blaðið - 04.10.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaóiö
BanatUræði við olíu
málaráðherra íraks
Eigandi veitingastaðar í bænum Hilla kannar skemmdir eftir að sprengja sprakk á staðn-
um og varð tveimur að bana og særði sex.
Apynja hætt-
ir að reykja
Simpansi sem býr í dýragarði í
norðvesturhluta Kína er hættur
að reykja eftir að hafa stundað
þann leiða ósið í 16 ár. Starfsmenn
dýragarðsins höfðu áhyggjur af
því að heilsufari apynjunnar Ai-Ai
væri farið að hraka og vöndu hana
því af reykingum með því að bjóða
henni í staðinn upp á betra fæði og
alls kyns afþreyingu. „Starfsmenn
dýragarðsins reyndu allar mögu-
legar leiðir til að leiða huga simp-
ansans frá sígarettunum til dæmis
með gönguferð eftir morgunmat,
tónlist eftir hádegismat og leikfimi
eftir kvöldmat," segir í frétt frá kín-
versku fréttastofunni Xinhua. Talið
er að Ai-Ai hafi reykt til að komast
yfir einmanaleika og sorg. Hún byrj-
aði að reykja árið 1989 stuttu eftir
að maki hennar drapst. Eftir fráfall
annars maka hennar átta árum síð-
ar og brottflutning dóttur hennar
gerðist hún hins vegar keðjureyk-
ingaapi. Ekki fylgir sögunni hver
hafi komið apynjunni á bragðið eða
útvegaði henni eitrið. ■
Ibrahim Bahr al-Uloum, olíumála-
ráðherra íraks, lifði af morðtilraun
í Bagdad í gær en þrír lífverðir hans
fórust. Sprengja sprakk í vegakanti
í borginni þegar bílalest ráðherrans
fór framhjá á leið til olíuvinnslubæj-
arins Bajii þar sem hann hugðist
taka þátt í opinberri athöfn. Tals-
maður forsetans sagði eftir árásina
að honum heilsaðist vel og myndi
ræða við starfsfólk sitt. Tveir bílar
eyðilögðust í sprengingunni. í síð-
ustu viku fórust sex starfsmenn
olíumálaráðuneytisins þegar sjálfs-
morðssprengjumaður ók bíl sínum
á rútu sem fólkið var í. Það var
mannskæðasta árás sem beitt hefur
verið gegn olíuiðnaðinum síðan upp-
reisnarmenn tóku til við að sprengja
olíuleiðslur og ráða af dögum fólk
sem vann í olíugeiranum eftir fall
Saddams Hussein árið 2003.
Einnig fórust tveir írakar og sex
særðust þegar sprengja sprakk á veit-
ingahúsi í bænum Hilla sunnan af
Bagdad í gær.
Átta Al Kaída liðar felldir
Átta menn sem grunaðir eru um að
vera A1 Kaída liðar voru drepnir af
bandarískum hersveitum í bænum
Karabila rétt hjá landamærum Sýr-
lands ásunnudag. Um 1000 hermenn
berjast nú við uppreisnarmenn á
svæðinu. „Tilgangur aðgerðarinnar
er að uppræta hryðjuverkamenn A1
Kaída sem starfa innan svæðisins og
trufla stoðkerfi uppreisnarmanna,"
sagði í tilkynningu frá bandaríska
hernum. ■
Gamlar gyðj-
ur koma í ljós
Tvær marmarastyttur í lík-
amsstærð af grísku gyðjunum
Aþenu og Heru hafa fundist
við fornleifauppgröft á eyjunni
Krít. Stytturnar voru gerðar á
valdaskeiði Rómverja í Grikk-
landi á milli annarrar og fjórðu
aldar. Þær prýddu upprunalega
rómverska leikhúsið í bænum
Gortyn að sögn Anna Micheli,
fornleifafræðings hjá ítalska
fornleifafræðiskólanum. Hún
sagði ennfremur að stytturnar
væru í góðu ástandi fyrir utan
að höfuð vantar á styttuna
af Heru. „ Við vonumst til að
finna höfuðið í nágrenninu,"
sagði Micheli. Sjaldgæft er að
styttur sem þessar finnist á
þeim stöðum þar sem þær
stóðu upprunalega. Fornleifa-
fræðingar vonast til að meira
af skreytilist leikhússins komi
f ljós við ffekari uppgröft. ■
Bát hvolfdi á George-vatni
A þriðja tug farast
Björgunarsveitarmenn á vettvangi slyssins á George-vatni í New York fylki.
