blaðið - 14.11.2005, Side 2
2 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 blaöiö
SUSHI
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Baugsmálið:
Fyrirtaka í
héraðsdómi
ídag
Fyrirtaka þeirra ákæruliða
Ríkislögreglustjóra gegn
Baugi, sem komust í gegnum
nálarauga Hæstaréttar, verður
kl. 9.15 í dag. Þar mun Jón H.B.
Snorrason, saksóknari, leggja
fram ákæru í 8 liðum af hinum
40, sem upphaflega voru lagðir
fram í héraðsdómi í ágúst.
Hæstiréttur vísaði 32 liðum
ákærunnar frá dómi með
úrskurði hinn 10. október, en
þeir sem eftir standa verða
teknir fyrir í dag. I framhaldi
fékk embætti ríkissaksóknara
málið til rneðferðar, en Bogi
Nilsson, ríkissaksóknari, sagði
sig, og þar með starfsfólk sitt,
frá málinu vegna vensla við
menn sem starfað hafa með
þremur af sakborningum í mál-
inu, endurskoðendum Baugs og
fyrrverandi framkvæmdastjóra
Baugs. Dómsmálaráðherra
fól þá Sigurði Tómasi Magn-
ússyni, íyrrverandi héraðs-
dómara, þá þætti málsins.
Varnarmál:
Mikið
ber á milli
Viðræður Islendinga og Banda-
ríkjamanna um varnarsamstarf
þjóðanna ganga stirðlega.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum
eru sögð vilja að íslendingar
greiði nær allan jaðarkostnað
við rekstur varnarstöðvarinn-
ar annan en laun hermanna
og rekstur hernaðartækja.
Það fæli að líkindum í sér að
íslendingar tækju nánast að
sér rekstur varnarstöðvar-
innar, en ekki aðeins rekstur
flugvallarins, eins og íslensk
stjórnvöld hafa boðið. Þetta
kom fram í fréttum RÚV.Yfir-
lýsingar Halldórs Ásgrímssonar,
forsætisráðherra, um helgina
hafa vakið athygli í þessu
samhengi, en þar gaf hann það
í skyn að hugsanlega þyrft i að
leita til Evrópuþjóða til þess
að tryggja varnir íslands.
Baugur kaupir
skartgripakeöju
á 3 milljarða
Baugur er í þann veginn að ganga
frá kaupum á bresku skartgripakeðj-
unni MW Group og er kaupverðið
sagt vera á bilinu 25-30 milljónir
sterlingspunda eða jafnvirði um 2,7-
3,2 milljarða íslenskra króna. MW
Group á skartgripakeðjuna Mappin
& Webb auk úraverslanakeðjunnar
Watches of Switzerland. Talið er að
samningar takist í vikunni.
MW Group á 32 verslanir á Bret-
landi og það er fjárfestingarfélagið
European Acquisition Capital, sem
selur, en það á um % hlutafjár í MW
Group. Afgangurinn er í eigu lykil-
stjórnenda. Félagið var stofnað til
þess að kaupa fyrrgreindar verslanir
í félagi við stjórnendurna árið 1998,
en það var Asprey & Garrard, sem
þá átti þær, en hafði rekið með tapi
um nokkurt skeið. Það tók hins veg-
ar innan við ár að snúa rekstrinum
við en hagnaður á síðasta ári var um
173 milljónir íslenskra króna.
Með þessum kaupum hyggst Baug-
ur að líkindum ná fótfestu í fínni
enda skartgripabransans, sem hefur
sótt í sig veðrið að undanförnu, en
fyrir á Baugur Goldsmiths skart- sérhæft sig í lúxusvarningi á borð
gripaverslunarkeðjuna, sem þykir við skartgripi frá Georg Jensen og
meira fyrir almenning. Mappin & úrum frá Jaeger Le-Coultre.
Webb eru opinberir silfursmiðir Baugur nýtur aðstoðar Lands-
drottningar og ríkisarfans og hefur bankans í samningaviðræðunum. ■
Elstur íslenskra karlmanna
Guðmundur Daöason 105 ára
BlaÖiÖ/Steinar Huqí
I gær hélt Guðmundur Daðason upp
á 105 ára afmæli sitt og er hann elsti
núlifandi karlmaðurinn hér á landi.
