blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 33
Mynd/NASA, ESA og G. Bacon (STScl)
blaðid MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER
AFÞREYING I 33
Nýir tylgi-
hnettir Plútó
I fyrradag tilkynntu nokkrir stjörnufræðingar um fund á tveimur agn-
arsmáum tunglum á sveimi í kringum Plútó. Þessi tungl eru hin fyrstu
sem finnast við Plútó frá því að Karon fannst árið 1978. Þau hafa ekki
hlotið nein varanleg nöfn enn sem komið er en eru til bráðabirgða köll-
uð S/2005 Pi og S/2005 P2. Fyrirhugað er að mynda Plútó aftur með
Hubblessjónaukanum í febrúar á næsta ári, skömmu eftir að New Hor-
izons-geimfarinu hefur verið skotið á loft. Vonast er til að uppgötvunin
verði formlega staðfest þá og að þekking okkar á tunglunum aukist í
kjölfarið.
Frekari upplýsingar er að finna á stjörnufræðivefnum, www.stjorn-
uskodun.is.
Með bankann
í vasanum
Nígeríubúar fagna því að nú er hægt
að nota farsíma til þess að stunda
bankaviðskipti en sú tækni opnar
nú milljónum manna möguleikann
á viðskiptum sem áður var einskorð-
aður við ríkari hverfi landsins. Far-
símar hafa gjörbreytt öllum háttum
í fátækari byggðum Afríku á undan-
förnum árum.
Google
endurræsir
skannann
Google hefúr ákveðið að hefja
aftur verkefni sitt sem miðar að
því að koma milljónum bóka-
safnsbóka á stafrænt form svo
hægt sé að leita í þeim á Netinu.
Leitarrisinn hefúr ákveðið að
halda áfram með þetta verkefni
þrátt fyrir aukinn þrýsting
frá lögmönnum útgefenda og
höfunda. Forráðamenn Google
neita hins vegar allri sök um
höfundarréttarbrot. Þrátt fyrir
það virðist ætlunin vera að
lægja öldurnar þar sem nú
mun skanninn einbeita sér að
bókum sem hætt er að prenta
og höfundarréttur er útrunninn.
Gates berst
gegn mýra-
köldu
„Það er veruleg synd að heim-
urinn skuli ekki gera meira til
þess að stöðva sjúkdóm sem
verður 2.000 afrískum börnum
að bana á degi hverjum,“ sagði
Bill Gates, stjórnarformaður
Microsoft þegar hann tilkynnti
að sjóður í nafni hans og konu
hans myndi verja andvirði
tæplega 16 milljörðum króna
til rannsókna á mýraköldu.
„Ef þessi börn byggju í ríkari
löndum kæmist þetta í blöðin.
Við myndum gera eitthvað í
málunum, við myndum ekki
hvílast fyrr en hvert barn væri
öruggt." Mýraköldurannsóknir
fá einungis einn þriðja af einu
prósenti af öllum íjárveiting-
um til læknarannsókna þrátt
fyrir að hún sé orsök 3% allra
dauðsfalla. Milljarðarnir
frá Gates munu flýta þróun
nýrra lyfja, bóluefna og auka
varnir gegn moskítóflugum.
Þráðlaust
samband
um alla jörð
Stórfyrirtæki á fjarskiptamark-
aði, Inmarsat, mun innan
nokkurra vikna senda annan
tveggja gervihnatta sinna út
fyrir lofthjúp jarðar en þeim
er ætlað að verða öflugasta
fjarskiptatæki á sínu sviði.
Saman munu þeir mynda
stærsta háhraða netsvæði í
heiminum, eða ná til 88% landa
á jörðinni. Tengingin verður
heldur ekkert grín heldur
verður gagnaflutningshraði allt
að 492 Kbps. Til þess að taka
við sendingum hnattanna þarf
ákveðna græju frá Inmarsat en
hún verður á stærð við fartölvu.