blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 37
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
DAGSKRÁ I 37
(var Örn er leikari í Kallakaffi
Hvað finnst þér um Silvíu Nótt?
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það gott. Ég er á leiðinni til Japan
eftir tuttugu daga og er að undirbúa
mánaðarferð.
Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna f
skemmtanabransanum?
Ég byrjaði mjög snemma. Það má segja
að ég hafi byrjað þegar ég var níu ára en
ég vann í öllum helstu leikhúsunum þeg-
ar ég var lítill. Þá fór ég með lítið hlutverk
í Njálssögu og var í sjónvarpsþætti hjá
Hilmari Oddsyni ísunnudagsleikhúsinu
en Kallakaffi erfyrsta stóra hlutverkið
mitt. Mér finnst mjög gaman að vinna í
sjónvarpsþáttum, það þarf að vinna hratt
og það er mikil pressa. Það er í rauninni
mikið í húfi og ég kann vel við það.
Langaði þig að verða leikari þegar þú
varst lítill?
Ég byrjaði svo snemma að ég var ekki
einu sinni búinn að velta því fyrir mér
áður en ég ákvað það. Þetta hefur alltaf
verið eðlilegur hlutur finnst mér að koma
fram og leika. Það má segja að fjölskyldan
mín hafi öll verið í skemmtanabransanum
en mamma kom mikið fram sem dansari.
Pabbi er söngvari og byrjaði mjög ungur
að troða upp á sveitaböllum þar sem
pabbi hans spilaði á harmonikku. Þannig
má segja að ég hafi verið alinn upp í það
að verða leikari, alla vega voru foreldrar
EITTHVAÐ FYRIR...
Stöð i - What not to Wear
- kl. 20:30
Hér eru snjallar tískulöggur kall-
aðar til verka og árangurinn er
ótrúlegur. Þeir sem áður voru til
skammar í klæðaburði fá nú ný föt
til að klæðast og ef þurfa þykir er
hárið og förðunin líka tekin í gegn.
Skjár 1 - Sirrý - kl. 21:00
Spjallþáttadrottningin Sigríður
Arnardóttir snýr aftur með þáttinn
sinn Fólk með Sirrý. Hún heldur
áfram að taka á öllum mannlegum
hliðum samfélagsins, fá áhugaverða
einstaklinga til sín í sjónvarpssal
og ræða um málefni sem snúa að
okkur öllum með einum eða öðrum
hætti.
Stöð 2 bíó - Plan B - kl. 20:00
Gamanmynd um ekkjuna Fran Mal-
one sem gerist leigumorðingi hjá
mági sínum. Með því vonast hún til
að laga afleita fjárhagsstöðu sína en
málið er samt ekki svo einfalt. Fran
er nefnilega ófær um að myrða
aðra manneskju og verður því að
grípa til annarra ráða ef hún ætlar
að halda starfinu. Aðalhlutverk:
Diane Keaton, Paul Sorvino, Burt
Young. Leikstjóri: Greg Yaitanes.
2001. Bönnuð börnum.
Auglýsingadeild 510-3744
Eyrún Arnarsdóttir
Mér finnst hún æði. Mér
finnst hún töff.
Kristín Elva
Rögnvaldsdóttir
Mér finnst hún æðisleg.
Hjálmar Karlsson
Mér finnst hún æðisleg, gott
framtak.
WPmT www. turbochef. com
^ *S: 567-8888
Eitthvað fyrir alla.
OPIÐ’-
Verð í algjöru lágmarki og bónus við magnkaup. v'r^ra^a; 10-17
Gríptu bókina, jólin nálgast.
|Skjaldborg^^^)
Skjaldborg - Mörkinni 1 - sími: 588 2400
Netfang: skjaldborg@skjaldborg.is
OFN engum öðrum líkur !
Er snöggur
Ekki þörf á loftræstingu
Eldar góðan mat
Tekur lítið pláss
Alltaf tilbúinn til eldunar
Einfaldur í notkun
Ódýr í rekstri
Borgar sig fljótt upp
Sharon Osbourne komst í
klandur fyrir að daðra við
poppstjörnuna Shayne Ward.
Hún sagði við hann: „Ég hef svolítið
að gefa þér. Það er heitt og sætt og
lyktar vel.“ Þegar hann spurði hvað
það væri þá sagði hún að það væri
þeirra á milli og að hún myndi ná
í það seinna. Umsjónarmenn þáttar-
ins voru ekki ánægðir með þetta og
sögðu að Sharon virtist hafa gleymt
að um fjölskylduþátt væri að ræða.
Jóna Sjöfn Huntington
Williams
Mér finnst hún skemmtileg,
það er einn af uppáhalds
þáttunum mínum.
Viktor Steinar
Þorvaldsson
Mér finnst hún mjög fyndin,
en samt mjög misskilin.
Hilmar Ólafsson
Hún er ömurleg. Mér finnst
þetta líklega ein mest
.böggandi" manneskja í
íslensku sjónvarpi í dag.
Sharon
beðin um
að hœtta
að daðra
við Shayne
Flutt í Mörkina 1
Arleg bókaútsala SKJALDBORGAR
hefst 28. október 2005
mínir afskaplega ánægðir þegar ég
ákvað að fara í Leiklistarskólann.
Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið
þitt?
Mérfinnst Southpark mjög skemmtilegt
og hef dottið inn í nokkra raunveruleika-
þætti. Ég hef til dæmis horft á alla Con-
tender seríuna og ég horfi á America's
NextTop Model með kærustunni minni.
Þá horfi ég auðvitað á Kallakaffi en ég
missi ekki af einum einasta þætti.
Er vinnan í sjónvarpi öðruvísi en þú
hafðir búist við?
A vissan hátt. Ég hafði litla reynsiu af
svona vinnu og þetta er miklu skemmti-
legra en ég bjóst við.
Hvernig er að horfa á sjáifan þig í
sjónvarpi?
Eg hef mjög gaman af því. Það er mjög
lærdómsríkt að sjá hvernig maður kemur
út og að sumu leyti er hægt að líta á það
sem kennsluefni.
Hver er uppáhalds útvarpsstöðin þín?
Ég held að flesta útvarpsmenn mína sé
að finna á Rás 1 og Rás 2. Ég hef gaman
af metnaðarfullum þáttum þarsem mis-
munandi tónlistarstefnur eru teknar fyrir.