blaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 blaöi6
Páfabíll seld-
ur fyrir metfé
Milljónamæringur frá Houston
í Texas keypti á laugardaginn
bíl sem eitt sinn var í eigu
Jóhannesar Páls páfa annars á
uppboði í Las Vegas. Bíllinn er
ekki merkilegur nema íyrir eig-
endasöguna en þetta er árgerð
1975 af Ford Escort. Það kom
ekki í veg fyrir að milljónamær-
ingurinn þuríti að punga út 42
milljónum króna fyrir gripinn.
Hann hyggst koma bílnum
fyrir á safni sem hann er með
i byggingu í heimabæ sínum.
Vinsældir
Bush dvína
Vinsældir George Bush, Banda-
ríkjaforseta, fara minnkandi ef
marka má nýja skoðanakönn-
un. Aðeins 39% bandarískra
kjósenda segjast ánægðir
með frammistöðu forseta
síns en 58% aðspurðra lýstu
sig óánægða með forsetann
og störf hans og enn fleiri
voru óánægðir með hann
sem leiðtoga. Þá sögðu 64%
hann lélegan stjórnanda.
{september töldust 42%
ánægðir með störf forsetans
þannig að vinsældir hans
virðast fara hratt niður á við.
Nýjasta könnunin var gerð á
föstudag og laugardag, fljótlega
eftir að upplýsingaleki hjá
leyniþjónustunni CIA var til
umræðu í fjölmiðlum og ákveð-
ið var að ákæra Lewis Libby,
einn af ráðgjöfum forsetans.
600 manns voru í úrtakinu.
Maradona
mótmælir
Bush
Diego Maradona, argentínski
knattspyrnusnillingurinn, hef-
ur lofað Fidel Castro, forseta
Kúbu, að fara fyrir mótmæla-
göngu í heimalandi sínu, en
George Bush er væntanlegur
til landsins. Maradona lét hafa
eítir sér í viðtali að Bush væri
morðingi en Fidel væri hins
vegar í guðatölu. Kærleikar
tókust með félögunum þegar
Maradona fór til Kúbu til að
vinna bug á kókaínfíkn sinni.
Hann skartar meðal annars
myndarlegu húðflúri af öðrum
gömlum félaga Fidels, Che Gue-
vara, á öðrum handleggnum.
Veislu
og fundarbakkar
uiznosSiiB
Pantanir: 577 5775
Berlusconi
veldur Blair vandræðum
Forsœtisráðherra Bretlands í vandrceðum vegna gjafmildi kollega stns á Ítalíu
Tony og Cherie Blair hafa á síðustu
fjórum árum þegið rándýr arm-
bandsúr og alls kyns skartgripi frá
milljarðamæringnum, fjölmiðla-
kónginum og forsætisráðherra Ital-
íu, Silvio Berlusconi. ítalski forsæt-
isráðherrann hefur samkvæmt frétt
breska blaðsins Mail on Sunday
meðal annars gefið hjónunum 18
armbandsúr. Á meðal úranna er
Cartier úr að verðmæti 850.000
króna og ítalskt Locman úr sem
kostar „aðeins“ 270.000 krónur og
er, samkvæmt fréttinni, í uppáhaldi
hjá Jennifer Lopez. Tony Blair hefur
sjálfur ekki sést með úrin dýrmætu
á hendi. Hann kýs að ganga með
ódýrt plastúr en Cherie hefur á hinn
bóginn sést oft með dýr úr síðustu
ár. Skrifstofa forsætisráðherrans
hefur ekki viljað tjá sig um málið og
hafa þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar kallað eftir því að skýringar verði
gefnar. Samkvæmt reglum í Bret-
landi má forsætisráðherra ekki taka
við persónulegum gjöfum sem eru
dýrari en sem nemur 15.000 krónum.
Dýrari gjafir skulu vera eign skrif-
stofu forsætisráðherra. Blair hefur
hins vegar keypt tvö úr af skrifstof-
unni á 35.000 krónur, sem virðist
fremur lág upphæð ef mið er tekið
af öðrum úrum sem Berlusconi hef-
ur gefið hjónunum. Skrifstofan að
Downingstræti 10 hefur ekki viljað
gefa upplýsingar um hvernig verð úr-
anna sem Blair keypti var ákvarðað.
Þetta er ekki fyrsta málið af þessu
tagi sem ollið hefur Blair hjónunum
vandræðum, því fyrir nokkru síðan
neyddist Cherie til þess að borga toll
af perlum sem henni áskotnuðust í
opinberum heimsóknum til Kína.
Óeirðir:
París logaði um helgina
Óeirðir brutust út um helgina meðal
unglinga í París eftir að tveir táning-
ar dóu af völdum raflosts þegar þeir
flúðu undan lögreglunni. Ungling-
arnir voru 15 og 17 ára og voru af afr-
ískum uppruna. Þeir hlupu í burtu
eftir að lögreglan kom að neðanjarð-
arstöð eftir að innbrot hafði verið
framið í verslun nærri. Lögreglan
hefur sagt að eltingarleikurinn hafi
verið byggður á misskilningi en
þrátt fyrir það hefur mikil ólga ríkt
í hverfinu sem drengirnir bjuggu
í. Mikil ókyrrð hefur verið á meðal
innflytjendahópa að undanförnu í
París, ekki síst vegna herferðar sem
hinn umdeildi innanríkisráðherra
Frakka, Nicolaz Saerkozy, hratt af
stað gegn glæpum og skipaði sér-
sveitum að ráðast inn í 25 verstu
hverfi borgarinnar.
Kristnar stúlkur myrtar í Indónestu
Páfi sendir fjölskyldum
þeirra samúðarkveðjur
Þrjár stúlkur, á aldrinum 16 til 19 ára, voru myrtar ígœr í bœnum Poso í Indónesíu. Stúlk-
urnar voru nemar í skóla kristinna og voru á leið í skólann þegar sex menn, vopnaðir
sveðjum, réðust að þeim.
Lík stúlknanna fundust skömmu
síðar og skammt frá staðnum þar
sem þær voru myrtar fundust svo
höfuð þeirra allra.
I yfirlýsingu frá Vatikaninu er
verknaðinum í Poso lýst sem villi-
mannlegu athæfi og jafnframt að
páfi myndi biðja fyrir friði í Ind-
ónesíu. Yfir 2.000 manns létu lífið í
átökum milli múslíma og kristinna
í Poso í Indónesíu frá árinu 1998 til
2001. Þá var samið um frið en af og
til hefur þó soðið upp úr.
Kaupmannahöfn - La Villa
ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn.
Tölum íslensku.
Sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905
_____www.lavilla.dk ♦ Geymiðauglýsinguna_