blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 blaöiö Mosfellsbcer: Skóflustunga tekin að ör- yggisíbúðum f gær var tekin fyrsta skóflu- stungan að 39 öryggisíbúðum fyrir aldraða sem munu rísa við Hlaðhamra í Mosfellsbæ. Við framkvæmdina mun framboð af þess háttar íbúðum þrefaldast í bænum. Það er Eir öldrunarþjónusta sem annast framkvæmdina skv. samningi við bæinn. Húsið verður á þrem- ur til fjórum hæðum og er það byggt sem þrjár húseiningar sem tengjast munu saman með glerjuðum einingum. Stefnt er að því að reisa hjúkrunarheim- ili fyrir aldraða á sömu lóð. Skjárinn veldur skálfta: Hvetja félagsmenn til að rífa auglýsingu úr Myndum mánaðarins Samtök nokkurra myndabandaleiga hvetja félagsmenn til að rífa auglýsingu frá Skjánum úr blaðinu Myndir mánaðarins. f tölvupósti sem Blaðið hefur und- ir höndum eru félagsmenn Filmco, regnhlífarsamtaka um 30 mynda- bandaleiga, hvattir til að rífa aug- lýsingu frá Skjánum úr nýjasta tölublaði Myndir mánaðarins. f tölvupóstinum segir: „Álit stjórnar félagsins er að þetta fyrirtæki sé ekkert annað en mynd- bandaleiga með heimsendingarþjón- ustu, ogsé með öliu óviðeigandi að birt sé augiýsing í blaði sem á að vera helsta tæki okkar í markaðs- setningu. Félagsmenn er hvattir til að fjar- lægja þessa síðu úr blaðinu áður en þeir afhenda það viðskiptavinum“. Helsta tæki til markaðssetningar Skjárinn er ný þjónusta Símans, þar sem viðskiptavinir geta leigt sér kvikmyndir i gegnum nettengingu. Ásgeir Þormóðsson, stjórnarfor- maður Filmco staðfesti í samtali við Blaðið að áskorunin hefði verið send út. Hann segir að ávalt hafi ver- ið þær reglur í gildi að engar mynd- bandaleigur megi auglýsa í Mynd- um mánaðarins. „Stærsta myndbandaleiga landsins á ekert erindi í okkar blað” segir Ás- geir. Hann segir ennfremur að blað- ið sé helsta tæki myndbandaleiga til markaðssetningar, og því ólíðandi að stór samkeppnisaðili myndbanda- leiga auglýsi í biaðinu. Á gráu svæði Útefandi Mynda Mánaðarins er Myndmark. Smári Vilhjálmsson er formaður þess segist í sjálfu sér ekki undrandi á þessum viðbrögðum. En voru þá gerð mistök við útgáfuna? „Já, það hefði þurft að ræða þetta áður en blaðið kom út”. Hann bend- ir þó á að Skjárinn sé ekki í beinni samkeppni við myndbandaleigur, því vegna reglna um útgáfu á mynd- böndum séu myndir búnar að vera í útieigu í fjóra mánuði í myndbanda- leigum, áður en Skjárinn megi leigja þær út. WARTNER Vörtubaninn Vegabréf: Ljósmyndarar ósáttir við nýjar reglur yeifáíí Frystu vörtuna burt. Tekur aðeins 20 sek. ísienskar leiðbeiningar. Fæst í apótekum. www.medico.is Passamyndir verða innan skamms teknar hjá sýslumanni. Ljósmyndarar hafa lýst sig ósátta við fyrirkomulagið en dómsmálaráðuneytið segir að um hagrœðifyrir almenning sé að rœða „Þetta mál er bara út í hött,“ segir Gunnar Leifur Jónasson, formaður Ljósmyndarafélags ísiands. „Ég tei að þetta sé bara ófært. Þeir hljóta að þurfa að ráða ljósmyndara inn á sýslumannsskrifstofur til að taka þessar myndir þar sem þetta er lög- verndað starf. Okkar aðkoma að þessu máli er líka skrítin því við heyrum eiginlega af þessu frá út- löndum. Við erum að fara á fund hjá fulltrúa ráðuney tisins þar sem farið verður yfir þessi mál. Það er búið að bjóða þetta út og við höfum ekkert heyrt. Það minnsta sem hefði verið hægt að gera hefði verið að láta okk- ur vita að þeir hefðu ekki áhuga á www.diza.is Velkomin í eins árs afmælið okkar! 