA KVIKMVNDAHÚS UNDSINS • HACATORGI • S. 530191» • www.haikolablo.ls
FRÁ FRAMÍBIPANITA "5HRÉK T &' 2"
m JTTHE 40 YEAR-OLD
VlRGIN
"SUMÁR DUFUR ÉTA BRAUÐMTLSNUR.,.
AÐRAR SKAPA SÖGUNfi"
m
KL6-8-10.30B.U6 STRÁKARNIROKKAR KL 10
KL 8-10.30 DEUCE BIGALOW: EUROPEAN GIGA10 KL 8-10.15
KL 4-6-8-10.10
KL 4-6
KL 3.50-6-8.15
KL 3.45-6-8.15-10.30 VALIANT KL6
AKUREYRI
THECAVE
VALIANT
CHARUE & THE CHOCOLATE FACTORY
SKYHIGH
STRÁKARNIR OKKAR
KL 8.15-10.30 8.1.16
KL6
KL 6-8.15-10.30
KL8.15
KL 10.30 B.1.14
KL 8.30-10.30 B.l. 14 THE 40 YEAR OLD VIRGIN KL8-10
KL 10.30 SKYHIGH KL 6
KL3.50 CHARUE & THE CHOCOLATE FACTORY KL8
THECAVE KL1(
SINGLAN C 588 0300 ■
AKUREYRlC 461 4666
KEfLAVÍK C 42! 1170
THE 40 YEAR OLD VIRGIN KL. 5.40-8-10.20
VALIANT ísl. tal KL6
CHARLIE & THE CHOCOLATE FACTORY KL. 5.45-8-10.15
THECAVE KL.8-10
STRÁKARNIR OKKAR KL 6-8-10
THE DUKES OF HAZZARD KL. 5.50-8-10.05
B.1.14 ára
B.1.16ára
B.1.14 ára
KEFLAVÍK
KRINGLAN
THE40YEAR OLDVIRGIN
THE 40 YEAR OLD VIRGIN VIP
VALIANT enskt tal
VALIANT ísl. tal
SKYHIGH
CHARLIE & THE CHOCOLATE FACTORY
STRÁKARNIR OKKAR
THE DUKES OF HAZZARD
RACING STRIPES isl. tal
Ný fótboltamynd
í kvikmyndahús
Tónleikar til heiðurs
Elvis Presley á Broadway
Kvikmyndin Goal kemur í kvik-
myndahús á föstudaginn. Myndin
fjallar um Santiago sem býr í Los
Angeles og dreymir um að verða at-
vinnumaður í knattspyrnu. Hann
lítur löngunaraugum til Evrópu og
heldur til Bretlands þar sem hann
fær að reyna fyrir sér hjá Newcastle
United. Hann verður fljótt heitur og
ekki bara á fótboltavellinum held-
ur líka í skemmtanalífinu. Danny
Cannon ætlar að sýna réttu tökin
jví að hans mati hefur aldrei verið
íægt að taka upp almennilega fót-
joltamynd þar sem tökurnar hafa
aldrei verið nógu sannfærandi. Alla-
vega munu væntanlegir áhorfendur
myndarinnar hafa það á tilfinning-
unni að þeir séu að spila sjálfir á vell-
inum. Danny Cannon leikstýrir hér
spennandi fótboltamynd sem hefur
fengið mjög gott umtal og er sögð
spennandi og dramatísk í leiðinniJi
Þann 30. september verða haldnir
stórtónleikar á Broadway þar
sem íslenskir tónlistarmenn ætla
að heiðra Elvis Presley. Tónlist-
armennirnir sem fram koma
eru meðal annars, Friðrik Ómar,
Regína Ósk, Heiða Idol, Jón
Ólafsson, Jóhann Ásmundsson,
Guðmundur Pétursson, Sammi
úr Jagúar og fleiri. Meðan á sýn-
ingunni stendur er „slidemyndas-
how“ með myndum af ferli Elvis.
Tónleikarnir voru áður haldnir
í Ólafsvík í júlí síðastliðinum
og vöktu mikla gleði en margar
fyrirspurnir hafa komið um að
tónleikarnir yrðu endurteknir.
