blaðið - 04.10.2005, Side 38
38IFÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaöiö
SMÁboraarinn
GRÁMYGLA HVERSDAGSINS
Smáborgarinn hefur nokkrar
áhyggjur af æsku þessa lands,
sem og í raun æsku allra vest-
rænna landa. Þrátt fyrir að vera
ekki gamall maður man Smá-
borgarinn nefnilega eftir þeim
tíma þegar ekkert sjónvarp var á
fimmtudögum, og að sjónvarpið
fór i frí í svona eins og einn mán-
uð á hverju sumri.
Á þessum sjónvarpslausa tíma
sótti Smáborgarinn oftar en ekki
í bókasafn hússins, sérstaklega ef
veðrið var það vont að ekki fékkst
leyfi hjá foreldrunum til að fara
út að leika. Bækurnar sem urðu
fyrir valinu fjölluðu um menn
eins og Frank og Jóa sem leystu
hin ýmsu sakamál af mikilli
snilld, eða ævintýrakrakka í
Ævintýrabókunum sem lentu í
margvíslegum ævintýrum þar
sem lumbra þurfti á skúrkum af
ýmsu tagi. Smáborgarinn man
eftir að hafa legið uppi í rúmi
með slíka bók og velt því fyrir sér
hvernig stóð á því að hann lenti
aldrei í slíkum ævintýrum. Hann
man einnig eftir að hafa lesið bók,
sem hét Gúmmítarsan eða eitt-
hvað slíkt og fjallaði um dreng
sem tók til sinna ráða - æfði sig í
því að sveifla sér milli húsa í köðl-
um og lemja mann og annan með
prikum - og varð að lokum hetja
dagsins. Smáborgarinn hélt þeg-
ar út í hlöðu með prik og ætlaði
að æfa sig í þessum sömu hlutum,
en hafði ekki í það þolinmæði og
náði því aldrei að verða sérstök
hetja eða bjarga degi nokkurs
með kaðalsveiflum og prikabar-
smíðum.
Smáborgarinn man eftir því
sem barn að hafa bölvað hinni
óspennandi tilveru sinni. Það
sem Smáborgarinn hefur hins-
vegar verið að velta fyrir sér að
undanförnu er að nú til dags
verða börn fyrir sífelldu áreiti þar
sem sagt er frá öðrum börnum
sem lenda í gríðarlega skemmti-
legum og spennandi ævintýrum.
Þó Smáborgarinn hafi lesið sinn
skammt sem barn af slíku er það
ekkert miðað við það magn sem
nútímabarnið innbyrðir. Dæmi
um slíkt eru bækurnar um Harry
Potter. 1 þeim er lýst ævintýra-
heimi galdrafólks og gert óspart
grín að hinni gráu og leiðinlegu
tilveru hins almenna, ógaldrandi
einstaklings. Skilaboðin eru að
tilvera okkar sem lifum venju-
legu lífi er alls ekkert skemmtileg.
Sömu skilaboð er að finna í fjöl-
mörgum þáttum barnatímanna
og í öðrum barnabókum. Þegar
Smáborgarinn hugsar til baka
upplifði hann fjölmörg ævintýri
í æsku þrátt fyrir að hafa ekki
hitt alvöru glæpamann fyrr en á
gamalsaldri. Liklega hefði hann
bara orðið hræddur ef slíkur
hefði birvtst, og flúið í stað þess
að góma náungann og bjarga deg-
inum. Ef hann hefði gert eitthvað
eru líkurnar meiri á því að hann
hefði meitt sig en að hann hefði
náð að góma vondu kallana. Von-
andi átta sem flest börn sig á þes-
su fyrr en Smáborgarinn gerði.
SU DOKU
talnaþraut
64. gata
8 3 7
3 6
1 9 7
7 4 5 8 2
3 6 2 9
9 2 7 3 1
1 5 7
4 5
9 8 4
Lausn á 63. gátu
lausn á 63. gátu
5 7 1 8 9 4 2 6 3
9 4 3 1 6 2 7 5 8
2 8 6 5 7 3 4 1 9
8 6 7 3 1 5 9 4 2
3 9 2 6 4 8 1 7 5
4 1 5 9 2 7 8 3 6
1 5 4 2 3 9 6 8 7
6 3 9 7 8 1 5 2 4
7 2 8 4 5 6 3 9 1
Lausn á 64.
gátu verður að
finna i
blaðinu á
morgun
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða tölu-
num frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar
til gerð box sem innihalda 9 reiti.
Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
1.SÆTI
METSÖLULISTA
16 milljóna punda
hús Brad og Jen
Áttu auka 16 milljónir punda og lang-
ar þig í vel ríflega þinn skerf af lúx-
uslífi? Þá ættirðu að kíkja inn á
ákveðna fasteignasölu í LA og fá
að skoða fyrrverandi ástarhreið-
ur Brad Pitt og Jennifer Aniston.
Hús þeirra er farið í sölu þar
sem skilnaður þeirra gekk end-
anlega í gegn í dag. Báðar stjörn-
urnar hafa tekið allt sitt dót og
öll húsgögnin. Það eina sem
þau skildu eftir var hjónarúm-
ið í stærsta svefnherberginu. í
húsinu er meðal annars kvik-
myndasalur, listagallerí, ör-
yggiskerfi sem er stýrt með
fingraförum og leynistígur
sem liggur frá tennisvellin-
um að nærliggjandi götu. Sið-
an parið skildi í byrjun árs
hafa bæði Brad og Jen flutt í
íbúðir í Malibu. Brad keypti
sér 4,5 milljóna punda heim-
ili í apríl en Jennifer er að
leigja 8,5 milljóna punda
strandhús. ■
Kate eyðir
degi með Lila
Kate Moss hefur fengið leyfi til að eru sérstakir fjölskyldudagar. Kate
eyða degi úr meðferðinni með dótt- Moss þurfti svo að fara aftur í með-
ur sinni Lila Grace. Faðir Lilu, Jef- ferðina eftir heimsóknina. í þess-
ferson Hack, flaug frá London til ari viku á hún að fara í spjall hjá
að leyfa Kate að hitta dóttur sína, í ráðgjafanum sínum þar sem grafið
fyrsta fríinu frá strangri meðferð- verður djúpt ofan í bernsku hennar
inni í The Meadows, nærri Phoenix og reynt að komast að ástæðunum
í Arizona. Heimsóknir eru leyfðar fyrir fikn hennar. ■
milli 11 og 18 hvern sunnudag, sem
Myers mun
leika Moon
Mike Myers mun leika Keith Moon, trommarann
knáa úr hljómsveitinni The Who, í bíómynd sem ver-
ið er að gera um líf hans. Roger Daltrey, sem er söngv-
ari The Who, mun ásamt Nigel Sinclair sjá um
framleiðslu myndarinnar, en hún hefur
enn ekki fengið nafn. Daltrey og
Sinclair hafa verið að vinna að gerð
þessarar myndar með hléum í um tíu
ár. Nú er loks verið að taka á verkefninu
með trompi, og tilkynnt verður um leik-
stjóraval bráðlega. Keith Moon var einn
af villtustu mönnum rokksins og einnig
þekktur sem einn besti trommarinn. Hann
dó vegna of stórs skammts af eiturlyfjum
árið 1978. ■
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
ý Vinnumórallinn gæti verið að trufla þig eitt-
hvað, en ýttu því bara til hliðar og einbeittuiþér að
verkefnunum á borðinu. Samskipti við viðskipta-
vini gætu verið þvinguð.
V Ekki láta framagirnina koma þér í bobba. Ekki
það að þú eigir ekki að vinna vel, því það áttu að
'jera. Þu verður bara að stvra framhjá mögulegum
ið einhverja þér ddri.
Lstrum, sérstaklega við einhverja þér élc
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Persónuleg mál eru að trufla vinnuna, en þú
gætir lært afþessu öllu saman. Jafnvægi er lykilorð
aagsins og þu ættir ekki að eiga í vandræðum með
að finna þao.
V Ertu til í að prófa eitthvað nýtt? Þitt fræga fé-
lagslyndi dregur að þér nýja vini (og kannski ein-
hverja sem verða meira en vinir) en passaðu þig
að gefa af þér til að tengjast fólki betur.
OFiskar
(19. febrúar-20. mars)
s Hjálp þín er nauðsynleg fyrir einhvern í vinn-
unni. Pað gæti verið vioskiptavinur eða jafnvel yfir-
maður. Hver sem það er,þa muna þeir eftir þér og
halda upp á þig þegar allt er yfirstaðið.
V Það er allt í lagi að hugsa stundum aðeins
um síðasta sambana á rómantískan hátt. En ekki
gleyma að það er búið og leyfðu því hjartanu að
vera í núinu.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
S Frestaðu eigin verkefnum því þú þarft að
Sa við mikiívægari hluti. Þu séro mikilvægi
a þinna ef þú nugsar um hópinn í stað þess
ab einbeita þér að eigin störfum.
