blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 24
24 I FYRIR KONUR
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 blaöið
Háhælaðir skór hafa slœm áhrifá heilsu
Meirihluti líkamsþungans á
tveggja sentímetra beinum
Ef úrvalið í skóverslunum land-
ans er skoðað þá má sjá fallega
skó með háum hælum. Hælarnir
eru allt frá því að vera flatbotna
og upp í tíu sentímetra háir. Sam-
kvæmt afgreiðslufólki í verslun-
unum kaupa konur hiklaust háa
hæla og um þessar mundir eru sjö
sentímetra hælar vinsælastir. Það
er því staðreynd að konur nota
háa hæla þrátt fyrir að flestar
þeirra vita að það getur haft slæm
áhrif á heilsu þeirra síðar meir.
Lárus Gunnsteinsson, sjúkra-
skósmiður hjá Össuri hf„ segir að
flestir kvillar vegna of hárra hæla
komi ekki í ljós fyrr en seinni-
hluta ævinnar.
Lárus segir að það sé sannað að
háhælaðir skór fari illa með heilsu
kvenna. „Við vitum hver líkams-
staðan á að vera og ef kona stendur
á tveggja sentímetra hæl þá er io%
þungi líkamans á táberginu og
90% á hælnum. Um 0-2 sentímetra
hæll er í fínu lagi því það er tilvalin
staða á líkamanum. Ef hælarnir eru
orðnir 6-8 sentímetrar og jafnvel
hærri þá er konan komin með nán-
ast alla þyngdina á tábergið. Kona
sem er um 60 kg stendur á fjögurra
sentlmetra hælum og þá er 60% af
líkamsþunganum á táberginu þar
sem beinin eru ekki nema einhverj-
ir 2-3 sentímetrar að stærð.“
Á þessari mynd má sjá fót konu sem hefur
mestmegnis notað venjulega skó.
Lárus Gunnsteinsson sjúkraskósmiður
Geta ekki verið berfættar
Samkvæmt Lárusi má rekja marga
kvilla til of mikillar notkunar hárra
hæla. „Ef konur nota háa hæla í
miklum mæli þá geta þær meðal
annars fengið tábergssig, tærnar
geta kreppst saman, inngrónar negl-
ur myndast og hásinarnar styttst.
Það eru til konur sem hafa verið á
háum hælum alla ævi og geta ekki
verið berfættar þvi hásinin er of
stutt. Hásinin er aftan á hælnum og
iegar konurnar setia hælinn við gólf
>á meiða þær sig. A endanum verða
conurnar að nota lága hæla því þær
Hér má sjá fót konu sem hefur mikið til
notað háhælaða og támjóa skó.
eru komnar með bein við stóru tána
og þá byrjar stóra táin að vísa inn á
við. Þetta er í raun bara eins og að
troða fætinum ofan í trekt, blóðrás-
in stöðvast.“
Geta ekki notað háa hæla aftur
Lárus segir að flest þeirra vanda-
mála sem má rekja til notkunar
hárra hæla séu alvarlegir. „Það eru
margar konur sem ég hitti sem eru
með kvilla út af háum hælum og
mjóum tám. Þær verða varar við
kvillana við 60-65 ára aldur. Þetta
er eins og með allt annað, það þarf
að fyrirbyggja þetta. Forvarnirnar
skipta máli. Þessar konur geta þá
ekki notað háa hæla aftur, nema
kannski í einstaka kokkteilboði
og þær finna þá fyrir óþægindum
næstu daga á eftir."
Samfélagið gerir kröfur um hæla
Lárus mælir með því að konur noti
háa hæla einungis spari og alls ekki
daglega. „Þetta er auðvitað voða
huggulegt og fallegt. Þegar konan er
komin á nokkurra sentímetra hæla
þá er hún farin að standa bein í baki
með barminn út á við. Er það ekki
það sem við viljum? Samfélagið og
tískan gerir þessar kröfur,“ segir
Lárus og bætir við að hann haldi
að fáar konur hugsi um hve skaðleg
áhrif háir hælar geti haft á heilsu
þeirra enda vanti fræðslu um skað-
semi hárra hæla. Konur þurfa þó
ekki að örvænta því Lárus segir að
það sé skaðlaust að nota háa hæla
um helgar. „Þetta er allt í lagi ef þær
eru í lágum hælum þess á milli. Allt
er gott í hófi. En of mikil notkun er
sérstaklega slæm því hún hefur var-
anleg áhrif á heilsuna og þetta er svo
fljótt að koma. ■
svanhvit@vbl.is
Breytt siðferði
Eigin ánægja
skiptir
mestu máli
1 nútímanum hefur aldrei verið
erfiðara að þekkja rétt frá röngu
vegna þess að siðferði okkar hefur
breyst. Það sem áður þótti rangt
og óásættanlegt þykir forvitni-
legt og leyfilegt í dag.
