blaðið

Ulloq

blaðið - 06.10.2005, Qupperneq 16

blaðið - 06.10.2005, Qupperneq 16
16 I MATUR FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 blaöiö <fiSS&r Stálpottasett á góðu verði Brúðhjónalistar og gjafakort búsáhöld KRINGLUNNI Sími: 568 6440 I busahold@busahold.is Kaffi mánaðarins September - 2005 Guatemala - Shum Capel Skuggakaffi Eitt best geymda leyndarmál Guatemala. Hágæðakaffi sem lítið er þekkt vegna fjarlægðar og tungumálaerfiðleika ræktenda. í skugga f? Skuggakaffi vex / hægar og gefur því ' bragðmeiri baun. Kaffið hefur líflega ávaxtasýrni mikla fyllingu og mjög gott jafnvægi. Nú á frábæru kynningarverði í öllum verslunum Te og kaffi. 250 gr. 615,- kr Kaffihús: Laugavegi 24 Smáralind Verslanir: Kringlunni Smáralind Laugavegi 27 Suðurveri “O” TK x k.-\m Holltoggott grœnmetisbutf Grænmetisbuff af ýmsum gerð- um er hægt að fá bæði frosin í matvöruverslunum og á græn- metisstöðum víðs vegar. Hins vegar er ekki mikið mál að búa til buff og geyma þau í frysti, taka svo út eftir hentisemi. Hér er ein góð uppskrift af góðu grænmet- isbuffi. Hráefni: 8 soðnar kartöflur 1/2 bolli grænar baunir 1/2 bolli saxaðar gulrætur 1/2 bolli saxað hvítkál 1/2 bolli saxað blómkál 1/2 bolli saxaðar rauðrófur 4 matskeiðar saxaðar kasjúhnetur 4 grænir chillipipar 2 teskeiðar garam masala duft Um það bil 4 sentimetrar af engifer- rót 4 teskeiðar sítrónusafi 4 matskeiðar maíssterkja Brauðmylsna eða semolina til að hjúpa buffin Salt og sykur til að bragðbæta Aðferð: 1. Stappið kartöflurnar. Gufu- sjóðið grænmetið þar til það er orðið meyrt. 2. Merjið chilipiparinn og engifer- ið þar til það er orðið að mauki. 3. Sigtið allt vatn frá grænmetinu. Blandið saman kartöflunum, grænmetinu og grænu baunun- um. Bætið svo kasjúhnetunum, salti, garam masala duftinu, chili- og engifer maukinu, sí- trónusafa og sykrinum saman við. Bætið svo maíssterkjunni eða venjulegu hveiti við. Bland- ið þessu öllu vel saman með höndunum. Setjið svolitla olíu á hendurnar til að deigið klíst- rist ekki við þær. 4. Meðan þið hnoðið deigið, hitið olíu á pönnu, (jurtaolíu eða ól- ívuolíu) einnig má djúpsteikja buffin í djúpsteikingarpotti ef vill. Búið til litlar bollur úr deiginu og pressið þær örlitið saman með lófanum. 5. Búið til þunnt deig úr hveiti og vatni. Dýfið hverju buffi upp úr deiginu og látið leka vel af. Veltið þeim síðan upp úr brauð- mylsnunni eða semolina. Einn- ig má nota þeytt egg í staðinn fyrir hveiti og vatn. 6. Steikið buffin. Borðið strax með salati og léttri sósu, til dæmis úr súrmjólk eða sýrðum rjóma. Frystið afganginn. ■ Stefán Guðjónsson, Sommelier: ítölsk vinlög uðu vínframleiðendur að blanda eins og þeim sýndist og hunsuðu lögin, og til að sýna fram á að vín- ið væri betra en lögin segðu til um var þetta vín kallað „Super Tuscany” vín. Þó að lögin séu hægt og rólega að minnka kröfurnar (t.d. er Sassic- ia búið að fá sitt eigið DOC), þá eiga þeir ennþá langt í land. Hér fyrir neðan er stutt lýsing á hvaða lög eru í gildi núna, en best er að hafa í huga að vínframleiðendur skipta jafn miklu máli, einnig hefur veður- far gríðarleg áhrif á árganga. Vino da Tavola =Borðvín engar kröfur gerðar. I.G.T. (Indicazone Geografica Tip- ica) = Nýtt, byrjaði 1992. Það þarf að standa á flöskunni, svæði t.d. Tuscany eða Sikiley, árgangar, hvar þetta er átappað og fl. DOC = Svipað og A.C. í Frakk- landi, þarf að standast kröfur um svæðin, hvaða vínþrúgur eru notað- ar, hve marga hektólítra per hektar- ar og framvegis. DOCG = Eins og DOC en verður að fara í gegnum sérstaka smökkun- ar deild fyrir samþykki og koma frá sérstöku svæði t.d. Chianti Classico. Á næstunni verður fjallað um ítal- íu og ítölsk vín, en áður en byrjað verður á því er við hæfi að fjalla aðeins um ítölsk vínlög. ítölsk vínlög eru vægast sagt flókin og ósanngjörn. Þó að lögin væru upphaflega sett til að aðskilja bestu vínin á svæðunum frá venju- legum og ódýrum vínum, þá voru skilyrðin svo ströng að vínfram- leiðendur höfðu ekki svigrúm til að þróa og breyta vínum sínum til hins betra. í Toskana voru vínfram- leiðendur mjög áhyggjufullir yfir þessum þröngsýna hugsunarhætti. Byrjuðu þá nokkrir framleiðendur að rækta óhefðbundnar vínþrúgur t.d. Cabernet Sauvignon og blanda það með hefðbundnum Sangiovese. Otkoman var talin stórkostleg en vegna þessara ströngu laga var vín- ið merkt í ódýrasta flokk „Vín da Tavola” eða borðvín. Fyrsta vínið var Sassicia, svo kom Tignanello og eftir það var ekki aftur snúið. Byrj-

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.