blaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 18
margar gerðir,
ný munstur
18 I HEIMILI OG HÖNNUN þriðjudagur 4. október 2005 blaðiö
Guðrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Arkitektafélags fslands.
Glæslbí&sf5S2 0978
www.damask.is
Hert gler frá íspan.
stutcur afgreiðslufrestur
Breytingar á húsnœðum:
Arkitektar ekki
smámunasamir
Á undanförnum árum hafa komið
upp tilvik þar sem hagsmunir hús-
eigenda og arkitekta hafa rekist
á varðandi stórar brey tingar á
húsnæði. í flestum tilvikum hafa
verið um smámál að ræða sem
auðvelt hefur verið að leysa þó
vissulega séu undantekningar þar
á. Að sögn Guðrúnar Guðmunds-
dóttur, framkvæmdastjóra Arki-
tektafélags íslands, byggir réttur
arkitekts til að ákvarða breytingu
á húsnæði sem hann hefur hann-
að á höfundalögum.
„Það eru til landslög sem heita höfun-
dalög. Þau vernda höfundarrétt sem
gengur síðan í erfðir til nánustu ætt-
ingja í fimmtíu ár, að mig minnir.
Þetta eru landslög en ekki lög Arki-
tektafélags íslands. Síðan geta alltaf
komið upp álitamál varðandi höf-
undarréttinn sjálfan og í rauninni er
það matsatriði hverju sinni hvenær
er verið að brjóta höfundarréttinn
og hvenær ekki,“ segir Guðrún. Hún
segir að slík mál komi ekki á borð
til sín heldur séu annað hvort leyst
manna á milli út í samfélaginu eða
hjá dómstólum. Hins vegar reyni
arkitektar að sýna sanngirni og ekki
sé verið að eltast við smáatriði þeg-
ar kemur að heimilum fólks. Annað
gildir hins vegar um opinberar bygg-
ingar. „Auðvitað þegar við erum að
tala um heimili þá dettur fáum í
hug að fara að beita sér eitthvað óg-
urlega sterkt í því að það megi ekki
vera þessi litur á veggjunum eða
eitthvað slíkt. Öðru máli gegnir um
opinberar byggingar sem eru svona
fyrir almenning og meira áberandi
í umhverfinu. Auðvitað er bygging-
arlistin stór hluti af okkar umhverfi
sem allir þurfa að umbera.“
Siðareglur
Guðrún segir að hjá Arkitektafélagi
íslands séu í gildi ákveðnar siðaregl-
ur sem kveða á um samstarf milli
arkitekta þegar kemur að breyting-
um á tiltekinni byggingu. „Hins veg-
ar erum við með siðareglur sem taka
fyrst og fremst á því hvernig arkitekt-
ar koma fram hver við annan. Það
þykir sjálfsagt að kollegar hafi sam-
band við hvorn annan þegar einhver
leitar til arkitekts um breytingar á
húsi sem annar arkitekt hefur teikn-
að. Þá er það samkvæmt siðareglum
okkar góð venja að hafa samráð við
þann sem hannaði og teiknaði bygg-
inguna upprunalega."
Fagnar opinni umræðu
Nokkuð hefur verið um að pistlahöf-
undar út í bæ hafi verið að gagnrýna
íslenskan arkitektúr og hafa ósjald-
an stór orð fallið. Guðrún segir að
arkitektar taki þetta ekki persónu-
lega heldur fagni opinni umræðu og
líti svo á að eðlilegt sé að menn hafi
skoðanir á byggingarlist. Hún bend-
ir einnig á að henni finnist umræð-
an alls ekki hafa verið bara neikvæð
heldur frekar blönduð ef eitthvað
er. Samkvæmt Guðrúnu er þverfag-
leg ráðstefna um Vatnsmýrina það
næsta á döfinni hjá félaginu þar
sem leitast verður við að opna um-
ræðugrundvöll fyrir ólíkar skoðan-
ir faghópa. „Við ásamt fagfélögum
landslagsarkitekta, verkfræðinga,
skipulagsfræðinga og tæknifræð-
inga munum standa saman að ráð-
stefnu um Vatnsmýrina og viljum
efna til opinnar umræðu um svæðið
á breiðum og faglegum grunni. Það
stendur til að Reykjavíkurborg efni
til samkeppni um Vatnsmýrina og
við lögðum áherslu á að vera með
slíka umræðu áður en hún fer af
stað,“ segir Guðrún að lokum.
hoskuldur@vbl. is
iy Ljósin í bænum
1 mmml ■+ suðurveri
Stigahlíö 45 105 Reykjavík Sími 553 7637