Búið er að skipta út þessu hefð-
bundna siðferði fyrir annað og
nútímalegra siðferði. Það er ekki
eins skýrt hvað er rétt og hvað er
rangt. Ef enginn er særður þá er
allt sem þú gerir í góðu lagi og ef
einhver særist þá er það sorglegt
frekar en rangt. Við höfum skipt
út gamla siðferðinu fyrir þann
veruleika að við getum öll gert það
sem okkur langar til. Sem dæmi má
nefna að ef vinkona manns fer frá
eiginmanni og börnum vegna ann-
ars manns þá bjóðum við henni út
til að tala um hvað þetta var erfið
ákvörðun fyrir hana í stað þess að
benda henni á hvaða loforð hún gaf
við altarið. I stað þess að horfa gagn-
rýnum augum á umhverfi okkar og
nágranna þá horfum við á það með
augum samkenndar. Á vissan hátt
má því segja að við séum öll orðin
sjálfselskari en áður því okkar eigin
ánægja skiptir mestu.
Rétt eins og í siðferði fyrri tíma er
HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG GLÆSILEGA
VERSLUM AÐ HLÍÐARSMÁRA13 í KÓPAVOGI
ÓTRÚLEG OPNUNARTILBOÐ
ATH TILBOÐIN CILDA í BÁÐUM VERSLUNUM TANTRA
ALLARVHS MYNDIRÁ1250 KR( HVERGIÓDÝRARA)
DVDl. stk 3990
DVD 2. stk 6990
DVD 3. stk 8990
ÓTRÚLEGT EN SATT 150 STK. AF TITRURUM
Á 500 KR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST.
( HVERGI ÓDÝRARA)
FIÐRILDI FRÁ 3990 kr
SLEIPIEFNI FRÁ 1490 kr
EGG FRÁ 1990 kr
HÖFRUNGUR 5990 kr
JACK THE RABBIT 5990 kr
(SEX 1N THE CITY TITRARINN)
HLIÐARSMARI13 S. 587-6969
FÁKAFENI11 S. 588-6969
Opið virka daga 12 - 20
Laugardaga 12-18
Draumaveröld
kaupalkans
Þrátt fyrir að haustkvefið hellist yfir
og leggi mann í rúmið er ég í þeirri
stöðu, eins og svo margir, að geta
ekki bara legið veik og látið aðra
vinna verkin. Það er hægt að fara
með símann og ferðatölvuna í rúm-
ið og svo er unnið eins og maður
getur þrátt fyrir slapp- leikann.
En svo kemur líka að
því að maður er búinn
með orkuna og getur
ekki unnið meir. Þá
er eins gott að hafa
rétta lesefnið við
hendina.
Draumaveröld
kaupalkans eftir
Sophie Kinsella er
ný bók sem mér
áskotnaðist. Ég
heyrði að hún
væri flokkuð
sem „skvísu-
bók“. Hún
fjallar um Re-
beccu, unga
konu í stór-
borg, sem hefur ekkert vit
á fjármálum en vinnur samt sem
fjármálablaðamaður. Hún er með
fjármálin sín í algjörum ólestri og
getur ekki hætt að versla. Stúlkunni
líður best í búðum, fer þar hamför-
um og er alltaf að „spara“ og „græða“
með því að taka endalausum tilboð-
um. Það kemur svo að skuldadög-
um, veraldlegum sem andlegum.
