blaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 16

blaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 16
r 16 I SNYRTIVÖRUR MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 blaöiö Ómótstæðilegir litir og einstök gæði. OPI fékk Allure "Best Of Beauty" verðlaun fyrir naglalökkin: "l'm Not ReallyA Waitress" og "Samoan Sand" Útsölustaðir: Debenhams, Hagkaup, Lyf og heilsa, Lyfja, nagla- og snyrtistofur. 2005 OPI Products Inc. Leyfðu vörunum að njóta sín Margar konur eyða œvinni í aðfinna hinn fullkomna varalit. Varir eru hins vegar afskap- lega ólíkar þannig að það sem hentar einni hentar annarri jafnvel afskaplega illa. Að mörgu þarf að huga, svo sem húðlit, lögun og stœrð varanna, náttúrulegan lit þeirra og ýmislegtfleira. Hérna koma nokkur ráð sem gœtu hugsanlega flýttfyrir í hinni miklu leit aðfullkomnum vörum. • Ef þú ert með gular tennur ekki nota dökk- an varalit því þá virðast tennurnar vera ennþá gulari. Appelsínugulir tónar henta heldur ekki. Notið í staðinn brúnbleika tóna, fölbleika eða rauðbrúna. • Konur með ljósa húð ættu að nota varalit með brúnum undirtóni. Hann getur verið út í rautt, bleikt, appelsínugult eða gyllt. • Sumar konur virðast halda að varaliturinn eigi að passa við fötin en svo er ekki. Varalit- ur ætti alltaf að passa við húðlit og hárlit frek- ar en fötin. Hins vegar má alveg taka mið af fötunum þegar varaliturinn er valinn. Veljið brúna tóna ef í fataskápnum er mikið af föt- um í rauðum og gulum tónum. Ef þú átt mik- ið af rauðum, brúnum og plómulituðum föt- um, veldu þá brúna og jarðarlitaða varaliti. Ef varir þínar eru mjög dökkar vertu þá með dökkan lit á vörunum. Eftir því sem and- litslitur þinn er dekkri, því dekkri varalit- ur. Ef þú vilt lýsa varirnar, settu þá örlítinn farða á varirnar, þá varablýant og að lokum gloss. Ef þú ert með mjög stórar varnir og vilt draga aðeins úr þeim, notaðu þá dökka liti og ekki nota gloss. Hægt er að láta varirnar virðast stærri með þvi að nota varablýant og setja hann á ystu línu varanna, jafnvel örlítið út fyrir, þó ekki nema innan við millimeter. Veldu blýant sem er líkur þínum náttúrulega varalit. Not- aðu svo varalit sem er örlítið dekkri en blý- anturinn og settu gloss að endingu. Varalitur með AogE vítaminum Þessi varalitur frá Bourjois er matt- ur, hálfgagnsær og hefur eiginleika sem lætur varirnar virðast meiri en þær eru. Hann inniheldur A og E vítamín sem veitir vörunum vörn. Varaliturinn endist á vörunum í langan tíma þannig óþarfi er að vera alltaf með hann á lofti. Einstakur gljái Frá Mac er hægt að fá glæsilegt úr- val lita þannig að allar konur ættu að finna lit við sitt hæfi. Þessi vara- litur er bleikur með gylltum tóni og leyfir vörunum að njóta sín til hins ítrasta. Örsmátt glimmerið gefur þeim einstakan gljáa og hann endist á vörunum í marga klukkutíma. Endurkoma skrúf- blýantsins Hann er kominn aftur. Sívinsæli skrúfblýanturinn frá Estée Lauder sem hvarf af markaðinum fyrir um ári síðan við harmakvein margra kvenna. Blýantinn er hægt að fá bæði fyrir augu og varir og í sömu litum og formi og áður. Það þægileg- asta við blýantana að þá þarf aldrei að ydda og óþarfi er að kaupa nýjan blýant - hægt er fá fyllingar í öllum litum. Sœtur og stelpulegur Það stirnir á Glam Shine varalitinn frá L’Oréal. Hann er til í mörgum lit- um en þessi bleiki er stelpulegur og ferskur. Hann er mjög rakagefandi og getur bæði gengið hversdags og við kvöldfarða. Hann glansar og glitrar í senn og hentar öllum. Suðrœnt og glitrandi gloss Tvöföld ánœgja Glossið frá Clarins yljar í skammdeginu. Sjóðheit- ur ferskjuliturinn sem glitrar á vörunum fær alla til að gleyma að vetur konungur er nú við völd. Glossið klístrast ekki og er í þéttum umbúðum þannig að ekkert lekur út fyrir. Tilvalið til að senda frá sér suðræna strauma, skellir sólbrúnku- kremi og sólarpúðri á andlitið, þessu fallega glossi á varirnar og hugurinn ber þig hálfa leið á ströndina! Clinique kemur hér með hina fullkomnu formúlu fyrir konur sem vilja bæði fallegan lit og skínandi gljáa - gloss og varalitur sem endist allt upp í ío klukkutíma. Öðru megin er liturinn og hinu meg- in glært gloss. Byrja skal á því að bera litinn jafnt y fir varirnar og leyfa honum að þorna 1 um það bil eina mínútu. Þá skal setja glossið yfir og útkoman svíkur engan. Mýkir varirnar og veitir þeim vörn. Þœgileg hreinsifroða Þó fallegar varir skipti allar konur máli, má ekki gleyma húðinni. Miklu máli skipt- ir, ekki síst yfir veturinn, að hugsa vel um húðina þegar loftslagið er þurrt og frostið bítur lcinn. Happyderm froðan frá L’Oéral hreinsar andlit og augu og hentar þurri og viðkvæmri húð sérstaklega vel. Froðan er mild og þægileg í notkun og fjarlægir hvort tveggja farða og dauðar húðfrumur. Skilur húðina eftir mjúka og fallega.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.