blaðið - 05.10.2005, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 blaðÍA
Lánasjóður
landbúnaðar-
ins seldur
í gær var gengið frá sölu
ríkisins á Lánasjóði landbún-
aðarins til Landsbankans.
Söluandvirðið, tæpir þrír millj-
arðar króna, fer í að styrkja
Lífeyrissjóð bænda. Bankastjór-
amir Halldór J. Kristjánsson og
Sigurjón Þ. Árnason undirrit-
uðu kaupsamningin fyrir hönd
Landsbankans en fyrir hönd
ríkisins undirrituðu samning-
inn þeir Árni M. Mathiesen
fiármálaráðherra og Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Breytingar á
Kvöldþættinum
Stytta á Kvöldþáttinn, burðar-
dagskrárhð sjónvarpsstöðvar-
innar Sirkus, og senda hann út
klukkan 22.45. Þátturinn er lang-
stærsti útgjaldaliður stöðvarinn-
ar en Tinna Jóhannsdóttir Sir-
lcusstjóri segir ekki ætlunina að
sporna við kostnaðinum. „Með
breytingunum verður þátturinn
Jinitmiðaðri og styttri en hann
verður styttur niður í 30 mín-
útur. Þetta er náttúrulega mun
betri tími fyrir þáttinn." Ásta
Briem, framleiðandi þáttanna,
segir að með breytingunum sé
komið fastara form á þáttinn
og nú sé komin betri mynd á
hann. Kvöldþátturinn verður
áfram undir stjórn Guðmundar
Steingrímssonar. Hann segir að
breytingarnar fehst aðallega í
því að aðkeyptum innslögum
verði sleppt. „Þetta er ekki jafn-
mikill „magasín' þáttur og hann
hefur verið heldur munum við
sjá um slíkt efni sjálf framvegis."
Guðmundur segir að þátturinn
verði öflugri eftir breytingar og
lofar geðveikum þætti á fimmtu-
dag í tilefni geðheilbrigðisdags-
ins næstkomandi laugardag.
Jón Ólafsson rukkar Hannes
Hólmstein um 12 milljónir
Jón stefndi Hannesi fyrir meiðyrði í Lundúnum og hafði sigur. Ummœli um Jón á
heimasíðu Hannesar sögð hafa skaðað mannorð Jóns um heim allan. Jón hyggst leggja
fram fjárnámskröfu á morgun.
Samkvæmt heimildum Blaðsins
hyggst Jón Ólafsson, sem jafnan hef-
ur verið kenndur við Skífuna og var
um hríð helsti eigandi Norðurljósa,
leggja fram fjárnámskröfu á hendur
dr. Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni hjá sýslumanninum í Reykja-
vík á fimmtudagsmorgun. Mun Jón
reyna að fá greidda um tólf milljón
króna kröfu sína á Hannes vegna
dóms í meiðyrðamáli í Lundúnum,
sem féll Jóni í vil.
Jón höfðaði meiðyrðamál sitt í
Lundúnum og eftir því sem næst
verður komist var þar stefnt vegna
ummæla Hannesar Hólmsteins
um Jón á heimasíðu Hannesar hjá
Háskólanum, en hann hafði upp-
haflega viðhaft þau á ráðstefnu nor-
rænna blaðamanna f Reykholti 1999.
Þar vék Hannes að fjölmiðlaveldi
Jóns og kvað hann upprunalega hafa
auðgast á viðskiptum handan hins
löglega. Jón hóf undirbúning mála-
ferla hér á landi vegna ummælanna
á sínum tíma, en féll frá þeim.
Eftir að Jón fluttist búferlum til
Lundúna hóf hann málaferlin á ný
þar, á þeirri forsendu að ummælin
væru flutt heimsbyggðinni allri með
birtingu þeirra á vefnum. Ekki ligg-
ur fyrir með hvaða hætti Hannesi
var stefnt fyrir dóminn, en hann tók
ekki til varna og féll útivistardómur
gegn honum síðastliðið vor.
Breskir dómar eru aðfararhæfir
hér á landi og mun Jón hafa reynt
innheimtuaðgerðir hjá Hannesi án
árangurs. Heimildarmenn Blaðsins
telja að hann muni því óska fjár-
náms hjá sýslumanni á morgun.
