blaðið - 05.10.2005, Qupperneq 6
6 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 blaöiö
Atvinnu-
leysi eykst á
Akureyri
Atvinnuleysi á Akureyri jókst
gífurlega í gær þegar allir
starfsmenn Slippstöðvarinnar
skráðu sig á atvinnuleysisskrá.
Starfsmennirnir voru um eitt
hundrað talsins og að sögn
forstöðumanns svæðismiðlunar
hafa aldrei jafnmargir skráð sig
á listann í einu lagi. Auk þess
að skrá sig á atvinnuleysisskrá
skrifuðu starfsmennirnir undir
umboð sem gefur stéttarfélög-
um þeirra og lögmanni leyfi til
að krefjast vangoldinna launa
í þrotabú Slippstöðvarinnar.
Þá fengu þeir að vita hver
réttur þeirra er í stöðunni.
Nýjar vörur
íúrvali
Opnunartími
mán -fös. 10-18
laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
200 Kópavogi
Sími 5544433
Tæplega 10% starfa í fisk-
vinnslu munu hverfa á árinu
Fiskiðnaðurinn stendur illa ígóðœrinu og sífelltfleiri missa störfsín.
Fólkflyst aflandsbyggðinni þarsem önnur störfbjóðast í takmörkuðum mœli.
Þingeyri
ísafjörður
^^Súðavík
Bíldudalur
Tálknafjörður Blönduós'
Patreksfjörður
Ólafsfjörður
® Húsavfk
^ Akureyri
Keflavík
Hveragerði
©^Selfoss
0 O Hella
Eyrarbakki
Reykjahlíð
1 Borgarfjörður
eystri
Reyðarfjörðuj^
Stöðvarfjörður(J
Djúpivogur ö
i Hrauneyjar
l Kirkjubæjarklaustur
Vestmannaeyjar
Kortið sýnir dreifingu á þeim
fyrirtækjum sem sagt hafa
upp starfsfólki í miklum mæli
undanfarin þrjú ár. Greiniiegt
er að landsbyggðin hefur
farið illa og þá sérstaklega
fiskvinnsla. Tekið skal fram að
listinn er ekki tæmandi.
Undanfarin ár hafa æ fleiri fyrir-
tæki á landsbyggðinni lagt upp laup-
ana eða dregið saman í rekstri með
tilheyrandi uppsögnum. Aðallega er
um fyrirtæki í fiskiðnaði að ræða en
þó er nokkuð um gamalgróin fyrir-
tæki í öðrum rekstri. Þensla í land-
inu, í kjölfar stóriðju á Austurlandi,
hefur þó orðið til þess að eru störf í
boði fyrir flesta þá sem missa störf
sín og er atvinnuástand almennt
gott, burtséð frá ástandinu í fiskiðn-
aði. Arnar Sigurmundsson, formað-
ur Samtaka fiskvinnslustöðva, telur
að í lok ársins eigi um 500 manns
eftir að tapa störfum sínum í fiskiðn-
aði hérlendis. Þetta samsvarar tæp-
lega 10% allra þeirra sem starfa við
iðnaðinn missi störf sín. Hann segir
að hagstjórn landsins komi niður á
landsbyggðinni þar sem fiskiðnaður
sé uppistaða atvinnuvegs.
Áhyggjur af þróuninni
AðalsteinnÁrniBaldvinsson.formað-
ur Verkalýðsfélags Húsavíkur, segir
að án stóriðjuframkvæmdanna væri
slæmt ástand á Norður- og Austur-
landi. Hann hefur þó áhyggjur af þvf
hvernig muni fara þegar færri störf
bjóðast við Kárahnjúka og verkefn-
ið þar klárast. „Það hefur vissulega
orðið samdráttur í ákveðnum grein-
um og þá sérstaklega í fiskiðnaði. Ef
framkvæmdirnar væru ekki fyrir
austan væri ástandið slæmt hérna.“
Aðalsteinn segir að ferðaþjónusta
hafi bjargað mörgu auk þess sem
byggingariðnaður standi mjög vel.
Vantar þjónustustörf
á landsbyggðina
Vestfirðir hafa farið illa út úr þróun
krónunnar og hafa fjölmörg fyrir-
tæki þurft að segja upp starfsfólki
sínu. Til dæmis er nú engin fisk-
vinnsla í Bíldudal og erfitt að henda
reiður á hversu mörg fyrirtæki hafa
orðið gjaldþrota á síðustu árum.
