blaðið - 05.10.2005, Síða 12
421! TÖLVUR OG TÆKNI
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER'2005 < blaðfö
Þó Xbox tölvunni hafi ekki
tekist aö laða til sína leikjafram-
leiðendur eru forsvarsmenn
Microsoft fyrirtækisins bjartsýnir
á að tölvan muni samt sem áður
hljóta góðar undirtektir hjá
tölvuleikjaspilurum þegar fram
fsækir.
Leikjaframleiðendur sýna lítinn áhuga
Xbox 360 veldur
vonbrigðum
Á þeim fimm mánuðum sem liðn-
ir eru frá því að Microsoft kynnti
frumgerðina að hinni nýju Xbox
360 hefur fyrirtækinu ekki tekist
að vekja áhuga leikjaframleið-
enda. Þetta hefur valdið töluverð-
um áhyggjum enda lítil von að
leikjatölvan muni seljast vel nema
fyrir sé gott úrval leikja. Micro-
soft leggur þvi allt í sölurnar í
kynningu á vélinni og vonast til
að það muni skila sér í auknum
áhuga.
Margir segja að hin upprunalega
Xbox tölva, sem kom á markað árið
2001, eigi leiknum Halo velgengni
sína að þakka. Leikurinn var gíf-
urlega vinsæll og olli því að tölvan
seldist mun hraðar en menn höfðu
AEG
ORMSSON
HIIM FULLKOMNA
ÞVOTTAVÉLA ÞRENNA
Þessar frábæru AEG vélar á einstöku tilboðsverði
á meðan birgðir endast.
ÍSLENSKT STJÓRNBORÐ - ÍSLENSK NOTENDAHANDBÓK ■ 3JA ÁRA ÁBYRGÐ
Æ
r' ti20l
AEG
Lavamat 76820
1600/1200/1000/600 sn.
6 kg.
TILBOÐSVERÐ:
KR. 90.000,-
12 m '
?--■ i
'K
T
Lavamat 74639
1400/1200/900/700/400 sn.
5,5 kg.
TILBOÐSVERÐ:
KR. 74.900,-
AEG ^
Lavamat 52820
1200/1000/600 sn.
6 kg.
TILBOÐSVERÐ:
KR. 69.900,-
Þvottavélar, þurrkarar og uppþvottavélar
á TILBOÐSVERÐI!
1200 i
1000 <
400 <
SKOISTOfP «
SKOIUN ÞVOtlUR TtMAVAL ÞVOrtAIÍNU
• FORÞVOTTUR
< AOAIÞVOIÍUR
< SKOLUN
* AUKASKOtUN
» VtNOING
AOUA CONTROl
fO»- SlfnA VIOKVAMUK SIAKT
ÞVOTTUR ÞVOTTUR ÞVOTTUR STOPf
ÖftKUSPAftNAOUft | AOALÞVOTTUR ° * • \ \ •* #4O-ó0 BtANOAO í V40 • 30
(STUTT VINOINO^ j I
VtNOtNG * VAINStOSUN * / SKOLUN í
ÖT KAU* \ uu 30* \ SftKI 40 • /•*0 STftAU- I /so win H'*40 40i|*S_ STUTT STftAUTKÍTT
VKÍKVAMI
mmrrif
ÍSLENSKT
STJOBNBORÐ
RdDIO^
FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SlMI 461 5000
ORMSSON
LAGMÚLA 6
SMÁRALIND
SIMI 530 2800
SÍMI 530 2900
UMBOÐSMEIUIU UM LAIUD ALLT
...........mn
r a www.ormsso
upprunalega gert ráð fyrir. Þetta
vilja menn endurtaka með hinni
nýju tölvu en því miður virðist tak-
markaður áhugi vera fyrir hendi.
Meginástæðuna telja menn vera að
Microsoft hafi ekki tekist að sýna
fram á að hin nýja tölva bjóði uppá
eitthvað byltingarkenndara en nú-
verandi leikjatölvur. Samkvæmt Sid
Shuman, framleiðanda Games.net
sem er vefsíða fyrir tölvuleikjaspil-
ara, eru erfiðir tímar framundan
fyrir Microsoft. „Microsoft styrkist
venjulega við mótlæti. En þeir verða
hins vegar að sannfæra menn um að
þessi tölva geti ráðið við leiki sem
aðrar leikjatölvur geta ekki. Þeir
eiga eftir að sýna fram á betri grafík
en gengur og gerist og raunverulegri
vinnslu sem leyfir manni nánast
ótakmarkaða möguleika í leikjum,“
segir Sid.
Nokkrir leikir á leiðinni
Ekki er þó öll von úti fyrir Micro-
soft sem í þessari viku mun kynna
nokkra nýja leiki sem sérstaklega
hafa verið hannaðir með Xbox 360
í huga. Leikir eins og Gears of War,
Kameo og Perfect Dark Zero. Að
auki hefur fyrirtækið hafið samstarf
við fyrirtækið Real Time Worlds um
framleiðslu á leiknum Crackdown.
Margir af helstu framleiðendum
þessa leiks eru þeir sömu og bjuggu
til hinn vinsæla leik Grand Theft
Auto. Að auki hefur fyrirtækið Ubi-
soft tilkynnt að þeir muni gefa út
Tom Clancy’s Splinter Cell sérstak-
lega fyrir Xbox á næsta ári. Micro-
soft menn eru því enn bjartsýnir á
að þeim muni takast að snúa vörn í
sókn og að Xbox muni áfram veita
Playstation 3 verðuga samkeppni.
Gulu blettirnir á myndinni sýna þau
svæði í Evrópu sem búið er að færa inn í
forritið.
Athyglisvert forrit
Jörðin und-
ir smásjá
Leitarsíðan Google er nú að þróa
forrit sem nefnist Google Earth. For-
ritið, sem hægt er að nálgast ókeyp-
is á netinu, býður uppá útsýni yfir
jörðina séð frá geimnum. Notandi
getur flakkað heimshorna á milli
og stækkað ákveðið svæði það mik-
ið að hægt er að greina einstök hús
og bíla. Fyrir aðeins tveimur vikum
fann t.d. ítalskur notandi fyrir tilvilj -
un rústir rómverskrar villu rétt hjá
heimili sínu með hjálp forritsins.
Forritið sjálft er enn í vinnslu og
t.d. er aðeins hægt að stækka upp
ákveðna hluta Islands með tiltölu-
legri nákvæmni. í hverri viku eru
nýjum svæðum bætt inn í forritið
og eldri svæði eru uppfærð eins og
kostur gefst. í dag má þó sjá gríð-
arlega stórt svæði, bæði borgir og
sveitir í mismikilli upplausn. Mynd-
irnar eru allt að þriggja ára gamlar
og teknar jafnt af gervihnetti sem
og úr flugvélum. Hægt er að nálgast
ókeypis útgáfu af forritinu á netsíð-
unni http://earth.google.com en þar
gefst mönnum einnig kostur á að
kaupa forritið sem býður uppá auka
valmöguleika eins og t.d. þrívíðar
myndir og fleira. ■