blaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 12
12 I TÖLVUR OG TÆKI MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 blaöiö Einíaldleiki vopnað- ur nýstárlegri tœkni Tivoli Audio tækin hafa slegið í gegn um víða veröld frá því að þau komu fram á sjónarsviðið fyrir um fimm árum síðan. Þau eru mjög einföld í útliti sem og notkun og því nokkurskonar and- stæða flókinnar nútímahönnunar á raftækjum. Tivoli Audio hafa fengið bestu meðmæli í hönnun- ar- og fagtímaritum og nostalgíu útlitið ásamt þeirri nýstárlegu tækni sem þau búa yfir hafa einn- ig tryggt það að neytendur hafa tekið þeim opnum örmum. Gagnrýnendur lofa Tivoli Fyrsta tækið sem Tivoli Audio setti á markað árið 2000 var Model One borðútvarpið sem gagnrýnendur hófu strax að lofa bæði hljómgæðin og viðarklædda hönnunina. Óvenju- legt handverkið aðskildi tækið mjög skýrt frá öðrum slíkum sem sam- keppnisaðilarnir buðu upp á, enda ganga Tivoli Audio tækin í gegnum tímafrekt ferli þar sem hver vara er handlökkuð til að ná fram réttum gljáa. Allar vörur Tivoli Audio eru samsettar í verksmiðju fyrirtækis- 2006 BaseCamp, auglýsir fyrir hönd Ríkisútvarpsins-Sjónvarps, eftir lagi til þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer á Grikklandi í maí 2006. Lagið má ekki hafa verið flutt opinberlega og hámarkslengd þess skal vera 3 mínútur. Texti lagsins skal vera á íslensku vegna flutnings hér heima. Höfundar skili lögum til BaseCamp, Vatnagörðum 4, 104 Reykjavík eigi síðar en 18. nóvember, merktum Söngvakeppnin 2006. Lögin skulu merkt dulnefni höfunda en rétt nöfn fylgi í lokuðu umslagi. Frekari upplýsingar eru veittar hjá BaseCamp í síma 591 5250 eða í vefpósti info@basecamp.is. Sími 591 5250 h info@basecamp.is H BaseCamp PRODUCTIONS B ins sem gerir því kleift að eigin sögn að halda uppi afar ströngu gæðaeft- irliti. Framleiðendur tækisins segja slíkt tryggja að bæði hljóðstyrkur og gæði útsendingar geri það óvið- jafnanlegt öllum öðrum sambæri- legum tækjum í þessum verðflokki. Þá veitir sú meðferð útvarpinu það skemmtilega og óvenjulega retró útlit sem það er orðið svo frægt fyr- ir. Viðarklæðningin er hins vegar ekki einvörðungu til að tryggja hið sérstaka yfirbragð heldur virðast gagnrýnendur sammála um að hún skapi einnig þann þýða hljómburð er framleiðandinn lofar. Niðurstað- an er sérlega gott jafnvægi milli tónjöfnunar og bassaviðbragðs. Notast við farsímatækni Ástæður fyrir tærleika hljómsins og góðum móttökuskilyrðum eru helst þær að í stað venjulegrar samrásar þá notast Model One við FM sendi með GaAs MES-FET hljóðblandara sem var upprunalega hannaður fyr- ir farsíma. Model One var fyrsta út- varpsviðtækið til að nýta sér þessa tækni til að tryggja betri móttöku- skilyrði og auka skýrleika sendingar- innar. Innbyggð AM og FM loftnet eru í tækinu og þá 75 óm tengill til staðar sem gerir það kleift að hægt sé að tengja utanáliggjandi FM loftnet við tækið þar sem móttöku- skilyrði eru erfið. Einnig eru tengi fyrir heyrnartól, utanáliggjandi geislaspilara eða önnur hljómflutn- ingstæki og úttak fyrir upptökutæki. Hefur þróast í línu Fyrirtækið hefur verið duglegt að þróa þessa vöru áfram og er vinsæl- asti angi þeirrar þróunar líklega Portable Audio Laboratory, eða ein- faldlega PAL. PAL eru lítil og meðfærileg hljóm- flutningstæki vopnuð öllum helstu eiginleikum hins upprunalega Model One. Munurinn felst fyrst og fremst í aðeins öðruvísi hönnun og endurhlaðanlegri og umhverfis- vænni rafhlöðu sem tryggir margra klukkutíma þráðlausa spilun. Þar sem að PAL er hulinn gúmmíklæðn- ingu þá stenst hann vel veður og vinda og er því tilvalinn í ferðalög eða fyrir annarskonar útiveru. Hann fæst í margskonar litum sem hönnunarteymi Tivoli Audio velja eftir eftir því hvað er heitast í evr- ópskum tískustefnum hverju sinni. Stefna Tivoli Audio er að bjóða upp á nýja línu af litaafbrigðum árlega. Einnig er kominn á markaðinn iPAL sem virkar alveg eins og hin PAL viðtækin en er sérstaklega sniðið að útliti og hönnun hins sí- vinsæla iPod MP3 spilara. Það er jafnt hægt að tengja iPodinn beint í tækið eða notast við iTrip útvarps- sendinn til að tengjast þráðlaust við iPAL. Þá hefur Tivoli Audio framleitt fjölmargar aðrar útgáf- ur af kjarnatækinu og þar á meðal er tæki sem tekur á móti gervi- hnattarsendingum, Model Three sem er útvarpsvekjaraútgáfa með klukku og Songbook ferðaútvarpið. Eftirl íki ngar spretta upp eins og gorkúlur Vinsældir Tivoli tækjanna hafa orð- ið til þess að mýmargar eftirlíking- ar hafa sprottið upp þar sem bæði sú tækni sem Tivoli tækin búa yfir hafa verið tekin um borð sem og hin gamla og einfalda retro hönnun þeirra, þó með smávægilegum brey t- ingum. Ein þeirra er Emerson NR 30 útvarpið sem litur nánast alveg eins út og býr yfir nær öllum sömu eiginleikum og hið upprunalega Ti- voli útvarpstæki. Það er því ljóst að útlit fortíðarinnar virðist komið til að vera í heimi raftækjanna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.