blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 blaðiö Viðskipti: Kaupa minni- hlutann út Meirihlutaeigendur að Keri hf. hafa keypt alla eignarhluta Straums-Burðaráss Fjárfest- ingabanka í fyrirtækinu eða um 34%. Þetta kemur fram í fréttabréfi frá Keri hf. sem sent var út í gær. Ker hf. á 01- íufélagið en einnig stóra hluta í SÍF og Samskipum. Með þessu lýkur nokkuð löngum deilum hluthafa í Keri en aðeins þrír eigendur eru nú að fyrirtæk- inu þar sem Kjölur ehf. er lang- stærst, með 86,64% eignarhlut. Stýrivextir: Hækkun spáð Fastlega er búist við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti 2. desember næstkomandi og að hækkunin geti numið á bil- inu 0,5 til 0,75%. Þetta kemur fram í Morgunkorni Islands- banka í gær. Þar kemur enn- fremur fram sú spá að stýrivext- ir muni fara í 12% á næsta ári áður en bankinn fari að lækka þá á ný. Landsvirkjun: Óánægja með verðmat Reykjavíkurborg telur verðmat ríkisins á hlut borgarinnar í Landsvirkjun vera oflágt. Þetta kom fram í máli Steinunnar Óskarsdóttur, borgarstjóra, í gær. Samkvæmt henni verður erfitt að semja um sölu á eign borgarinnar í Landsvirkjun á meðan ríkið er ekki tilbúið að endurskoða þetta mat sitt. Fyrirhugað var að ríkið mundi taka alfarið við rekstri Lands- virkjunar um næstu áramót en nú er hætta á því að það muni tefjast á meðan ekki ríkir sátt um söluverð. OPNAR 1. DESEMBER [LÆKJARGATA] Hluthafafundur FL Group: Allar tillögur meirihlutans samþykktar Hluthafafundur FL Group samþykkti í gær með þorra atkvæða allar breyt- ingar, sem fyrir fundinum lágu, en í þeim fólst það helst að stjórn félagsins fékk heimild til þess að auka hlutafé um 44 milljarða króna og stjórnar- mönnum var fækkað um tvo, úr sjö í fimm. Skarphéðinn Berg Steinarsson, nýr stjórnarformaður FL Group, sagði i samtali við Blaðið að ljóst væri að hluthafar væru ánægðir með þá nýju stefnu, sem mörkuð hefði verið hjá fyr- irtækinu. Á fundinum flutti Hannes Smára- son, forstjóri, framsögu og fór lítillega yfir söguna undanfarin misseri. Taldi hann einsýnt af helstu kennitölum fé- lagsins að vel hefði til tekist, stórauk- inn hagnaður og hærra hlutafjárverð segði sína sögu. Kynnti hann síðan þær tillögur, sem lágu fyrir fundinum, og sagði þær lið í stórsókn fyrirtækisins, sem ætti að styrkja stöðu fyrirtækisins inn á við um leið og það færði sig inn á ný svið, einkum á sviði fjárfestinga. Sagði Hannes að FL Group myndi ekki einskorða sig við fjárfestingar í flugrekstri og að miðað yrði við að ná 20% arðsemi eigin fjár. Vilhjámur Bjarnason leggur spurningar fyrir stjórn FL Group, en svörin fundust honum þunnur þrettándi. Hlutafé aukið um 44 milljarða Þetta á að gera með því að auka hluta- fé um 44 milljarða króna, en það verð- ur þá um 65 milljarðar króna alls. Af því yrði um 50 milljarðar króna hand- bærir til fjárfestinga. Stærstu hlut- hafar munu leggja til 28 af þessum milljörðum, lykilstarfsmenn munu geta lagt til 3 milljarða og KB banki og Landsbankinn leggja til 8 millj- arða, auk þess, sem þeir sölutryggja 5 milljarða. Skipuriti félagsins verður breytt til þess að endurspegla þessar nýju áherslur, móðurfélagið yrði eignar- haldsfélag, en rekstrinum síðan skipt í þrjár greinar, alþjóðlegan flugrekst- ur, alþjóðlega flugfrakt og innlenda ferðaþjónustu. Þá fór Hannes yfir kaupin á Sterl- ing og markmiðin með þeim, en vék einnig að öðrum fjárfestingum er- lendis og nýjum verkefnum, meðal annars auknu samstarfi FL Group Viðskipti: Hagar tapa rúmum sjö hundruð milljónum Tap Haga hf., dótturfyrirtcekis Baugs Group, nam rúmum sjö hundruð milljónum áfyrstu sex mánuðum þessa árs. Þetta kemurfram í árshelmings uppgjöri fyrirtækisins sem birt var ígœr. Hagar hf., sem reka meðal annars Hagkaup, Bónus, 10-11, Debenhams og Skeljung, skilaði fyrir sama rekstr- artímabil í fyrra um 1.200 milljón króna hagnaði en stór hluti þess hagnaðar kemur til vegna sölu á eignum fyrirtækisins. í uppgjörinu kemur fram að veltufé frá rekstri hafi verið neikvætt á tímabilinu um 482 milljónir og að handbært fé frá rekstri hafi einnig verið neikvætt um 2.939 milljónir. Þetta skýrist fyrst og fremst af mikilli hækkun birgða og viðskiptakrafna hjá Skeljungi. Þá námu heildareignir félagsins um 37 milljörðum en heildarskuldir um 31 milljarði. Herða sultarólina Að sögn Finns Árnasonar, forstjóra Haga hf., er tapið mikil vonbrigði og segir hann ljóst að fyrirtækið þurfi að herða sultarólina og gera bet- ur. „Það má segja að þetta skiptist í tvennt. Almennt hefur gengið vel hjá sérvörufyrirtækjunum en hins vegar er afkoman af matvörunni langt und- ir væntingum.