blaðið - 04.10.2005, Page 20

blaðið - 04.10.2005, Page 20
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaðiö 20 I HEIMILI OG HÖNNUN Baðinnréttingar fyrir alla Tvœr lausnir Huggulegar baðinnréttingar geta gert mikið fyrir heimilið og mismunandi hvað hentar hverju sinni. Mikið úrval er í boði og því auðvelt fyrir fólk að finna eitthvað sem hæfir buddunni sinni og smekk. Hægt er að fjár- festa í tiltölulega einföldum en jafnframt smekklegum innréttingum fyrir lága upphæð eða fara alla leið í lúx- usinum en þá þurfa menn eðlilega að borga meira. H«ust-\letur 2-ÖÖS braptc www.berais.is ókeypis ti( heimila og fyrirtækja alla virka daga blaóið Ódýr lausn Kullen baðinnréttingar eru seldar hjá IKEA. Þetta er smekkleg innrétting sem samanstendur af fimm hlutum. Einum skáp, 30x30182 cm á hæð, spegli með fallegri hillu 40x12, vaskaskáp, 60x35,55 cm á hæð. Svo er veggskápur, 30x15,67 cm á hæð og einn lágur skápur, 30x30,82 cm á hæð. Innréttingin er hvít, fæturnar úr plasti og hillurnar úr hertu-gleri. Verð 9.900 kr. HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKGRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100 Full búð af nýjum eikarhúsgögnum Fyrir þá sem vilja meira HTH baðinnréttingar eru seldar hjá Bræðrunum Ormsson hf. Þetta er hvít sprautlökkuð innrétting með einföldum höldum. Röð af skápum sem virð- ast fljóta í rýminu. Borðplatan samanstendur af álramma með 1 cm þykku plasti ofan á. Við þetta er svo blandað löngum láréttum vegghillum úr hvítt- aðri eik. Einfalt og stílhreint. Heildarlengd á innréttingunni eru 240 cm, dýpt 60 cm. Breidd á hverri neðri einingu er 60 cm, hæð 32 cm. Efri vegg- einingar 60 cm breiðar, 16 cm djúpar og 19,2 cm á hæð. Skúffurnar eru með lúxusbrautum og ljúflokunarbúnaði svo skúffurnar lokist hægt. Verð m.v. staðgreiðslu 159.753 kr.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.