blaðið - 05.10.2005, Qupperneq 13
blaöió MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005
TOLVUR OG TÆXNI
;;
1
B
Mengunarlaust farar-
tœki
Loftknú-
inn bíll
Kannski allir bílar í framtíðinni verði
knúnir áfram af loftinu einu saman
Franska bílafyrirtækið MDI
kynnti á dögunum nýja bíla
sem að sögn framleiðenda
munu hjálpa til í baráttunni
gegn vaxandi mengun í stór-
borgum. Um er að ræða bíla
sem eru knúnir áfram nánast
af þéttu lofti einu saman. Þó
hugmyndin á bakvið tæknina
sé ekki ný af nálinni hefur fyr-
irtækið eytt síðustu 12 árum í
rannsóknir á því hvernig nýta
megi hana til að knýja áfram
bifreiðar. Niðurstaðan eru tvær
tegundir bifreiða, annars vegar
Minicat og hins vegar Citycat.
Citycat bifreiðin er sérhönnuð
til notkunar innan þéttbýlis og
vinnur einungis á loftvélinni
einni saman. Minicat bifreiðin
er hönnuð til notkunar utan
þéttbýlis og notast einnig við
hefðbundna bensínvél. Báðar
hafa bifreiðarnar lengri drægni
en t.d. rafmagns eða vetnisbíl-
ar eða um 2000 km og geta náð
allt að 50 km hámarkshraða.
Það er von framleiðenda að bíl-
ar af þessari gerð munu njóta
vinsælda í þeim borgum þar
sem mengun er nú þegar vax-
andi vandamál. ■
PD100 er fjölnota tæki sem er meira
en bara venjulegur MP3 spilari.
Fyrir þá sem vilja meira
Allt á ein-
um stað
PD100 frá fyrirtækinu MPIO
er hreint út sagt frábært tæki
sem býður uppá fjöldan allan
af möguleikum sem heíðbund-
inn MP3 spilari ræður ekki við.
Fyrir utan að geta spilað MP3
lög er mögulegt að nota PD100
til að hlusta á útvarpið. Einnig
er hægt að nota tækið sem hefð-
bundið upptökutæki með því
að notast við innbyggðan hljóð-
nema. Að auki er líka hægt að
taka upp stafrænar útvarpssend-
ingar með tiltölulega einföldum
hætti. Tækið sameinar því kosti
MP3 spilara, upptökutækis og
útvarpstækis aukþess að vera
handhægt. PD100 hefur innra
minni uppá 512 mb en er, enn
sem komið er, aðeins selt í
Kóreu og á Bretlandseyjum. ■
Verndaðu Ipod spilarann
Skemmtileg
hulstur
Það nýjasta á markaðnum eru sér-
stök hulstur sem hægt er að setja
Ipod spilara í. Ikitty hulstrið er hluti
af hinni svokölluðu Iguy fjölskyldu
en einnig er hægt að kaupa hulstur
sem líkjast manni. Hulstur þessi
gera margt annað en að gleðja augað.
Þau vernda Ipod spilarann fyrir risp-
um og höggum en einnig er hægt að
nota þau sem stand. Ikitty hulstrið
er sérstaklega hannað til að líkjast
ketti. Með plastrófu sem hægt er að
hreyfa að vild og eyru sem stingast
útí loftið. Ikitty hulstrið hentar öll-
um 4G Ipod spilurum og er einnig
sveigjanlegt þegar kemur að því að
hlaða tækið. ■
Ikitty hulstrið er skemmtileg nýjung fyrir
þá sem vilja lífga uppá Ipod spilarann
sinn.
í FLUGIÐ
Við komum þér og þínum
örugglega í flugið á innanbæjartaxta
og sækjum ef þú vilt.
Nú kemstu með Hreyfli/Bæjarleiðum milli Reykjavíkursvæðisins
og flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á innanbæjartaxta. Hvenær
sólarhringsins sem er, flóknara er það ekki. Þetta er nefnilega
orðið hagstæðara en margan grunar!
Það kostar sitt ef þú ferð á eigin bíl; bensín, bílastæðagjald auk
heilmikils umstangs við að leggja eða geyma bílinn.
Þegar margir ferðast saman, 4-8 manns, er þetta
engin spurning.
Og á leiðinni heim geturðu slakað á og látið það eftir
þér að þiggja léttar veitingar um borð í flugvélinni.
Við sjáum um aksturinn
- á innanbæjargjaldi. X
Við vekjum þig, efþú vilt, áður en við sendum bílinn.
Dagtaxtar eru frá 8.00 til 17.00 virka daga og kvöld- og næturtaxtar frá 17.00 til 8.00
I-
OTTÓ AUOLÝSINGASTOFA