blaðið - 05.10.2005, Síða 16
Ofgott til að vera satt
Nína Dögg Filippusdóttir, leikkona, kom nýlega frá Moskvu en þar vann uppsetning Vesturports á leikritinu Brimi eftir
Jón Atla Jónasson verðlaun sem besta leiksýning á New-Drama leiklistarhátíðinni.
Nína Dögg Filippusdóttir.„Ég hef alltaf litið á starf mitt sem lið í því að hjálpa fólki en Blaðil/SteinarHugi
ekki bara segja því sögu og hafa ofan af fyrir því."
„Það var afar vel tekið á móti okkur
en allt gekk mjög hægt fyrir sig. All-
ir vildu allt fyrir okkur gera en það
tók langan tíma og sumir í hópn-
um voru að missa þolinmæði með
Moskvubúum," segir Nína Dögg.
„Við sýndum Brim fyrir fullu húsi
og það var mikil stemmning og við
bjuggumst ekkert sérstaklega við að
vinna. Verðlaunin voru í rauninni
þau að fá að taka þátt, hitt var bara
bónus.“
Þessa dagana er Nína Dögg önn-
um kafinn við æftngar á Woyzeck
eftir Georg Biichner. Leikritið verð-
ur sýnt í Barbican Center í London
12. -22. október en frumsýning á Is-
landi verður 28. október í Borgarleik-
húsinu. Nína Dögg fer með hlutverk
Maríu, eiginkonu Woyzeck, sem
er vannærð og óhamingjusöm og
heillast af öðrum manni sem henni
finnst veita sér útgönguleið frá ein-
angruninni sem hún býr við.
Dýrmæt minning
„Það leynist ótrúlega margt í þessu
verki,“ segir Nína Dögg um leikritið.
„Maður er agndofa vegna þess hvern-
ig höfundinum tekst að orða setn-
ingar um hið mannlega eðli. Þetta
er verk sem maður meðtekur með
hjartanu. Verkið fannst eftir dauða
Buchner sem lauk ekki við það. Það
byggist upp á 18 senum, sumar eru
bara hálf blaðsíða. Þegar verkið
fannst var það ekki í réttri tímaröð
þannig að í gegnum tíðina hefur leik-
húsfólk leikið sér að því að raða því
saman. Þess vegna má segja að hver
uppsetning á Woycek sé nýtt leikrit.
Það er gaman að takast á við þetta
verkefni því maður þarf að vanda
sig mjög og gera brú að leikritinu
svo áhorfandinn geti fylgt sögunni.“
Tónlistin í verkinu er eftir Nick
Cave, eins og margoft hefur komið
fram í fréttum. „Þetta er ótrúlega
falleg tónlist og hentar verkinu vel.
Það var einstaklega gaman að fylgj-
ast með því af hversu miklum metn-
aði Nick vann verk sitt,“ segir Nína
Dögg.
Nína Dögg segir boðið um að
sýna Woyzeck í Barbican Center í
London vera ævintýri en fyrir ári
fór hún ásamt leikhópi sínum, Vest-
urporti, til London með hina róm-
uðu sýningu Rómeó og Júlíu. „Það
er frábært að vera boðin aftur og
það ásamt hóp sem samanstendur
af bestu vinum sínum. Þetta er ómet-
anleg reynsla og dýrmæt minning í
minningabókina. Eiginlega of gott
til að vera satt,“ segir Nína Dögg.
I mat hjá Vanessu Redgrave
Á sýningum á Rómeó og Júlíu í Lond-
on komu fjölmargir heimsþekktir
leikarar við sögu og stigu stutta
stund á svið með leikhópnum. Þar
á meðal voru Vanessa Redgrave,
Dereck Jacobi og Timothy Dalton.
Vanessa lét sér sérlega umhugað um
hópinn.
„Vanessa kom fjórum sinnum á
Rómeó og Júlíu. Hún bauð okkur
öllum heim til sin í mat þar sem
hún stappaði sjálf kartöflumúsina
fyrir okkur. Eftir matinn sátum við,
spiluðum á gítar og sungum á þessa
litla og fallega heimili hennar,“ segir
Nína Dögg. „Vanessa er yndisleg og
falleg kona, hlý og góð. Hún er líka
mikill og ástríðufullur listamaður.