Pétur Sigurðsson, formaður Verka-
lýðsfélags Vestfjarða, segir að þrátt
fyrir þetta sé ástand í atvinnumál-
um á Vestfjörðum ágætt. Þenslan
i samfélaginu skapi líka tækifæri á
Vestfjörðum. „Hér hefur stórt verk-
takafyrirtæki náð að dafna og fær
verkefni víða um landið meðan aðr-
ir eru uppteknir fyrir austan. Svo
keypti Marel rafeindafyrirtæki og
í stað þess að flytja reksturinn suð-
ur þá var störfum fjölgað hér á Vest-
fjörðum. Auðvitað er alltaf slæmt
þegar störf hverfa en verra er að
hér fjölgar ekki fólki. Þjónustustörf
flytjast til Reykjavíkur þegar þau
gætu vel verið hérna og svo hrópar
fólk húrra þegar ein staða flyst hing-
að aftur." Pétur segir að Hagstofan
gæti til dæmis vel verið starfrækt á
Vestfjörðum.
Sjaldan eða aldrei hefur verið
minna atvinnuleysi á íslandi og
segja fulltrúar atvinnumála að um-
sóknum um atvinnuleyfi fyrir út-
lendinga staflist upp, svo mörg séu
þau. Það er þó ljóst að hátt gengi
krónunnar hefur haft gífurleg áhrif
á fiskiðnað sem sýnir sig í því að fyr-
irtæki þurfa að draga úr starfsemi
eða einfaldlega pakka saman. ■
Frjálslyndir:
Staða eiginmanns
Sólveigar gerir
hana óhæfa
Þingmenn Frjálslynda flokksins
eru óánægðir með kosningu Sól-
veigar Pétursdóttur til embættis
forseta Alþingis.
„Ég held að það verði nú engir eftir-
málar af þessu í bili,“ segir Magnús
Þ. Hafsteinsson þingmaður Frjáls-
lynda flokksins. Eg hefði viljað sjá
þessa kosningu öðruvísi þannig að
við hefðum getað sagt nei. En mál
olíufélaganna er auðvitað í rann-
sókn hjá ríkislögreglustjóra, og við
bíðum bara eftir þeirri niðurstöðu."
Magnús telur ljóst að vegna Kristins
Björnssonar, eiginmanns Sólveigar,
sem muni sennilega hafa stöðu grun-
aðs manns í einu stærsta efnahags-
brotamáli sögunnar gangi það ekki
að hún gegni stöðu forseta Alþingis.
„Hún er að koma fram fyrir hönd
þjóðarinnar, og þá er maki hennar
yfirleitt með í för. Það gengur bara
ekki að þegar hingað koma erlendir
þjóðhöfðingjar, og fullt af erlendum
fjölmiðlamönnum, þá sé hugsanleg-
ur afbrotamaður með í för forseta
Alþingis. Hvergi í hinum vestræna
heimi væri þetta talið boðlegt, að
þú værir með mann í lögreglurann-
sókn, og sem hugsanlega væri búið
að ákæra, að hann væri að koma
fram við svona aðstæður, fyrir hönd
sinnar þjóðar.“ Magnús tekur fram
að hann hafi ekkert persónulega
á móti þessu fólki: „En þetta bara
gengur ekki upp og hvergi annars-
staðar væri þetta leyft." ■
Drykkjarfontur við
Norðurströnd
Bjorn Stefánsson verkefnastjori ahaldahússins á Seltjarnarnesi stendur hér stoltur hjá
nýjum drykkjarfonti, sem settur hefur verið upp á Norðurströnd á Seltjarnarnesi. Font-
ínum verður vafalaust vel fagnað af þyrstum göngugörpum og skokkurum, sem njóta
þessarar fallegu leiðar dag hvern. ®
Alla virka daga
HÁDEGISVERÐARTILBO
Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Frá 11.00 -13.30
Tilboðln gilda ekki með heimsendingu Sóltún 3 S 562 9060 Bæjarllnd 14-16 S 564 6111
HI
mEKONC
t h a i I e n s h m a t s t o f a