blaðið - 04.10.2005, Qupperneq 25
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBERW 2005
HEIMILIOG HÖNNUN I 25
Falleg blóm í skreytingar:
Appelsinugul
blóm á haustin
Þegar halda skal veislu er margt
sem þarf að undirbúa og skipu-
leggja og skreytingar eru eitt af
því. Blóm eru tilvalin skreyting-
arefni enda fást þau í ýmsum gerð-
um og litum. Í Blómahönnun í
Listhúsinu í Laugardal fást falleg-
ar skreytingar sem myndu prýða
hvaða veislu sem er. Ragnhildur
Fjeldsted og María Másdóttir
féllust á að sýna Blaðinu fallegar
veisluskreytingar enda öllu vanar.
Ragnhildur segir að það sé mjög al-
gengt að fólk sem er að halda veislur
eða matarboð komi til þeirra. „Við
leigjum vasana sem skreytingarnar
eru í og gefum líka ætíð kostnaðar-
áætlun sem vekur mikla lukku.“
María segir að það hafi aukist að
fólk kaupi afskorin blóm sem og
aðra hluti til að skreyta með, eins
og bambus, laufblöð, steina og svo
framvegis. Stöllurnar segja að það
sé mjög árstíðabundið hvaða litir
séu valdir, í sumar var það bleiki lit-
urinn sem var allsráðandi en núna
er það brúnn, vínrauður og appels-
ínugulur. Ragnhildur segir að fólk
sé líka mikið á höttunum eftir öðru-
vísi blómum, eitthvað sem hefur
ekki mikið sést.
svanhvit@vbl.is
Falleg og stór skreyting sem myndi prýfia
vel á hlaðborfii
Snyrtileg skreyting sem hentar vel (
matarbofiið
Vigtað með stæl:
Vandaðu
yalið á vigtinni
Vigtir hjálpa manni að fylgjast
með aukakílóunum. Vigtir geta
verið misgóðar og misfallegar og
er ekki skemmtilegra að fá slæmu
fréttirnar allavega frá huggulegri
vigt. í verslunum á höfuðborgar-
svæðinu má finna skemmtilegar
og vel hannaðar vigtir þar sem
allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi.
Svöt og gegnsæ
Hanson stafræn vigt frá Deben-
hams. Afskaplega stílhrein vigt sem
hæfir vel á
flísalögðu bað- j
herbergisgólfi.
Glerið lætur
gólfið njóta
sín þannig að
lítið fer fyrir
vigtinni.
Verð 5.990 kr.
/
Hlýleg og persónuleg
Skemmtileg Soehnle vigt frá Byggt
og Búið. Það hlýtur að vera gaman
á köldum
vetrardegi
að fá slæmu
fréttirnar
frá eins
skemmti-
legri og lit-
ríkri vigt
eins og þessi
er. Ef fréttirnar eru góðar verður
ánægjan bara tvöföld.
Verð 2.793 kr.
Stílhrein
Beurer vigt frá Byggt og búið. Falleg
vigt sem passar
ast hvar sem er.
Hringlaga
skífan gef-
ur vigtinni
sígildan blæ.
Liturinn er
einnig hlýleg-
ur.
Verð 5.374 kr.
Flott græja
Hanson stafræn vigt frá Deben-
hams. Þrusu græja fyrir þá sem hafa
gaman af fallegum hlutum. Vigtin
er silfruð og einföld í útliti. Hún býð-
ur af sér þokka sem hverjum tássl-
um væri heiður að fá að njóta.
Verð 5.990 kr.
Cover er póstalaust qlerbrautakerfi, sérhannað
Fyrir svalalokanlr, sólstoFur o.þ.h.
Kerfið er 95% opnanlegt og einstaklega auðvelt í
notkun.
Cover-glerbrautakerfið er eina kerfið sem rennur
á jafnstórum hjólum að ofan og neðan sem útilokar
moguleika á glamri og stirðleika.
Með Cover Færð þú:
Öruggt og sterkt glerkerfi sem stenst íslenskt veðurfar.
98% lokun og koma PVC-plastlistar á milli glerja
með öllu gleri.
Cover er 95% opnanlegt og eru þrif einstaklega auðveld
því glerið opnast inná við (þrif báðum meginj.
Tært útsýni og nánast engin útlitsbreyting.
Cover-gler setur fallegan blæ á fasteignina.
Alltaf logn og Hreínar svalir.
GlerkerH sem er auðvelt og fljótlegt í uppsetningu
og frágangur aliur til sóma.
Gler & Drautir ehf • GllsduD 7 • 210 GarDadær • Siml 517 1417 • www.cover.ls