blaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 16

blaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 16
16 I NEYTENDUR W *T ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 bla6Í6 Microsoft og Intel styðja HD-DVD tæknina Slegist um DVD staðla lenda í þeirri aðstöðu sem eigend- ur Beta myndbandstækjanna lentu í fyrir tæpum tuttugu árum þegar sú tækni vék fullkomlega fyrir VHS. Þetta hefur skapað nokkur vand- ræði fyrir kvikmyndaverin í Holly- wood sem hafa mikla hagsmuni í sölu mynddiska og höfðu bundið nokkrar vonir við að hin nýja kyn- slóð DVD-tækja myndi glæða alla sölu á ný Blue-ray á leikjatölvur Þó að Microsoft og Intel framleiði ekki DVD- spilara er búist fastlega við því að neytendur muni vilja spila nýju mynddiskana á tölvunum sínum. Þetta þýðir að Microsoft og Intel verða að hanna tölvubúnað og forrit á þann veg að þau geti ráðið við HD-DVD tæknina. Það mun svo í kjölfarið útiloka Blue-ray tæknina og að öllum líkindum draga úr sölu mynddiska sembyggja áþeirri tækni. Enga að síður hefur Sony ákveðið að hin nýja leikjatalva, PlayStation 3, muni byggja á Blue-ray tækninni. Báðir samkeppnisaðilar ráðgera að setja hina nýju kynslóð DVD-spil- ara á markað fyrir næstu jól. HD-DVD spilari þessa ákvörðun enda hafa þau átt í viðskiptum við báða samkeppnisað- ilana og ljóst að gríðarlegir hagsmun- ir hafa verið í húfi. um hefur minnkað töluvert. Ástæð- an er fyrst og fremst sögð vera hik hjá neytendum enda bíða þeir eftir niðurstöðu um það hvaða kerfi komi til með að standa upp úr. Fáir vilja Microsoft og Intel tilkynntu í síðustu viku þau áform sín að styðja HD-DVD tækni Toshiba sem grundvöll að næstu kynslóð DVD tækja. Þetta telst vera nokk- uð áfall fyrir keppinautana Sony, Matsushita Electric, Samsung og fleiri sem hafa hingað til byggt á hinni svokölluðu Blue-ray tækni. Ákvörðunin þýðir að framvegis munu fyrirtækin tvö miða fram- leiðslu sína í forritum og örgjörv- um við HD-DVD tæknina. Samkvæmt forráðamönnum fyr- irtækjanna tveggja voru þau lengi tvístígandi um hvora tæknina þau ættu að velja en að lokum var það lít- ill framleiðslukostnaður HD-DVD diskanna sem réð úrslitum. Einnig þykir það sýnt að framleiðsluferl- ið sjálft á þessum diskum er mun einfaldara og því telja fyrirtækin tvö líklegra að þeir muni ná meiri útbreiðslu er fram í sækir. Fyrirtæk- in hafa þó beðið í rúm tvö ár með Blue-ray spilari Hagsmunir í Hollywood Samkeppnin milli þessara tveggja kerfa hefur þó þegar valdið skaða þar sem eftirspurn eftir DVD-tækj- PÚSTÞJÓNUSTA J IzUtMrt/ Smiójuvegur 50, Kóp., sími: 564 0950 Setjum í allar gerðir bíla Sérsmíða kerfi íjeppann! Ef við eigum það ekki til þá bara búum við það til! m—«1564 0950 glpf (ýj§jjspj§Érr S^ÖKÍ 5 ^(TffMfrríT. DVD-spilarar úreldast fljótt Magnús Möller, sölumaður hjá Heimilistækjum, gerir ráð fyrir því að þessi ákvörðun Microsoft og Intel geti ráðið úrslitum um hvaða tækni verði að endingu ofan á í samkeppn- inni. Hann segir að báðir kostirnir séu mun betri en það sem gengur og gerist í dag og töluvert muni i bæði myndgæðum og hljóði. Vandamálið sé hins vegar að örfá sjónvarpstæki í dag geta tekið við þeim köplum sem hinir nýju DVD-spilarar munu krefj- ast. „Þú þarft að hafa tengingu sem getur flutt þessi gögn upp í sjónvarp- ið. Núna eru flest sjónvörp komin með svokallað DVI tengi og þá þarf spilarinn að minnsta kosti að hafa það en DVI flytur ekki hljóð. HDMI tengið er hins vegar miklu betra að því leyti að það flytur líka hljóð og það er það sem flestir segja að taki við af skarttenginu. En það eru fá sjónvörp sem bjóða upp á það tengi í dag.