blaðið - 12.10.2005, Side 38

blaðið - 12.10.2005, Side 38
38IFÓLK MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 blaðiö SMÁboraarinn Sjö ára reykingarmaður Þegar Smáborgarinn var ungur bjó hann á litlum sveitabæ á Aust- urlandi. Þetta var dæmigerður sveitabær - íbúðarhúsið var á þremur hæðum, hvítt með rauðu þaki og stóð uppi á hól. Við hlið- ina stóð fjárhús og hlaða - og allt í kring voru geymdir traktor- ar, sláttuþyrlur, snúningsvélar, skítadreifarar og fleiri dásam- lega spennandi græjur sem urðu sífelld uppsretta leikja hins unga Smáborgara og systkina hans. Það voru einnig dýr á sveitabæn- um, en það var víst harðbannað að leika sér með þau. Verndað umhverfi Smáborgarinn gerir sér grein fyr- ir því að ef líf hans í sveitinni í gamla daga er borið saman við líf barna í borgum og bæjum nútím- ans, kemur í ljós að það var ein- falt og jafnvel nokkuð saklaust. Þannig voru ekki margar freist- ingar sem hægt var að falla fyrir, og ennþá síður óæskilegur félags- skapur sem börn áttu á hættu að lenda í slagtogi við. Þetta var verndað umhverfi og því eru þær fáu syndir sem Smáborgarinn gerði sig sekan um ákaflega eftir- minnilegar - svona þegar hugsað er til baka. Ein stærsta synd Smáborgarans var framin þegar hann var sjö ára. Þá stal hann, í slagtogi við eldri bróður sinn, sígarettu af gömlum frænda sínum og varð sér í fram- haldi úti um pakka af eldspýtum úr eldhúsinu. Þegar búið var að tryggja þessar gersemar var hald- ið út í skurð. Fyrsta sígarettan Smáborgarinn hafði aldrei reykt - en oft fylgst spenntur með þeim fullorðnu sem stunduðu þessa dul- arfullu og spennandi iðju. Hann taldi sig því kunna þetta, en lenti í vandræðum þegar kveikja átti í tóbakinu. Leikar fóru þannig að kveikt var sina í skurðinum, síg- arettan rekin inn í miðjan eldinn og þannig náðist glóð. Þar sem Smáborgarinn var að fremja sinn fyrsta „glæp“ með eldri bróður sínum, þurfti hann að sanna sig. Hann tók því fyrsta smókinn og gerði það af krafti. Hálf sígarett- an soguð í einum smók og síðan var öllu steypt beina leið niður í lungu. Það þarf vart að taka það fram að við tók ákafur hósti sjö ára gamals græns barns, sem var undanfari uppkasta og viku langra veikinda. Smáborgarinn hefur frá þessum degi aldrei getað reykt - verð- ur ávalt grænn við fyrsta smók. Hann vill ekki ganga svo langt að segja að það eigi að láta öll börn reykja svo sem eina sígarettu, eða það sem betra væri, einn vindil um sjö ára aldur - með von um að slíkt muni skapa ævilangt óþol. Hann vill bara benda á að þetta virkaði í hans tilfelli... SU DOKU talnaþraut 69. gáta 4 3 8 9 1 2 5 7 3 7 8 7 5 9 2 6 3 9 1 8 9 8 * 5 2 4 9 6 1 Lausn á 69. gátu irerður að finna i blaðinu á morgun Lausn á 68. gátu lausn á 68. gátu 8 9 7 JL 2 3 5 4 6 2 5 3 8 4 6 1 9 7 6 4 1 9 5 7 8 3 2 3 2 6 7 8 9 4 1 5 5 1 9 2 6 4 3 7 8 4 7 8 3 1 5 2 6 9 9 8 2 6 3 1 7 5 4 1 6 5 4 7 8 9 2 3 7 j~3~ 4 5 9 2 6 8 1 Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölu- num frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. 