Viðbrögð hennar í kreppunni eru
einstaklega skemmtileg og koma á
óvart. Þessi bók er tilvalin skemmti-
lesning í flensu en um leið er hún
fyndin ádeila á neyslusamfélagið
þar sem alltaf er verið að halda að
okkur gylliboðum frá verslunum og
bönkum. Þetta er hreinlega kennslu-
bók í því hvernig maður á ekki að
fara með peningana sína og hvern-
ig á EKKI að spara. Þrátt fyrir að
gert sé grín að kaupæði Rebeccu og
innihaldslausu lífi kaupalkans þá
fá bankarnir líka sinn skammt af
ádeilu. Á sama tíma og hún fær loka-
viðvaranir frá lánadrottnum er hún
líka að fá ómótstæðileg tilboð um ný
lán inn um bréfalúguna.
„Við hjá Endwich banka viljum
bjóða þér, Rebecca - sem útskrift-
argjöf - vaxtalausan yfirdrátt að
fjárhæð 2.000 pund fyrstu tvö árin
á starfsferli þínum.“
Áfram heldur það: „Hvaða þýð-
ingu gæti persónu-
legt lán hjá Lundún-
arbanka haft fyrir
þig? Þú gætir hugsan-
lega keypt þér nýjan
bíl, gert endurbætur á
heimilinu... Lundúnar-
banki býður lán til að
gera nánast hvað sem
er - svo nú er að hrökk-
va eða stökkva. Með létt-
láni frá Lundúnarbanka
þarftu ekki einu sinni að
fylla út eyðublað. Þjónustu-
fulltrúinn sér um þetta.“
Verslunarkeðja sendir
bréf: „Það hefur aldrei verið
hagkvæmara að versla! í tak-
markaðan tíma munum við
bjóða AUKA PUNKTA á öll
viðskipti ef greitt er með viðskipta-
kortinu. Nýttu tækifærið núna og
þú færð gjöf í kaupbæti.“
Kaupalkinn stenst ekki svona til-
boð og þrátt fyrir að þetta sé skáld-
saga þá finnst mér ég oft hafa séð
þessi tilboð. Meira að segja þegar
kaupalkinn Rebecca liggur í rúm-
inu getur hún verið að kaupa og
eyða um efni fram. Hún horfir bara
á sjónvarpið og pantar vörur í gegn-
um síma.
Þá mæli ég frekar með minni
flensuaðferð. Liggja upp í rúmi með
te og þurrkur og lesa skemmtilesn-
ingu um fjármál. Þá er maður að
spara! Ahtzzzjúú. ■
Kœrkveðja,
Sirrý
WWW.S1.IS
stuldur óásættanlegur en að næla
sér í fallegan öskubakka á bar er í
góðu lagi. Að sama skapi má gleyma
því að benda afgreiðslupiltinum á
að hann gleymdi að rukka þig fyr-
ir dýru hanskana sem þú verslaðir
ásamt öðru. Þetta telst frekar vera
heppni en stuldur en fyrir örfáum
árum hefði samviskubitið nagað
flesta. Það sama gildir um lygar en
það er orðið viðurkennt að fólk ljúgi
örlítið á ferilskrá, að nýja makan-
um og svo má ekki gleyma þessum
daglegu lygum sem flestir foreldrar
mata börnin sín á. Framhjáhald er
eitthvað sem er orðið svo algengt í
nútímaþjóðfélagi að flestir kunn-
ingja meðalmannsins hafa einhvern
tímann haldið fram hjá enda er það
ásættanlegt ef þú hittir einhvern
sem er fallegri, kynþokkafyllri eða
skemmtilegri en núverandi maki.
Svona mætti lengi telja og það þarf
einungis að skoða okkar nánasta
umhverfi til að sjá að siðferðið hefur
breyst. Starfsmönnum sem finnast
þeir ekki fá nægilega há laun finnst
sjálfsagt að draga sér peninga til að
jafna sín kjör eða taka heim með sér
ýmislegt af vinnustaðnum. Einnig
heyrist oft sagt að starfsfólk eigi rétt
á tveimur veikindadögum í mánuði
og oft gerist það að fólk hringir sig
inn veikt einungis vegna þessa réttar.
í rauninni má því segja að myndast
hafi allt öðruvísi hegðunarmynstur
þar sem það er á hreinu hvað er rétt
en það er á gráu svæði hvað er rangt
þar sem hægt er að komast upp með
nánast hvað sem er, svo lengi sem
það kemst ekki upp um þig eða hægt
er að búa til brandara úr því. ■
svanhvit@vbl.is