Á síðustu sýningu okkar kom hún
baksviðs og var hágrátandi því hún
hafði hrifist svo af sýningunni. Við
urðum svo snortin að við fórum
næstum því líka að gráta
Ég held að það sé hollt að fara út
úr umhverfi sínu og kynnast öðru
fólki og hvernig það vinnur. í Young
Vic hittum við til dæmis strák sem
er á svipuðum aldri og við. Hann
er frá Palestínu og við erum allaf í
góðu sambandi við hann. Við erum
að reyna að finna tíma til að vinna
að sameiginlegu verkefni. Það er
svo margt sem er ólíkt í menningar
heimi okkar en samt margt svo líkt
því við erum auðvitað öll manneskj-
ur með tilfinningar. Þetta er það
skemmtilega við að ferðast. Maður
hittir fólk alls staðar að með öðru-
vísi sýn á heiminn. Maður lærir mik-
ið af því.“
Breyskleiki manneskjunnar
Nína Dögg er 31 árs. Árið 2003 var
hún valin „rísandi stjarná' sem er
hluti af dagskrá kvikmyndahátíðar í
Berlín. Þegar hún er spurð hvort hún
hafi snemma ákveðið að verða leik-
kona segir hún: „Löngunin blundaði
í mér allt frá því ég var lítil stelpa en
það var ekki fyrr en í menntaskóla
sem ég lét drauminn rætast og steig
á svið í skólaleikritum. Síðan fór ég
í Leiklistarskóla íslands. Mér finnst
gaman að setja mig í spor ólíkra per-
sóna og breyskleiki manneskjunnar
vekur áhuga minn. Ég hef alltaf litið
á starf mitt sem lið í því að hjálpa
fólki en ekki bara segja því sögu og
hafa ofan af fyrir því. Á ákveðnum
tímapunkti í leiklistarnáminu hugs-
aði ég með sjálfri mér: Hvað er ég að
gera? Ég hefði átt að fara í hjúkrun
svo ég gæti hjálpað fólki á áþreif-
anlegan hátt. Amma mín sagði að
þetta væri vitleysa, í leikhúsinu gæti
ég örugglega snert við mörg hundr-
uð hjörtum á einu kvöldi. Eg hugsa
oft um þessi orð hennar.“
Nína Dögg hefur leikið í kvik-
myndunum Villiljós og Hafinu.
,Ég hélt að kvikmyndaleikur ætti
ekki vel við mig og í Leiklistar-
skólanum sagðist ég alltaf myndu
velja leikhúsið og eingöngu leikhús-
ið,“ segir hún. Það fórþó ekki svo því
þegar hún var á þriðja ári í Leiklist-
arskólanum bauð Ragnar Bragason
henni hlutverk í Villiljósum og hún
sló til. Seinna lék hún í mynd Baltas-
ars Kormáks, Hafinu. Nú er Nína að
ljúka við leik í kvikmynd sem Vestur-
port gerir ásamt Ragnari Bragasyni.
„Vinnutitill verksins er Kvikindi.
Við erum sex sem leikum í henni
og skrifuðum öll okkar sögu. Ragn-
ar tók þær síðan og púslaði saman í
handrit,“ segir Nína Dögg. „Ég ýtti
þvi frá mér í nokkurn tíma að skrifa.
Þegar ég fæ hugmyndir finnst mér
alltaf að ég verði að láta einhvern
annan skrifa þær. En þegar ég byrj-
aði að skrifa tók það enga stund. Ég
skrifaði ævisögu ungrar konu. Allar
sögurnar fjalla um íslenskan sam-
tíma og fólk sem er að takast á við
lífið. Upphaflega átti þetta að vera
ein bíómynd en þær verða tvær. Nú
stefnum við í Vesturporti að því að
gera eina til tvær kvikmyndir á ári.“
Næg verkefni
Næst á verkefnaskránni, á eftir
Woyzeck, er að leika í Pétri Gaut
eftir Ibsen í leikstjórn Baltasars Kor-
máks. „Það verður mjög spennandi,
því ég hef aldrei unnið með honum
að sviðsverki, og mér fannst frábært
að vinna með honum í Hafinu. Eft-
ir það er hlutverk í leikritinu 8 kon-
ur í leikstjórn Eddu Bachmann. Ég
hlakka mikið til að vinna undir
stjórn Eddu,“ segir Nína Dögg. „Ég
vann með henni i Kryddlegnum
hjörtum og hef mikið af henni lært.
Þarna leik ég með stelpum sem ég
held að verði mjög gaman eftir að
hafa unnið svo mikið með strákum.
Ég á samt eftir að sakna strákanna
og það verður gott að koma heim
til þeirra aftur. Og vonandi verður
haldið áfram að gera meira stelpu-
grín fyrir Stöð 2, því það er ótrúlega
gaman að vera partur af því. Stelpur
eru nefnilega mjög fyndnar.“
kolbrun@vbl.is
Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu
ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem
hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða
á fasteignathjonusta@landsbanki.is
Landsbankinn
Banki allra landsmanna
410 4000 landsbanki.is