I gær hófst rannsókn á slysi sem
varð 21 ellilífeyrisþega að bana á
George-vatni í New York fylki á
sunnudag. Vitni sögðu að skemmti-
bátur sem fólkið var á hefði lent í
kjölfari stærri báts sem varð til þess
að hann fór á hliðina. Farþegar féllu
útbyrðis af efra þilfari bátsins og
höfðu ekki ráðrúm til að klæða sig
í björgunarvesti. Mikil umferð báta
hafði verið á vatninu um daginn
enda var veður gott og vatnið speg-
ilslétt. Alls voru tæplega 50 manns
á aldrinum 55 til 90 ára um borð í
bátnum og 27 þeirra voru fluttir á
sjúkrahús til aðhlynningar eftir slys-
ið. Sumir áttu erfitt með andadrátt,
aðrir voru með hjartatruflanir eða
brotin rifbein. ■
Falieg aðkoma að heimilinu skiptir máli.
Teppi er slitsterkt gólfefni sem auðvelt
er að þrífa, hljóðeinangrandi og hlýlegt.
Við seljum vönduð og endingargóö teppi
sem eru ofnæmisprófuð og á góðu verði.
a 32 Sími 533 5060
www.stepp.is
Kuroyanagi, forseti Mitsubishi UFJ, og Tamakoshi, stjórnarformaöur þess, klippa á
boröa til aö fagna samrunanum í gær.
Stærsti banki
heimsins
MJfJTTT^TWB
Á 1,68 milljón milljónir Bandaríkjadala
Stærsti banki í heimi, Mitsubishi
UFJ Financial Group Inc., varð til
á laugardag við samruna annarrar
og fjórðu stærstu fjármálastofnunar
Japans. Mitsubishi-bankinn hafði
betur við keppinaut sinn Sumitomo
Mitsui í baráttu um yfirtöku á UFJ-
bankanum. Heildareignir nýja fyrir-
tækisins eru metnar á um 1,68 biljón-
ir Bandaríkjadala sem er meira en
heildareignir Citigroup sem áður var
stærsta fjármálastofnun heims. Með
yfirtökunni fækkar hinum stóru
bönkum Japans úr fjórum í þrjá.
Hún er ennfremur talin til marks
um að fjármálastarfsemi í landinu
sé að ná sér á strik en hún hefur átt
við erfiða skuldastöðu að stríða.
Móðurfyrirtækin voru samein-
uð á laugardag en bankastarfsemi
þeirra rennur ekki saman fyrr en
1. janúar næstkomandi vegna tafa
við samtengingu tölvukerfa þeirra.
Mitsubishi UFJ verður ef til vill
ekki Iengi stærsti banki Japans þar
sem Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra landsins, hefur í hyggju að
einkavæða póstþjónustu landsins
en eignir hennar eru metnar á um
2,92 biljónir Bandaríkjadala. ■
Miers tilnefnd
sem dómari
George Bush, Bandaríkjaforseti, hef-
ur tilnefnt Harriet Miers, ráðgjafa
ríkisstjórnarinnar, sem dómara
við hæstarétt Bandaríkjanna í stað
Söndru Day O’Connor. Ef öldunga-
deild Bandaríkjaþings, þar sem
repúblikanar eru í meirihluta, sam-
þykkja tilnefninguna verður Miers
annar kvendómarinn við réttinn og
þriðja konan frá upphafi til að gegna
embættinu. Miers, sem er 60 ára
gömul, hefur aldrei gegnt embætti
dómara en hefur víðtæka reynslu af
lögfræðistörfum og var meðal ann-
ars í forsvari fyrir samtök lögmanna
í Dallas og Texas. ■
George Bush kynnir tilnefn-
ingu Harriet Miers til embættis
dómara við hæstarétt Banda-
ríkjanna.