“ Magnús segir einnig að ör þróun á þessum markaði valdi því að DVD-spilarar úreldist fljótt og að spilarar sem keyra á núverandi kerfi muni ekki geta spilað diska sem byggja á Blue-ray eða HD-DVD tækninni. „Þetta fer allt eftir því hvenær þetta kemur á markað. Svo er það alltaf þannig að þegar eitt- hvað nýtt kemur á markaðinn þá er það yfirleitt mjög dýrt. Þannig að ég hugsa að fólk geti alveg verið öruggt með sína spilara a.m.k. næstu fimm árin.“. hoskuldur@vbl.is BlaÖiO/SteinarHugi Lítil þjónusta við viðskiptavini Strœtó gefur ekkert til baka Víða erlendis viðgengst það að strætóbílstjórar gefi til baka þegar viðskiptavinur greiðir með seðli. Áf einhverjum ástæðum hefur ekki þótt ástæða til að taka upp slíkt kerfi hér á íslandi. Þetta hefur þýtt að viðskiptavinir Strætó hafa annað hvort þurft frá að hverfa eða neyðst til að greiða of mikið fyrir farið hafi þeir ekki haft nákvæmt fargjald á milli handanna. Hörður Gíslason, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Strætó bs„ segir að meginástæða fyrir því að ekki séu sérstök skiptimyntabox í strætis- vögnum sé tímasparnaður. „Þetta snýst um einfaldleika og hraða. Þeg- ar baukurinn var settur í bllana þá var það gert til þess að einfalda afgreiðsluna. Fyrir þann tíma voru vagnstjórar með töskur sem þeir höfðu skiptimyntina í og miða. Það var bara þeirra mat að það væri betri þjónusta að skila fólkinu sem fljótast á milli staða með því að kom- ast hjá þeim töfum sem yrðu við að afgreiða einstaklinginn. Að auki sparar þetta alla uppgjörsvinnu fyr- ir strætóbílstjóra í lok vinnudags," segir Hörður. Hann segir ennfrem- ur að svona kerfi, eins og viðgengst hér, sé alþekkt í Bandaríkjunum og hafi gefið góða raun þar. Nýtt smartkort Hörður segir að það hafi ekki verið rætt sérstaklega að koma upp skipti- myntaboxum í strætisvögnum en hins vegar sé í bígerð að koma á fót sérstöku smartkorti í samvinnu við Reykjavíkurborg. „Það er áformað á næstunni, þó ekki sé búið að festa ákveðna dagsetningu, að koma upp nýju rafrænu greiðslukerfi. Kerfið virkar þannig að viðkomandi er með smartkort og hann getur verið með hleðslu inn á þessu korti til að gera ýmislegt t.d. að borga í sund eða strætó og þess vegna fleira sem kann að koma inn í það síðar.“ Sam- kvæmt Herði virkar kortið þannig að þegar viðskiptavinur gengur inn í strætisvagninn nægir honum að bera kortið upp að þar til gerðum les- ara. Hörður segir að ekki verði nauð- synlegt að kaupa einhver ákveðin tímabilskort heldur geti menn lagt inn á þetta kort þá upphæð sem hentar hverju sinni. Hann segir að þó að þetta kunni ekki að leysa all- an vandann varðandi skiptimynt þá sé þetta nýr greiðslumöguleiki fyrir farþega og ætti einnig að flýta fyrir allri afgreiðslu. ■ hoskuldur@vbl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.