blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 blaöiö Hanna Birna - 2. sætið! STILLUM UPP SIGURLIÐI Á föstudag o§ laugardag verður kosið f prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Um leið og ég hvet allt sjálfstaeðisfólk í Reykjavík til að taka þátt í prófkjörinu, minni ég á að mestu skiptir að við sameinumst um að velja öflugan og sigurstranglegan lista. Þannig tekst okkur að ná góðum árangri í borgarstjórnarkosningunum í vor og búa til heimsins bestu höfuðborg. Ég leita eftir áframhaldandi umboði til að vinna í þágu Reykvíkinga og óska eftir stuðningi í 2. sæti listans. Hanna Birna Kristjénsdóttir, borgarfulltrú: Kosningaskrifstofa stuðningsfólks Hönnu Birnu er í gamla Landssímahúsinu við Austurvöll. Sími 561 0900 - hannabirna@hannabirna.is www.hannabirna.is Sljórnarmynduitar- víðræður í hættu Tveir öflugir leiðtogar œtla ekki að taka sœti í nýju stjórninni. Hátt- settir menn innan Jafnaðarmannaflokksins og Kristilegra demó- krata útiloka ekki að viðrœðurnar renni út í sandinn. Óvíst var um framhald stjórnar- myndunarviðræðna i Þýskalandi í gær eftir að leiðtogar tveggja flokka drógu sig í hlé. Edmund Stoiber, leiðtogi systurflokks Kristilegra demókrata í Bæjaralandi, lýsti í gær yfir að hann myndi ekki taka sæti fjármálaráðherra í nýrri ríkisstjórn landsins. Degi áður hafði hann sagt að flokkur sinn kynni að hætta við þátttöku í stjórninni í ljósi þess að Franz Miintefering lýsti því yfir að hann hyggðist láta af embætti sem formaður Jafnaðarmannaflokksins og að hann myndi að öllum likind- um ekki taka sæti í hinni nýju ríkis- stjórn. Kunna að renna út í sandinn „Við viljum leiða þessar viðræður til lykta á farsælan hátt en ekki er hægt að útiloka að þær muni renna út í sandinn,“ sagði Wolfgang Bosbach, varaleiðtogi Kristilegra demókrata á þingi og náinn banda- maður Angelu Merkel, formanns Edmund Stoiber, leiðtogi systurflokks Kristilegra demókrata í Bæjaralandi, mun ekki taka sæti fjármáiaráðherra f nýrri rfkisstjórn Þýskalands. flokksins. Genot Erler, varaleiðtogi Muntefering ákvað að draga sig jafnaðarmanna á þingi, sagði einn- í hlé í kjölfar þess að flokksfélagar ig að flokkur sinn þyrfti að taka við- hans höfnuðu tillögu hans um nýj- ræðurnar um stjórnarmyndun til an framkvæmdastjóra flokksins. endurskoðunar í ljósi ákvörðunar Stjórnarmyndunarviðræðum þarf Múntefering. að vera lokið fyrir 12. nóvember. ■ Róstursamt í Zanzibar Kjörstjórn á Zanzibar-eyju í Tansaníu lýsti í gær yfir sigri Bylt- ingarflokksins í kosningunum sem fram fóru á sunnudag. Nokkrum klukkustundum áður en úrslitin voru kynnt hafði lögregla umkringt höfuðstöðvar flokksins sem hefur verið við völd í landinu síðan 1964. Áður höfðu báðir stærstu flokkarn- ir lýst yfir sigri í kosningunum. Borgaraleg samfylking lýsti því yfir fyrr um daginn að leiðtogi hennar, Seif Sharif Hamad, hefði fengið rúm 50% atkvæða í kosn- ingum til forseta. Hamad sagði að hvatt yrði til frekari aðgerða ef lýst yrði yfir sigri Amani Abeid Kar- ume, forseta og frambjóðanda Bylt- ingarflokksins. Fyrr um daginn hafði lögregla og öryggissveitir beitt táragasi gegn stuðningsmönnum stjórnar- andstöðunnar og var það þriðji dagurinn í röð sem ofbeldi braust út í kjölfar kosninganna. Frétta- menn Reuters-fréttastofunnar sáu lögreglu berja og kasta táragasi í Öryggissveitir á Zanzibar hafa meðal annars þurft að beita táragasi i átökum við stuðn- ingsmenn stjórnarandstöðunnar í kjölfar kosninganna á sunnudag. átt að ungum stuðningsmönnum Sumir mótmælenda storkuðu lög- Borgaralegu samfylkingarinnar reglu með því að kasta steinum og sem höfðu safnast saman við höfuð- kveikja elda á götum. Aðrir sungu stöðvar flokksins í Stone Town við friðarsöngva og héldu vopnum sín- strönd Indlandshafs. um á lofti. ■ Stríðið gegn hryðjuverkum harkalega gagnrýnt: Kemur niður á baráttu gegn hungri Jean Ziegler, matvælafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, segir að stríðið gegn hryðjuverkum ógni baráttunni gegn hungri í heimin- um. Ziegler gagnrýndi alþjóðasam- félagið og Bandaríkin fyrir ranga forgangsröðun í þessum efnum í ávarpi sem hann hélt í höfuðstöðv- um Sameinuðu þjóðanna í New York í síðustu viku. Hann sagði enn- fremur að þrátt fyrir þúsaldarmark- mið S.Þ. hefði alvarlega vannærð- um konum og börnum fjölgað í heiminum. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa heitið því að draga úr hungri í heiminum um helming á næsta áratug. Athugasemdir Zie- glers voru í takt við yfirlýsingar sem hann gaf út í Genf í Sviss fyrir rúmum tveimur vikum. Ziegler segir að á sama tíma og al- þjóðasamfélagið getur ekki útvegað nóg af matvælum til að vinna bug á hungri hafi framlög til hernaðar aldrei verið meiri. Benti hann enn- fremur á að matvælaaðstoð Samein- uðu þjóðanna, sem tryggir það að milljónir manna lifi af, hefði staðið frammi fyrir um 30% niðurskurði á fjárframlögum á síðasta ári. Bretar og Bandaríkjamenn gera lítið úr athugasemdunum Bandaríkin og Bretland gerðu lít- ið úr athugasemdum Zieglers og sökuðu hann um að kynda undir hryðjuverk með yfirlýsingum sín- um og að vera handbendi alþjóð- legra félagasamtaka. Kínverjar tóku aftur á móti undir með Ziegler og sökuðu Bandaríkin, stærsta vopna- framleiðsluland heimsins, um að eiga stóran þátt í því hversu illa hefur tekist að vinna bug á hungri. Fulltrúi þeirra sagði að stríðið gegn hryðjuverkum væri ranglátt og óskilvirkt og þj ónaði eingöngu hags- munum bandarískra fyrirtækja. Jean Ziegler, matvælafulltrúi hjá Samein- uðu þjóðunum, átelur alþjóðasamfélagið fyrir að láta matvælaaðstoð sitja á hakan- um á sama tíma og framlög til hernaðar- mála hafi aldrei verið meiri.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.