Jón Ólafsson varðist allra frétta
þegar Blaðið náði tali af honum,
en kvað mál skýrast á fimmtudags-
morgun. Ekki náðist í Hannes Hólm-
stein Gissurarson vegna málsins. ■
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Blalil/SteiiiarHiigi
Fleiri göng, færri kanín-
ur og meira heimabrugg
Þingmenn Frjálslyndaflokksins kynntu ígœrþingmál sín. Mest áhersla er lögð á samgöngu
og sjávarútvegsmálin, en einnigeru á döfinni nokkur „léttari“ mál.
„Við erum brattir í þingflokknum
og höfum aldrei verið öflugri,“ segir
Magnús Þ. Hafsteinsson, þingmað-
ur Frjálslyndra. „Það sem okkur er
helst hugleikið eru samgöngumál,
sjávarútvegs- og byggðamál, ásamt
málefnum aldraðra. Við ætlum okk-
1« ■»*■**» 1 rn
V# lllllUWkkll
Jám og gler ehf - Skútuvogur 1H
Barkarvogsmegin - S: 58 58
www.jarngler.is
Listmálaravörur
ur t.d. að leggja fram þingsályktun
um að öldruðum verði tryggður
lágmarkslífeyrir. Aldraðir eru senni-
lega skattpíndasti þjóðfélagshópur-
inn í dag og sú staðreynd er auðvitað
fyrir neðan allar hellur. I samgöngu-
málum viljum við endurskoða allar
eldri hugmyndir um jarðgöng og
gera nýja áætlun. Jarðgangafram-
kvæmdir hafa gengið mjög vel hér
á landi upp á síðkastið, og þetta er
orðið einfaldara og ódýrara en áður
var. Svo ekki sé minnst á öryggisat-
riðið, þar sem aðgerðir af þessu tagi
fækka slysum stórlega. Við viljum
gera áætlun, t.d. til 20 ára þar sem
þessi mál yrðu einfaldlega kláruð.
Við viljum einnig að ríkið taki yfir
rekstur Hvalfjarðaganga til þess að
laga þá skökku samkeppnistöðu
sem myndast með þessum vegtolli á
svæðinu fyrir norðan borgina á með-
an engir vegtollar eru sunnan megin
og allar samgöngubætur eru kostað-
ar af ríkinu. Svo viljum við gefa sjáv-
arbyggðunum aukna innspýtingu
með því að gefa þeim kost á að nýta
sér þessa auðlind sem fiskurinn í
sjónum er. Þetta höfum við talað
um árum saman en það sem er nýtt
er þetta frumvarp sem við ætlum að
leggja fram um að öllum verði leyft
að veiða með handfærum og nota til
þess tvær rúllur á mann.“
Kanínufrumvarpið
Flokkurinn hyggst einnig leggja
fram frumvarp gegn lausagöngu
kanína. „Ég vill að kanínuhald verði
bannað í eyjum og við strendur
landsins. Við sjáum það til dæmis í
Vestmannaeyjum hvernig kanínan
er að eyðileggja búsvæði lundans
með því að taka sér bólfestu í holum
hans. Þetta er alvarlegt mál og það
yrði til að mynda ómetanlegt tjón ef
kanínurnar næðu að fjölga sér í Flat-
ey á Breiðafirði." Frjálslyndir ætla
líka að leggja fram frumvarp um
að leyfa svokallað „þjóðlegt“ heima-
brugg sem snýst um að gefa fólki
kost á að brugga vín eins og rabba-
baravín eða berjavín. „Þarna erum
við að tala um léttvín úr íslenskum
náttúruafurðum. Það er ótækt að
þetta skuli vera bannað í dag en
ég hef nú vonir um að þetta fari í
gegn í vetur því við höfum fengið
þingmenn úr öllum flokkum'til að
standa að frumvarpinu.“ ■
Gestahús
24 fm gestahús,
byggð úr gegnheilum
harðvið
Húsin eru seld á þremur byggingastigum.
Verð frá kr. 955.000 m/vsk.
Húsin verða tilbúin til afhendingar feb.-mars 2006.
5 ára reynsla á (slandi.
Sjá nánar heimasíðu okkar: www.kvistas.is
Jóhannes Sími 482 2362
Kvistás s/f Selfossi.
kvistas@simnet.is
Heiðskírt 0 Léttskýjaö ^ Skýjaö £ Alskýjaö
Rigning, lltilsháttar Rlgnlng 9 9 Súld Snjókoroa
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vin
Algarve
Dublin
Glasgow
17
21
18
19
18
16
15
16
17
23
21
16
17
23
13
19
12
12
18
25
13
14
9
■jj Slydda Snjóél r^j
//
to/A
P
Skúr
///
3°
er
///
///
///
'//
///
// /
///
6°///
Ámorgun
T '/'/
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands