blaðið


blaðið - 14.11.2005, Qupperneq 12

blaðið - 14.11.2005, Qupperneq 12
12 I ÁLIT MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 bla6iö Brottfall úr framhaldsskólanámi Hvað er til ráða? Samkvæmt op- inberum tölum útskrifast innan við 70% íslenskra framhaldsskóla- nema, en meðaltal OECD-ríkjanna er 82%, og af því að við berum okkur gjarnan saman við hin Norðurlöndin má benda á að í Svíþjóð útskrifast um 90% framhaldsskólanema. Þetta mikla brottfall, sem ýmis- legt bendir til að sé frekar að aukast en hitt, er einn stærsti vandi skóla- kerfisins. Ýmsar leiðir hafa verið reyndar til þess að hvetja nemendur til náms og draga úr brottfallinu. Þegar fjölbrautaskólarnir hófu starf- semi sína var tilgangurinn meðal annars að bjóða upp á styttri og fjölbreyttari námsbrautir sem ekki endilega leiddu til stúdentsprófs. Þá átti, að því að mig minnir, að auka verulega hlut starfsnáms innan framhaldsskólanna. Því miður hef- ur raunin orðið önnur. Ef til vill er ástæðan sú að það reiknilíkan sem notað er til dreif- ingar á fjármagni til framhaldsskól- anna skilar starfsnáminu ekki því fjármagni sem til þarf svo halda megi því úti með sómasamlegum hætti. Samtök iðnaðarins hafa harka- lega gagnrýnt reiknilíkanið og segja það ónothæft mælitæki á fjárþörf íslenskra framhaldsskóla þegar horft er til iðn- og verkmenntar. Þar sé ekki tekið tillit til þess að starfs- menntun er kostnaðarsamari en bóknám. Samfylkingin hefur lagt fram á Al- þingi tillögu til þingsályktunar um nýskipan í starfs- og fjöltækninámi. Tillaga þessi er unnin af starfshópi undir forystu Björgvins G. Sigurðs- sonar sem jafnframt er fyrsti flutn- ingsmaður hennar. I tillögunni er lagt til að mennta- málaráðherra skipi nefnd þar sem að verki koma fulltrúar frá þing- flokkum, atvinnulífinu og skóla- samfélaginu. Nefndin vinni tillögur sem feli í sér eflingu starfsnáms i framhaldsskólum, fjölgun styttri starfsnámsbrauta og stofnun fjöl- tækninámsbrauta innan tiltekinna fjölbrautaskóla. Þá leggja flutnings- menn tillögunnar til að sérstaklega verði skoðaðar þær aðferðir sem not- aðar eru til að áætla fjárþörf fram- haldsskóla, þá sérstaklega til iðn- og verknáms. Samfylkingin telur að með því að efla námsráðgjöf og auka framboð á starfsnámi og styttri námsbrautum megi draga verulega úr brottfalli í framhaldsskólum þar sem líkur á að hver einstaklingur finni nám á sínu áhugasviði aukist mjög við það. Flutningsmenn segja í greinargerð að grípa verði til markvissra aðgerða til að rétta hlut starfsnámsins sam- hliða því að tryggja því nauðsynlegt fjármagn. Það muni hafa alvarleg- ar afleiðingar fyrir atvinnulífið ef hnignun starfsnámsins haldi áfram. Þá verði samhliða átaki í kennslu og kynningu starfsnáms og fjölgun styttri námsbrauta að breyta sam- setningu náms í grunnskólum, gera list- og verknámi hærra undir höfði. Margrét Frímannsdóttir Blaöiö/Steinr Hugi Til að byggja upp öflugt iðn-, verk- og listnám í framhaldsskólum þarf að skilgreina vel þarfir atvinnulifs- ins sem og einstaklinganna og móta námskrá með þær að leiðarljósi. Iðn- nám þarf að kynna sem eftirsóknar- verðan áfanga sem opnar leiðir og skapar fjölmörg tækifæri á vinnu- markaði. Ekki síður opnar það leiðir til áframhaldandi náms hvort held- ur er tækni- eða háskólanám. Með því að efla starfsnámið og bjóða upp á fjölbreyttar stuttar námsbrautir þar sem hver einstak- lingur getur fundið nám við hæfi þá minnka líkurnar á því að nemendur hverfi frá námi. Ég hvet alla til að kynna sér vel þá tillögu sem þingmenn Samfylkingar- innar flytja undir forystu Björgvins G. Sigurðssonar. Höfundur erformaður þingflokks Samfylkingarinnar kistufell@kistufell.com « Tangarhöfða 13 Síml 5771313 Þykir þér ekki vænt um jeppann þinn? ZiniDGESTOHE LOFTBÓLUDEKK FYRIR JEPPA Brídgestone DMZ3 4x4 jeppa loftbóludekkin eru ein fárra sérhannaðra vetrardekkja fyrir jeppa. \__________________ „Ekki nokkur vafi á að lofibóludekkin frá Bridgestone er ein merkasta nýjung sem fram hefur komið í þróun hjólbarða síðustu árirí' segir Gunni Gunn, margfaldur íslandsmeistari í torfasruakstri. Hann hefur um árabil rekið hjólbarðaþjónustu í Keflavík. Helstu söluaðilar fyrir BRIDGESTONE REYKJAVÍK & NÁGRENNi: ORMSSON, Lágmúla 9, Rvík. • Bílaáttan, Smiðjuvegur 30, Kópav. • Smurstöðin Klöpp, Vegmúli 4, Rvík. • ESSO, Geirsgötu 19, Rvík. • Smur, Bón og Dekk, Saetúni 4, Rvík. • Smur- og dekkjaþj. Breiðholts,Jafnaseli • Hjólbarðaþj. Hjalta, Hjallahr. 4, Hafnarf. SUDURNES: Hjólbarðaþj. Gunna Gunn, Keflavík • Bflaþj. Vitatorg, Sandgerði VESTMANNAEYJAR: Áhaldaleigan VESTUR- & NORÐURLAND: Hjólbarðaviðgerðin, Akranesi • Bifreiðaþjón. Borgamesi • Guttormur Sigurösson, Ólafsvík • Bílagerði, Hvammstanga • Hjólbarðaþj. óskars, Sauðárkróki • Dekkjahöllin, Akureyri • Bflaleiga Húsavíkur AUSTURLAND: BB Ljósaland, Fáskrúðsfirði • B.S. Bflaverkst Neskaupsað • Bflaverkst Ásbjöms. Eskifirði ORMSSON DEKKJAÞJÓNUSTA • LÁGMÚLA 9 SALA 530-2842 / 896-0578 I VERKSTÆÐi 530 2846 / 899-2844

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.