blaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 20
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaðiö
20 I HEIMILI OG HÖNNUN
Baðinnréttingar fyrir alla
Tvœr lausnir
Huggulegar baðinnréttingar geta gert mikið fyrir heimilið og mismunandi hvað hentar hverju sinni. Mikið
úrval er í boði og því auðvelt fyrir fólk að finna eitthvað sem hæfir buddunni sinni og smekk. Hægt er að fjár-
festa í tiltölulega einföldum en jafnframt smekklegum innréttingum fyrir lága upphæð eða fara alla leið í lúx-
usinum en þá þurfa menn eðlilega að borga meira.
H«ust-\letur 2-ÖÖS
braptc
www.berais.is
ókeypis ti(
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaóið
Ódýr lausn
Kullen baðinnréttingar eru seldar hjá IKEA. Þetta er smekkleg innrétting
sem samanstendur af fimm hlutum. Einum skáp, 30x30182 cm á hæð, spegli
með fallegri hillu 40x12, vaskaskáp, 60x35,55 cm á hæð. Svo er veggskápur,
30x15,67 cm á hæð og einn lágur skápur, 30x30,82 cm á hæð. Innréttingin er
hvít, fæturnar úr plasti og hillurnar úr hertu-gleri. Verð 9.900 kr.
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKGRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
Full búð af nýjum eikarhúsgögnum
Fyrir þá sem vilja meira
HTH baðinnréttingar eru seldar hjá Bræðrunum Ormsson hf. Þetta er hvít
sprautlökkuð innrétting með einföldum höldum. Röð af skápum sem virð-
ast fljóta í rýminu. Borðplatan samanstendur af álramma með 1 cm þykku
plasti ofan á. Við þetta er svo blandað löngum láréttum vegghillum úr hvítt-
aðri eik. Einfalt og stílhreint. Heildarlengd á innréttingunni eru 240 cm,
dýpt 60 cm. Breidd á hverri neðri einingu er 60 cm, hæð 32 cm. Efri vegg-
einingar 60 cm breiðar, 16 cm djúpar og 19,2 cm á hæð. Skúffurnar eru með
lúxusbrautum og ljúflokunarbúnaði svo skúffurnar lokist hægt.
Verð m.v. staðgreiðslu 159.753 kr.