Tónleikarnir í Brodway hefjast
klukkan 22:00. ■
Sveimandi kátínukántrí
The Dandy Warhols: Odditorium
Eitt af því sem aldrei er nóg af er
góð tónlist sem maður getur látið
í spilarann og jafnvel skellt á hvar
sem maður er staddur. Þar sem
ég hlusta mikið á tónlist í strætó
á morgnanna hefur sú tónlist sem
ég hef verið að spila upp á síðkastið
öll komið úr ferðageislaspilaranum
minum og stóru og stæðilegu heyrn-
artólunum, sem útiloka umhverfis-
hljóð strætisvagnsins og hleypa
inn, oftast, guðdómlegum tónum
einhverra meistara. Stundum reyn-
ist þó erfitt að hlusta á tónlist sem
maður þekkir ekki fyrir, og verða
þá gamlir og góðir félagar oftar
fyrir valinu í strætisvagninum, þar
sem ég vil geta setið og slakað á.
Það er nefnilega þannig með tónlist
sem maður hefur ekki heyrt áður
að hún er krefjandi, og maður þarf
að hlusta nokkrum sinnum til að
geta almennilega áttað sig á henni.
Jafnframt er besta tónlistin oft sú
sem maður „nær“ engan vegin við
fyrstu hlustun, en svo vinnur hún
á og verður að lokum ein af þessum
gömlu og góðu félögum. En það er
undarlegt með diskinn Odditorium
sem bandaríska hljómsveitin The
Dandy Warhols var að senda frá
sér. Sú plata var ekkert sérlega krefj-
andi, og hljómaði strax við fyrstu
hlustun eins og gamall vinur, en
samt hafði ég ekki hlustað mikið
á sveitina áður. Diskurinn rennur
semsagt frá byrjun vel í gegn, og
heldur svo bara áfram að vinna á.
Ég get helst líkt tónlist þeirra við
einhvers konar sambland af The
Stone Roses, eða öðrum breskum
sveitum sem voru að gera tónlist
í kring um 1990, og svo Beck Han-
sen. Sambland þetta er sveimandi
eins og bresku sveitirnar, en með
undarlegum hljóðtilraunum, og
smá gleði og kántrígalsayfirbragði
eins og Beck. Sum laganna eru
löng, yfir 7 mínútur, eða tæpar tíu
eins og fyrsta eiginlega lag disksins,
„Love is the new feel awful“ en svo
er bryddað upp á kátínufullum inn-
skotum á milli. Eins ólíkt og þetta
hljómar, gengur þetta alveg prýði-
lega vel saman, og úr verður sterk-
ur og eigulegur gripur. Eiginlega
kom þessi diskur mér gjörsamlega
í opna skjöldu, því ég hafði rennt
yfir einn eldri disk sveitarinnar, og
fundist hann ákaflega venjulegur,
og ekki fyrir minn smekk. Þegar
ferðageislaspilarinn minn tók svo
upp á því að detta i gólfið og brotna
í gær, var fokið í flest skjól. Nú þarf
ég að taka um tíu mínútur í að
tjasla geislaspilaranum saman og
stilla hann af og halda svo þéttings-
fast saman, í hvert skipti sem ég vil
spila í honum diska. Sumir myndu
ekki nennaþví, en fyrir Dandy War-
hols-diskinn snemma morguns,
til að gera strætóferðina aðeins
gleðilegri, eru þetta smámunir ein-
ir saman. Tvímælalaust gleðigjafi
haustsins!
heiða @vbl.i
Út er að koma nýtt efni frá EMI
flokknum og má þar nefna:
Boz Scaggs "Fade Into Light"
Ný plata frá Boz Scaggs, fyrsta upplag inniheldur DVD disk með auka-
efni.
John Cale "Black Acetae"
Önnur plata John Cale á EMI en þetta er hans 22 sólóplata.
The Band “A Musical History-The Band Boxset" {5 CD+ 1 DVD)
Box með yfirliti yfir feril The Band.
Blind Melon "Tones OfHome-Best Of"
Safnplata með öllum vinsælustu lögum Blind Melon.
LP:
Rolling Stones ‘A Bigger Bang” (2 LP)
Nýja platan á vinyl.
Nýtt efni frá Bonnier/Amigo:
Katie Melua "Call OffTheSearch"
Fyrsta plata söngkonunnar Katie Melua hefur verið ófáanieg hér á
landi en platan sló í gegn í Bretlandi haustið 2003, platan inniheldur
m.a. lagið frábæra "The Closest Thing To Crazy".
Katie Melua “Piece By Piece"
Nýja platan með Katie Melua er að koma út í Bretlandi í dag 26. sept-
ember. Fyrsta smákífan af plötunni er þegar farin að hljóma hér á landi
en það er lagið “Nine Million Bicydes".