blaðið - 04.10.2005, Side 12
12 I SKOÐUN
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaAÍÖ
Efnahagsstefna stjórnarinnar komin í þrot
Ástandið í efna-
hagsmálum
þjóðarinnar er
slæmt um þessar
mundir. „Ójafn-
vægið er jafnvel
meira nú (en
um aldamótin):
Viðskiptahalli
meiri, raungengi
hærra.íbúðaverð
lengra yfir lang-
tímajafnvægi og skuldsetning heim-
ila, fyrirtækja og þjóðarbúskaparins
í heild töluvert meiri.“ Þetta er ekki
áróður frá stjórnarandstöðunni eins
og menn gætu haldið. Nei, þetta er
komið frá Seðlabankanum. Þetta er
nokkurs konar yfirlýsing Seðlabank-
ans um gjaldþrot efnahagsstefnu rík-
isstjórnarinnar.
Efnahagskerfíð þolir ekki fram-
kvæmdirnar fyrir austan
Það er nú komið í ljós að hið litla
íslenska efnahagskerfi þolir ekki
þær gífurlegu framkvæmdir sem
nú eiga sér stað á Austurlandi, virkj-
unarframkvæmdir og byggingu
álverksmiðju.Við þessar miklu fram-
kvæmdir hefur allt farið úr skorð-
um.Þensla og verðbólga er orðin
svo mikil að ójafnvægið í efnahags-
málum er meira en var í lok 20.aldar-
innar. Þenslan í efnahagskerfinu er
gífurleg. Allt vinnuafl er á uppboði.
Mikill skortur er á vinnuafli í mörg-
um greinum. Mikið er flutt inn af
erlendu vinnuafli, ekki aðeins til
framkvæmdanna við Kárahnjúka
heldur einnig í margar aðrar grein-
ar. Einkaneysla hefur stóraukist og
er hún að miklu leyti fjármögnuð
með lánsfé úr bönkunum. Útgjöld
hins opinbera eru mikil.
Viðskiptahallinn hefur stóraukist
og er nú orðinn hættulega mikill.
Viðskiptahallinn nam 72,7 millj-
örðum króna árið 2004 eða 8,2%
af landsframleiðslu! Einkaneyslan
jókst um 6,9% árið 2004. Á öðrum
ársfjórðungi yfirstandandi árs jókst
einkaneyslan enn meira en áður eða
um 14,1%. Er það mesta aukning
einkaneyslu á einum ársfjórðungi
síðan 1997. Verðbólgan er nú langt
yfir viðmiðunarmörkum Seðla-
bankans eða 4,8 % á ársgrundvelli.
Verðbólgumarkmið Seðlabankans
er 2,5% með 1,5% frávikum þannig
að efri þolmörk eru 4%. Spáð er að
verðbólgan muni enn aukast á næst-
unni.
Hátt gengi ógnar útflutningi
Ráð Seðlabankans í baráttunni við
verðbólguna hefur verið að hækka
stýrivexti. Eftir síðustu hækkun
bankans á stýrivöxtum um 0,75
prósentustig eru stýrivextir orðnir
10,25%. Eru þessir vextir hér nú orðn-
ir hærri en í nokkru nálægu landi og
voru raunar hærri hér áður en vaxta-
hækkunarhrina Seðlabankans hófst.
Afleiðing vaxtahækkana Seðlabank-
ans hefur verið mikil styrking á
gengi íslensku krónunnar og er
styrkur krónunnar nú í sögulegu
hámarki. Er hið háa gengi íslensku
krónunnar fyrir löngu farið að valda
útflutningsgreinunum og ferðaiðnað-
inum miklum erfiðleikum. Útflutn-
ingfyrirtækin fá sífellt færri krónur
fyrir útfluttar vörur þó tilkostnaður
innanlands sé sá sami og áður og jafn-
vel meiri. Fyrirtæki sem flutti út vör-
ur á dollarasvæði fyrir 110 milljónir
króna fyrir nokkrum árum fær í dag
ekki nema rúmar 60 milljónir króna
fyrir sama magn af útfluttum vörum.
Tapið á þessu magni útflutnings er 50
milljónir króna. Slíkt tap þola ekki
lítil eða miðlungsstór fyrirtæki enda
hafa mörg þeirra verið að leggja upp
laupana undanfarið. Það er til lítils
að hækka stöðugt vextina ef það leið-
ir til þess að framleiðslufyrirtækin
stöðvast. Nú er svo komið að menn
telja nóg komið af slíkum aðgerðum
og vilja að snúið verði við blaðinu.
