blaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 blaöÍA Glæsilegt úrval af náttfatnaði fvrir dömur Opnunartími mán-fös. 10-18 laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 200 Kópavogi Sími 554 4433 Auglýsingadeíid 510-3744 blaóió Uppgötvanir íslenskrar erfðagreiningar vekja athygli Hlutabréfaverö deCODE tekur kipp upp á við. Hœkkunin undanfarið ár nemur 40%. Fregnir af birtingu á rannsóknar- árangri íslenskrar erfðagreiningar hafa vakið talsverða athygli erlend- is, bæði í almennum fjölmiðlum og ekki síður í sérfræðifjölmiðlum. { grein eftir vísindamenn og sam- starfsaðila íslenskrar erfðagrein- ingar, sem birt var í fræðiritinu Nat- ure Genetics á fimmtudag, var lýst uppgötvun á erfðabreytileika, sem tengist auknum líkum á hjartaáföll- um. Sérstaklega vekur athygli að þó þessi breytileiki sé frekar fátíður meðal bandarískra svertingja eykur hann líkur á hjartaáfalli um 250% meðal þeirra, sem hann bera. Með- al íslendinga og hvítra Bandaríkja- manna er hann algengari, en ekki nærri jafnlíklegur til þess að valda hjartaáfalli. íslensk erfðagreining hyggst framleiða próf til þess að kanna hvort menn hafi þennan erfðabreytileika eða ekki, auk þess að framleiða hjartalyf, til þess að minnka líkurnar á að fólk í þessum áhættuhópi verði hjartaáfalli að bráð. Áhrif þessara fregna kunna einnig að hafa gætt í gengi hlutabréfa í deCODE Genetics (NasdaqrDCGN), móðurfélags íslenskrar erfðagrein- ingar. Þannig steig verðið alla und- anfarna viku úr rétt rúmum 8,50 Bandaríkjadölum í 9,70 dali. Hækk- unin var að mestu komin fram þeg- ar fregnirnar bárust, sem kann að benda til þess að þær hafi verið farn- ar að kvisast út. Ekki lágu þó mikil viðskipti að baki þessari hækkun, en talsverð viðskipti urðu á fimmtu- dag, áður en fyrirtækið tilkynnti um birtingu fræðigreinar í Nature Genetics, þar sem rannsóknarniður- stöðurnar voru kynntar. Á föstudag voru viðskiptin svo nokkru fjörlegri og endaði verðið, sem fyrr segir, í 9,70 Bandaríkjadölum. Hlutafjárgengi deCODE Genetics undanfarið ár hefur verið nokkuð sveiflukennt. Það dalaði talsvert í vor, en hefur náð sér verulega á strik í sumar og nemur árshækkunin 40% eftir hækkunina fyrir helgi. ■ Blaöiö/Steinar Hugi Hreyfill: Lögregla sýndi mjög góð viðbrögð Leigubílastöðin Hreyfill hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta af illri meðferð lögreglu á einum leigu- bílstjóra fyrirtækisins. Forsaga málsins er sú að bílstjórinn kallaði eftir lögregluaðstoð vegna konu sem hótaði honum með byssu, sem síðar kom í ljós að var gervibyssa. Sérsveit lögreglunnar kom á staðinn og hand- tók konuna, og raunar bílstjórann líka sem mótmælti þeim aðferðum sem notaðar voru til að yfirbuga kon- una. Hreyfill tekur í yfirlýsingunni heilshugar undir sjónarmið lögregl- unnar í málinu. Sú töf sem varð á því að aðstoð barst er alls'ekki lög- reglu að kenna segir í yfirlýsingunni, heldur má rekja hana til misvísandi leiðbeininga bílstjórans. Hann bað um aðstoð við Orkuhúsið og var talið að hann ætti við nýjar höfuð- stöðvar Orkuveitunnar, en ekki þær gömlu. Hann tilkynnti heldur ekki strax um að konan væri vopnuð en Hreyfill kom þeim upplýsingum á framfæri eins fljótt og auðið var svo lögregla gæti brugðist við á réttan hátt. Gagnrýndi framgöngu lögreglu Bilstjórinn hefur einnig gagnrýnt framgang lögreglu á staðnum harð- lega en Hreyfils-menn segja að flestir bílstjórar séu sammála um að hárrétt hafi verið brugðist við. Þeir segja skilning ríkja um það að tryggja þurfi með öllum ráðum öryggi á vettvangi og ekki sé líð- andi að einhver annar en lögreglan stjórni þeim aðgerðum. Einnig er tekið fram í tilkynningunni að öll- um megi vera ljóst að sé reynt að hindra lögreglu í starfi megi viðkom- andi búast við að verða handtekinn. Að endingu segir: „Viljum við þakka lögreglunni fyrir mjög góð viðbrögð og hörmum þær yfirlýsingar sem bílstjórinn hefur ítrekað látið hafa eftir sér í fjölmiðlum um störf lög- reglunnar." ■ mui NR.1 í AMERlKU SILYMARIN LIFRARHREINSUN GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI Ein af tíu best myndskreyttu barnabókunum í Bandaríkjunum Bókin Hænur eru hermikrákur er nýútkomin hjá bókaforlaginu Sölku. Hún er eftir Bruce McMillan og heitir á frummálinu The problem with Chickens. Myndskreytingar 1 bókinni eru eftir íslensku mynd- listarkonuna Gunnellu og er sagan tilnefnd af New York Times sem ein af 10 best myndskreyttu barna- bókunum sem út koma þar í landi í ár. Blaðamaður NY Times fer fögr- um orðum um bókina og ekki síst myndirnar. í greininni kemur fram að rithöfundurinn hafi heillast svo af málverkum Gunnellu að hann hafi ákveðið að skrifa sögu út frá myndaröð listakonunnar. Hún mál- aði svo fleiri myndir til að fylla inn í söguþráð McMillans. ■ Bruce McMillan Gunnellu Sigurður A. Magnússon SKJALASKANNAR Meiri gæði ■ Meiri hraði • Minna álag Nýju skjalaskannarnir frá Canon gera þér kleift að skanna hraðar án þess að tapa gæðum. Þannig nærðu þeim tímamörkum sem þú setur þér. Canon DR2050C Nettur skanni sem skilar góðum hraða og gæðum • Frumritamatari: 50 bls. ■ Afköst: 25 bls. á mín. í svörtu og lit. ■ Upplausn: 600 dpi. • Gráskala- og litskönnun. Tilboðsverð 49.900 kr. Listaverð 69.900 kr. Canon DR2580C Skörp og hraðvirk skönnun í lit og „duplex" ■ Frumritamatari: 50 bls. ■ Afköst: 25 bls. á mín. í svörtu og lit. ■ Upplausn: 600 dpi. • Gráskala- og litskönnun. • Tenging: USB 2. Tilboðsverð 67.500 kr. Listaverð 89.900 kr. Canon DR3080C Hraði og gæði í fyrirrúmi • Frumritamatari: 100 bls. ■ Afköst: 40 bls. á mín. í svörtu og lit. • Upplausn: 300 dpi. • Gráskala- og litskönnun. • Tvíhliða (duplex) skönnun. • Tenging: SCSI 2/USB 2.0. Tilboðsverð 209.900 kr. Listaverð 269.900 kr. NÝHERJI Nýherji hf. • Borgartúni 37 ■ 105 Reykjavík ■ Sími 569 7700 ■ www.nyherji.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.