Hann var áður bóndi á Skógarströnd
en býr nú á dvalarheimilinu Holts-
búð í Garðabæ. Guðmundur hefur
oft verið nefndur elsti framsóknar-
maður í heimi, svo það er viðeigandi
að á myndinni hér til hliðar situr
hann við afmælisgjöf frá formanni
sínum, Halldóri Asgrímssyni. Guð-
mundur er fæddur að Dröngum á
Skógarströnd aldamótaárið 1900 og
var bóndi á bænum Ósi. Hann var
kvæntur Sigurlaugu Maríu Jónsdótt-
ur og eignuðust þau fimm börn. Þau
hjónin fluttust til Reykjavíkur árið
1968. Árið 2000 fluttist Guðmundur
á dvalarheimilið. Sjónin er farin að
daprast og heyrnin sömuleiðis en
hann er enn ern miðað við aldur.
Að sögn dóttur hans hlustar hann á
fréttir og fylgist vel með dægurmála-
umræðunni. Einnig er hann dugleg-
ur við að spila á kvöldin. ■
Prátt fyrir
Atvinnuleysi hefur minnkað mjög
hratt að undanförnu og nam aðeins
1,4% að jafnaði í september síðastliðn-
um. Þrátt fyrir það eru alls um 2.500
manns, sem ganga atvinnulausir, þar
af um 1.500 á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta gerist á sama tíma og mikil
mannekla er um land allt í velflestum
atvinnugreinum og erlent vinnuafl er
flutt til landsins í miklum mæli.
Um 30% atvinnulausra búa við
langtímaatvinnuleysi, en þá er átt
manneklu
við að þeir hafi verið atvinnulausir í
misseri eða meira.
Atvinnuástand er með besta móti,
en í lok september voru 1.726 störf
skráð laus í landinu. Manneklan er
þó vafalaust meiri, því ekki eru öll
störf skráð laus og atvinnuauglýsing-
ar eru með mesta móti í blöðum. Það
segir svo sína sögu að það sem af er
árinu 2005 hafa 4.237 atvinnuleyfi
verið gefin út til útlendinga. Álvers-
framkvæmdir á Austurlandi vega
eru 2.500
þungt í því samhengi, en eru þó eng-
an veginn eina aðdráttaraflið.
Atvinnuleysi er eins og jafnan
meira meðal kvenna en karla og er
nær enginn munur á stöðu kvenna
hvað þetta varðar eftir búsetu. At-
vinnuleysi karla er hins vegar merkj-
anlega meira á höfuðborgarsvæðinu
en utan þess. Hins vegar vekur at-
hygli að atvinnuleysi er furðujafnt
milli aldurshópa.
Atvinnuleysi hefur raunar minnk-
án vinnu
að jafnt og þétt allt þetta ár. Aðeins
meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu
hefur atvinnuleysi verið að sveiflast
til yfir árið, en hefur einnig minnkað
hratt meðal þeirra síðustu tvo mán-
uði, einkum milli ágústs og septemb-
er. Atvinnuleysi hefur ekki mælst
minna í einstökum mánuði frá því í
október 2001. Vinnumálastofnun tel-
ur að atvinnuleysi reynist svipað eða
aukist lítið eitt í októbermánuði ef
mið er tekið af þróun undanfarin ár.
RETTUR
DAGSINS
fiskur eða kjöt
f ipf
I fl r r
ADESSO
2. haeð í Smáralind v/Vetrargarðinn
alla virka daga
komdu og smakkaðu!
opið virka daga 10.00-19.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30:18.00
simi 544 2332
www.adesso.is
O Helðsklrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
í
Rigning, lítilsháttar /// Rigning 5 9 Súld Snjókoma
9 *
-T- •
^J Slydda ^j Snjóél ^j
Skúr
Amsterdam 08
Barcelona 18
Berlín 07
Chicago 01
Frankfurt 08
Hamborg 07
Helsinki 05
Kaupmannahöfn 08
London 08
Madrid 09
Mallorka 20
Montreal 07
New York 14
Orlando 17
Osló 09
Paris 10
Stokkhólmur 06
Þórshöfn 06
Vfn 06
Algarve 15
Dublin 09
Glasgow 11
2°^ .
•4X
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upptýsingum frá Veðuretofu fslands
Á morgun