Verkalýðshreyfingin
í startholunum
Hagfræðingar segja að ríkið hafi
ekki dregið nægilega úr útgjöldum
og framkvæmdum á meðan hinar
miklu framkvæmdir Landsvirkj-
unar standa yfir á Austurlandi.
Vinstri grænir vilja stöðva frekari
stóriðjuframkvæmdir. Ljóst er að
eitthvað verður að gera. Sennilega
er vaxtahækkun Seðlabankans
orðin of mikil og getur leitt til koll-
steypu. Það sem verra er þá hefur
hún ekki stöðvað verðbólguna.
Hún eykst stöðugt. Verkalýðshreyf-
ingin er í startholunum vegna of
mikillar verðbólgu og hótar upp-
sögn kjarasamninga. Mikil hætta
er þvi á því að allt fari í bál og brand
á næstunni.
Björgvin Guðmundsson
Björgvin
Guömundsson
Slippstööin á Akureyri og
heimskuleg ákvörðun Ríkiskaupa
Ég get ekki orða
bundistyfirþeim
hremmingum
sem Slippstöðin
á Akureyri glím-
ir við þessa dag-
ana. Ríkiskaup
efndi til útboðs á
viðgerð og breyt-
ingum til dæmis
á varðskipinu Ægi og fleirum síðast-
liðinn vetur.
Þegar þau voru opnuð kom í ljós
að Slippstöðin var með næstlægsta
tilboðið en það lægsta var frá skipa-
smíðastöð í Póllandi. Munurinn var
um 20 milljónir. Ráðamenn Ríkis-
kaupa töldu að ódýrara væri að taka
pólska tiboðinu og gerðu það.
Þeir vissu vel að mikil útgjöld eru
því samfara að senda hluta áhafnar
með skipið út til Póllands og sækja
það aftur og hafa íslenskan eftirlits-
mann þar ytra á góðum launum í
nokkra mánuði. Ríkiskaup reiknaði
þá upphæð um 7-8 millj. króna en
mér segir svo hugur um að sú upp-
hæð verði miklu hærri. Ef af líkum
lætur munu ráðamenn fyrirtækis-
ins fara i fokdýrar heimsóknir bæði
til að taka við skipinu, undirrita
samninga o.fl..
Þeir minntust heldur ekki einu
orði á það að íslenska ríkið varð af
töluverðum skatttekjum sem það
hefði fengið af störfum íslenskra
starfsmanna hjá Slippstöðinni. Það
virðist vera tíska að fara með öll störf
sem hægt er til útlanda og hugsa
ekkert um afkomu almennings eða
íslenskra fyrirtækja. Það læðist að
manni sá grunur að margir telji át-
vinnuleysi af hinu góða þar sem ís-
lenskt starfsfólk hafi alltof há laun
og sterka verkalýðshreyfingu sem
lætur ekki líðast að níðast á fólki.
Eftir situr Slippstöðin verkefna-
laus og var hún í gær úrskurðuð
gjaldþrota. Steininn tekur þó úr þeg-
ar sagt er að banki haldi 40 milljón-
um króna sem stöðin á í gíslingu svo
ekki er unnt að greiða starfsmönn-
um um 20 millj. króna sem þeir eiga
inni vegna vangoldinna launa und-
anfarnar vikur.
Svona háttalag æðstu ráðamanna
hjá íslenska ríkinu kalla ég að pissa
í skóinn sinn.
Herdís Helgadóttir, mannfrœðingur
HYUNDAI - RENAULT • BMW • LAND ROVER
Sama hvernig
i&ooo
Bl£**S§Niht-
fáöu kaupaukann beint í veskiö
Bensínkort með 50 þúsund króna inneign og frí Q VÖROLJF
ábyrgðar- og kaskótrygging* fylgir nú ölium nýjum ^
bílum frá B&L. Ef þú ert í bflahugleiðingum, fáöu þér
nýjan og glæsilegan Hyundai, Renault, Land Rover eða
BMW með kaupauka sem þú færð beint í veskið, að
verðmæti allt að 140 þúsund krónur.
Komdu við hjá okkur. Við erum með bllinn handa þér. x
Frí ábyrgöar- og kaskótrygging í 1 ár. Gildir ekki meö öörum tilboöum.
HYUnDRI
hefur gœðin
REMAULT
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 ReykjavÍk - 575 1200 - WWW.BL.IS
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 TIL 18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL 12 TIL l6.
G0 BEYOND™
Bflasala Akureyrar sfmi 461 2533 • Bílás Akranesi sfmi 431 2622 • SG Bílar Reykjanesbæ símí 421 4444
Áki Sauöárkróki sími 453 6140 • Bíla- og búvélasalan Hvammstanga sfmi 451 2230 • Álaugarey Höfn sími 478 1577