1.SÆTI METSÖLULISTA Gwyneth mun vinna með bróður sinum HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? ©Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Þú sérð næstu framtíð greinilega, og þú ættir að kanna möguleika á að nýta þér það pér í hag. Erfitt gæti þó reynst að sannfæra vinnufélagana um þetta. V Passaðu upp á hjarta þitt eins og þú passar veskið. Ef þú hefur ekki næga andlega orku til að eyða í rómantík, skaltu vera spar á tilfinningar þín- ar. Leggðu fyrir og hugsaðu um framtíðina.. Gwyneth Paltrow hefur samþykkt að vera leikstýrt af bróður sínum Jake í rómantísku gamanmyndinni The Good Night, sem verið er að vinna að. Þar mun hún koma fram ásamt Mart- in Freeman og Simon Pegg. Myndin, sem Jake skrifar einnig handritið að, á að gerast í New York, en verður tekin í kvikmyndaveri í Ealing í London. Áætlað er að tökur muni hefjast þann 7. nóvember næstkomandi. Jackson feUdur í leik- húsi i London Michael Jackson var felldur um koll af æstum að- dáendum þegar hann fór með börnin sín að sjá Billy Elliot á sviði, í vikunni. Söngvarinn, sem eins og frægt er orðið sýknaður af ákær- um um misnotkun á börnum í júní síðastliðnum, var umkringdur af brjál- aðdáendum, er hann tók börnin sín, Prince Michael I, Paris og Prince Michael (Blanket) með í leikhúsið Victoria Palace Theatre í London. Jackson var ýtt niður á gólf, en var fljótlega hjálpað aftur á fætur af lífvörð- um sínum, sem drifu hann með inn í leikhús- ið. Hin sérvitra stjarna er í London að taka upp smáskífuna „From the Bottom Of My Heart“ til að safna peningum fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrina. Aðdáandi sem sá lætin sagði í viðtali: „Þetta var algjört óreiða. Hlutirnir voru í full- kominni upplausn. Michael var bersýnilega að reyna að vernda börnin sín, missti þess vegna fótana." ■ Martin vonast eftir dúett með Chris Martin, söngvari Coldplay, vonar að hann nái að taka upp dúett með söngkon- unni Celine Dion í náinni framtíð, af því hann vill ögra hljómsveit sinni og hljómnum sem þeir standa fyrir. Chris er harðákveðinn í því að reyna að breikka út það tónlistarlega svið sem Coldplay stendur fyrir, og finnst líklegt að sam- vinna við hina kanadísku Celine Dion muni hjálpa þeim að ná því takmarki. Hann segir: „Maður ætti ekki að takmarka sig of mikið. Fyr- ir mér er það sem er óvenjuleg- ast og skrýtnast jafnframt oft það sem er mest spennandi á hverjum tíma. Hver veit hvað ég geri næst? Ég gæti jafnvel end að á því að gera næstu plötu á hið ástralska hljóðfæri drunudrumb (didgeridoo)! Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Tjáðu þig um brjálaða nýja huemynd sem eæti njálpað íyrirtækinu að komast langt áfram. Hversu faránlee sem hún hljómar, þá hlustar fólk og mun verða fyrir áhrifum ff á þér. V Villta hlið þín er sú mest sexí við þig, og upp- reisnargirnin er mjög siáanleg þessa cíagana. Stor- kostlegar kenningar þinar og skrýtin kímnigáfa virka mun betur en ao blaka augnhárunum. ©Fískar (19. febrúar-20. mars) $ Það er erfitt að einbeita sér núna, en ef þú tek- ur þér margar smá-pásur þá ertu fersk(ur) allan daginn. Svo skerpist einbeitingin síðar í vikunni. V Gjafmildi þitt er ótrúleet. Vinir þínir eru hug- fanenir af því nve tibúin(n) þú ert að aðstoða þá, og petta viohorf þitt smitar út frá sér. Ef til \tU tekur einhver eftir þér, sem vill eitthvað meira en vinskap. Hrútur (21. mars-19.apríl) $ Fáðu lið þitt til að tala saman og taka niður nótur. Fólk þarf að vinna vel saman til að ná sett- um markmiðum fyrir kvöldið, og þú ættir að vera fyrirmynd fyrir þína starfsmenn. V Vertu