“ Finnur segir verð- stríð á matvörumarkaðinum hafa verið fyrirtækinu kostnaðarsamt og endurspeglist í þessu uppgjöri. Að- spurður hvort fyrirtækið íhugi að loka óarðbærum rekstrareiningum segir hann ekkert hafa verið ákveðið. „Við viljum bæta okkar innkaup sem skiptir miklu máli og síðan munum við skoða alla þá þætti sem geta leitt til betri rekstrar. Það er alltaf hægt að bæta þetta að einhverju leyti. Kúnnafjöldinn hefur verið að aukast og við eigum mikið af ánægðum við- skiptavinum." ■ Verðstríðið á matvörumarkaðinum reynd ist kostnaðarsamt við Kaupþing um rekstur og útleigu flugvéla. Taldi hann mikil sóknar- færi í lágfargjaldaflugi. Gert væri ráð fyrir um 57% vexti á þeim markaði næstu þrjú árin, en á hinn bóginn gerðu allir ráð fyrir að mikil sam- þjöppun yrði í greininni. Nú væru um 50 félög á markaðnum, en gert væri ráð fyrir að þeim myndi fækka í 2-5 á næstunni. I því fælist tækifæri. Einmana óánægjuraddir Ekki voru þó allir jafnkátir með störf og stefnu félagsins. Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands, spurði ýmissa spurninga, sem lutu að væntanlegri hlutafjáraukningu, kaupunum á Sterling og þrálátan orð- róm um heimildarlausan fjármuna- flutning stjórnenda hjá félaginu í sumar sem leið. Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður, varð til svara og svaraði í stuttu máli. Kvað hann FL Group ekki áður hafa staðið til boða að kaupa Sterling og vangaveltur um að hægt hefði ver- ið að fá félagið fyrir minni peninga, því ekki til neins. Hann vék sér einnig fimlega undan að svara spurningum um heimildarlausan fjármunaflutn- ing stjórnenda hjá FL Group snemm- sumars og sagði að hans hefði ekki séð stað í hálfsársuppgjöri. Eins og Blaðið hefur greint frá snýst málið þó að hluta um að fjármunirnir, tæp- ir þrír milljarðar króna, hafi einmitt verið endurgreiddir inn á reikninga FL Group fyrir uppgjörið til þess að þeir kæmu þar ekki fram. Vilhjálmur tók til máls að nýju og kvaðst gjarnan hafa viljáð þakka fyrir greinargóð svör, en ekki væri tilefni til þess. Minntist hann svo á tilmæli biskups til Umba í Kristni- haldi Kiljans, en sá sagði honum að hlusta einkum eftir því, sem menn þegðu um. Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar, kvaddi sér einnig hljóðs, en var ekki jafngagn- rýninn og Vilhjálmur. Taldi hann tilgangslaust að velta fyrir sér á hvaða verði Sterling hefði áður verið keypt. Á hinn bóginn henti hann á loft fótboltasamlíkingu Hannesar Smárasonar, forstjóra, og sagði það vissulega ánægjulegt að félagið freist- aði þess að komast upp um nokkrar deildir. Á hinn bóginn þætti honum sem báðum hliðum leiksins væri ekki sinnt sem skyldi. Það væri búið að bæta verulega í sóknina, en hon- um leist verr á vörnina. ■ ATLANTS AtfMrtMlia - VMtanrtr 2t - 200 Mpavogw - SM S»1HM - Viðskiptakort einstaklinga Nánari upplýsingar í síma: 591 3100 O Helðskirt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Aiskýjað Rigning, lítilsháttar /// Rigning Súld Snjókoma Slydda Snjóél ^ Skúr Amsterdam 13 Barcelona 22 Berlín 12 Chicago 04 Frankfurt 11 Hamborg 11 Helsinki 08 Kaupmannahöfn 11 London 17 Madrid 17 Mallorka 23 Montreal 04 New York 10 Orlando 19 Osló 08 París 18 Stokkhólmur 10 Þórshöfn 07 Vín 11 Algarve 20 Oublin 15 Glasgow 15 -1“ / / Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt ð upplýslngum trá Veðurstofu fstainds * -2° _ _ /// -1° * Breytileg * * /// /// /// Ámorgun

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.