V Án efa snýst alheimurinn um þig, en að láta
vita að þú veist af því er ekki mjöe góður kostur.
Fyrir bestu rómantísku niðurstöouna, láttu þá
aðra í fyrsta sætið. Spurðu, hlustaðu og sláðu gull-
hamra._____________________________________
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Dagurinn í dag er frekár íéttur svo notaðu
hann tfl að huga að því hvernig þú átt að höndla
stress. Finndu upp nýjar vinnuleiðir sem hjálpa
þér þegar allt er brjálað að gera.
V Njóttu þess að vera löt/latur. Leitaðu eftir hj%
ffá öðrum, nvort sem það eru vinir, íjölskylda eða
vinnufélagar. Ekki það að þau eigi að gera allt fyrir
þig, en þú átt bara skilið smá eigingjarna sjálfsast.
©Tvíburar
.(21.maí-21fjún0................
$ Huesaðuþig vel um áður en þú talar í dag. Þú
hefur tnna til að fullkomna þau skilaboð sem þú
lætur frá þér fara og þeim tíma er vel eytt.
V Er hægt að skemmta sér of vel? Já líklega. Þú
hittir fyrir svipað þenkjandi fólk og þú sem er
með skriðu af nugmyndum og innblástri, og kraft
til að framkvæma.
®Krabbi
(22. júní-22. júlí)
$ Undirbúðu þig fyrir holóttan veg framundan
þegar óvænt (en smávægileg) vanaamál koma
upp. Sveigjanleiki binn leysir málin, en þú verður
a o treysta á aðra líka.
V Ef þú ert að taka uppáhaldsflíkina úr óhreina
tauinu og þefa af henni áður en þú ferð í hana gæti
verið kominn tfmi á að gera allt fínt í stað þess að
skreppa á eitthvað tiútt. Pá geturðu líka verið skín-
andi íín/n síðar í vixunni.
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Reyndu að fá viðtal við tilvonandi viðskipta-
vin eða atvinnurekanda. Samskipti þín í dag eru
með besta móti og þú ættir að koma vel fyrir án
þess að titra eða svitna.
V Þú klikkar ekki ef þú fýlgir innsæi þínu. Hvort
sem það tengist skyndikaupum, eða skipulagn-
ingu a óvæntu partýi Hvað sem þú gerir þá verður
það ffnt.*
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Kaup og sala eru á dagskrá í dag og það er
mikilvægt að fá alla til að vera samstíga áour en
ákvarðanir eru teknar. Fólk er opið fyrir þínum
hugmyndum, svo sannfærðu þau.
V Þér er alveg sama um fullkomnun og ert
áhugasamari um að finna meiningu hlutanna. Það
er hollt ástand fyrir bæði hjarta og huea. Finndu
vin til að spjalla við um þessi mái og pið munið
taka miklum heimspekilegum framförum.
®Vog
(23. september-23. október)
$ Þú geislar svo skært í dag að þú færð róman-
tísk tilboð frá viðskiptavinum eða samstarfsfélög-
um í vinnunni. Ef þu ert spennt/ur fyrir því geng-
ur það hratt og vel. Ef ekki pá endar það líka vel.
V Fylltu eyru og augu af frábærri tónlist eða
áhugaverðri list. Þú verður bara að njóta lista og
fegurðar í dag og hver veit - kannski hittirðu ein-
hvern til að deila listinni með þér?
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Þú getur sigrað, þótt þú virðist vera að tapa, ef
þú tímasetur aflt vel í dag. Einhver náinnþér er að
reyna að taka yfir en þú snýrð stöðunni þér í hag
með því að þykjast gefast upp
V Hví að ákveða sig ef þú þarft þess ekki? Ef þér
tekst að vera heiðarleg/ur við alla sem málið varða,
þá er engin ástæða tiíað velja akrein, ef þú nennir
pví ekki.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Dragðu yfirmann þinn afsíðis og talaðu út um
drauma pína. Ef þú nærð að orða þa eru meiri lík-
ur á að peir rætist og þú gætir heyrt af möguleik-
um sem þú vissir ekfi um.
V Þetta er fullkominn dagur til að skoða stóru
myndina og gera framtíðaráform. Aðrir vilja heyra
hvað þú hefur að seeja og þeir eru tilbúnir og (og
himinlifandi) að hjáípa þér að ná því sem þú vilt.