viðbúin(n) fyrir nýjan vinkil á rómantík framtíðarinnar, og hann gæti komið úr óvæntri átt. Þinn tími er núna, bæði samkvæmt stjörnunum og öðru, svo notaðu hann vel! Naut (20. apríl-20. maí) ^ Vinnufélagarnir eru stríðnir í dag, en Jþér finnst þú ekki eiga stríðnina skilið. Reynau að forð- ast áreitið, en efþú lendir í þeim, reyndu að brosa og taka þessu vel. V Ástin getur verið mismunandi, en núna er hún allt að því stórundarleg. Fólk í kring um þig hagar sér á dularfullan hátt, og þú kannski líka. Eina sem getur skýrt málin er smá oiðlund og tími. ©Tvíburar .....(21. maí-21. jún()............... $ Einhver nýr í vinnunni þinni mun hrista upp í mannskapnum svo um munar.Áhrifin eru miög jákvæð, þott þér líki ekkert allt of vel við sjálfa manneskjuna V Þú kafar venjulega ekki mjög diúpt í tilfinning- ar, en um þessar mundir ertu í nanum tengslum við þitt innra sjálf, svo nýttu það. Djúpar samræð- ur gætu verið góðar. ®Krabbi (22. júnf-22. júlí) $ Lækkaðu hitann undir tilfmningunum og þá tekst þér betur að bregðast við dagsskipan með köldum rökum og tærri hugsun. Þér nnnst oft betra að treysta i filfinningarnar, en núna verða rökin að duga. - V Ekki láta draga þig inn í tilfinningaþrungnar rökræður, eins spennandi og það hljómar núna. Farðu þínar eigin leiðir og aorir munu dáðst að þér fynr sjálfstæðið. Ljón (23. júlí- 22. ágúst) $ Lausn á vandamáíum daigsins er ekki ljós. Þú verður að fara yfir alla möguleika áður en þú sérð svarið, sem annars hefði ekki hvarflað að þér. V Fremur en að halda dauðahaldi í eitthvað eitt sem þú heldur að þú viljir í sambandi, reyndu að útiloka það sem þú vilt alls ekki. Kíktu á þá sem eru í góoum samoöndum í kring um þig, og skoð- aðu hvað þau eru að gera rétt, og gerðu svo eins. Meyja (23. ágúst-22. september) $ Þú verður að vera viðbúin(n) breytingum á öllum sviðum, bæði stórum og smáum. Hæfileiki þinn til að vera sveigjanlegur mun vera mikil njálp. V Hvern hefði ^runað að þú gætir orðið enn skipulagðari en þu ert? En þao er hægt, oe þú ert að finna nýjar leiðir til að koma reglu á lífpitt. Vog (23. september-23. október) $ Þér tekst að sannfæra næstum hvern sem er um hvað sem er, og þau fatta það ekki einu sinni. Bros kemur þér alltaf áfram, og þú brosir breytt. V Ertu að leita að ást? Nú, opnaðu þá augun og taktu eftir. Hún er undir nefmu á þér, elskan. Út- geislunin og siarmi þinn er slíkur að aðdáendur eru svífandi allt í kring eins og hunangsflugur. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Vinnuteymi þitt þarf eitthvað nýtt o^ ferskt til að vinna betur. Reyndu að koma með nyjan flöt á verkefnin til að kveikja svolítið í þeim. V Aðrir þurfa að finna fyrir því að þú sért á svæð- inu. Þú ruggar bátnum og það er alveg nákvæm- lega það sem þú þarft á ao halda núna. Mundu bara að vera í biöreunarvesti, því rómantískur stormur gæti verio áleiðinni. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Kannaðu alla möguleika og finndu aðferð til að þroskast og þróast. Sköpunarkraftur þinn hjálp- ar félögunum ao komast yrir erfiðasta hjallann. ^ Hvað er meira æsandi en hól og hrós? Það eru, að þínu mati, funheitar og hressandi nýjar hug- mvndir. Þú neistar af sköpunargleði, og leitar ao fóíki til að blása í neistana og búa til alvöru bál.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.