15% afmælisafsláttur 2. - 5. nóvember Bútasaumsefni, prjónagarn, náttfatnaður ofl.ofl. Diza efif Ingóifsstrætí 6 sími 561-4000 ______opið 11-18 virka daga, 12-16 laugardaga i Sjónarhóll í Hafnarfiröi ö ðruvísi gleraugnaverslun www.sjonarhoii.is Þ a r s e m gæöagleraugu 'minna S. 565^5970 Reykjavíkurveguí 22 okkar þjónustu.“ Gunnar segist vilja fá skýringar á því hvers vegna verið sé að halda úti námi í ljósmyndun, og ef þetta eigi að vera svona, hvort eigi þá að leggja níður lögverndun á starfi ljósmyndarans. Gæta hagsmuna almennings „Þetta eru auðvitað hagsmunasam- tök sem þarna eru að verja sitt,“ seg- ir Þorsteinn Helgi Steinarsson hjá dómsmálaráðuneytinu. „I grunn- inn eru þetta kröfur frá alþjóðlegu flugmálastjórninni sem skilgreina hvernig vegabréf eigi að líta út. Þeir hafa sett fram kröfur fyrir framtíð- ina um lífkenni í vegabréf. Skyldu- lífkenni er ljósmynd og siðan eru möguleikar á fingraförum og augn- mynd. Schengen samstarfið kveð- ur einnig á um að fingraför verði höfð með. Það að bæta lífkennum í vegabréf er hugsað til að tæknin geti flýtt fyrir afgreiðslu á flugvöll- um. Þar að auki er aukið öryggi samfara þessu. Myndin verður því geymd í örgjörva í vegabréfinu og síðan mun tölva greina myndina og gera samanburð við þann sem á vegabréfinu heldur. Þessi rafræna auðkenning er mun öruggari en þeg- ar fólk er að bera þetta saman.“ Þor- steinn segir að hingað til hafi menn komið sjálfir með myndir í vegabréf sín. „Þetta má ekki lengur og okkar nálgun er að gera þetta þannig að þetta sé eins hagkvæmt og hægt er fyrir okkur og sem þægilegast fyrir Þverúlfur grimmi bestur fyrir börnin (gaer voru afhent verðlaun í samkeppni um besta handritið að myndskreyttri sögu handa ungum lesendum. Það var Bókaútgáfa Æskunnar sem stóð að samkeppninni en tilefnið er 75 ára afmæli útgáfufyrirtækisins. Fyrstu verðlaun hlaut Þorgerður Jörunds- dóttir, myndlistarmaður, fyrir verk sitt Þverúlfs saga grimma og námu verðlaunin 400 þúsund krónum. Það voru Suzuki-bílar á fslandi og Sigurjón Sighvatsson sem lögðu til verðlaunafé. þegnanna.“ Ljósmyndarar hafa bent á að til að gæta öryggis yrði sett upp kerfi þar sem þeir sendi myndina til sýslumanns. „Þetta er kerfi sem vissulega er mögulegt,“ segir Þor- steinn. „Þetta er hins vegar líklega mun dýrari lausn og einstaklingur- inn þarf hvort sem er alltaf að koma á umsóknarstaðinn." Einfaldara er að mati Þorsteins að kaupa bara myndavélar og setja upp á hverjum umsóknarstað. „Stóri punkturinn er hins vegar sá að til þess að tryggja það að gögnin séu rétt verðum við að sannreyna það með því að bera þau saman við viðkomandi einstak- ling. Hugmyndin er sú að vél sjái um það en ekki einstaklingur því það er mun öruggara. Þá verðum við að taka af honum mynd hvort sem er til að bera saman við myndina sem hann kæmi með svo menn geta séð að þetta nær ekki nokkuri átt.“ Frá okkar bæjardyrum séð er því eini tilgangurinn með því að láta ljós- myndara úti í bæ sjá um þetta sá, að tryggja ljósmyndurum einhverja vinnu. Það yrði hins vegar á kostn- að okkar og almennings og það er ekki okkar hlutverk að vera að gæta einhverra sérhagsmuna. Við gætum fyrst og fremst hagsmuna almenn- ings,“ segir Þorsteinn. Landhelgisgœslan: Þyrla sótti veikan sjómann TF Líf, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, sótti veikan sjómann um borð í togarann Guðmund í Nesi í gærmorgun. Togarinn var staðsettur um 85 sjómílur út af Patreksfirði þegar áhöfn hans óskaði eftir aðstoð Land- helgisgæslunnar. Þyrlan fór í loftið laust fyrir kl. 10 og var komin að skipinu um ellefuleyt- ið. Sjómaðurinn var fluttur á Landspítalann háskólasjúkra- hús þar sem hann nýtur nú að- hlynningar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.