blaðið - 14.11.2005, Síða 18

blaðið - 14.11.2005, Síða 18
26 I SNYRTIVÖRUR MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 blaðið Góð umhirða hárs skiptir miklu máli Búðarsjampó eru ekki nógu góð Flestir íslendingar eru duglegir við að lita og klippa á sér hárið enda mjög meðvitaðir um tísku. Færri velta góðri umhirðu hárs fyrir sér enda er hárið svo sjálf- sagður hlutur af líkamanum. Það er þó svo að hár þarfnast góðrar umönnunar, líkt og húðin. Þar skipta hárvörur miklu máli og samkvæmt Nönnu Björnsdóttur, hárgreiðslukonu hjá Rauðhettu og úlfinum, er nauðsynlegt að kaupa hárvörur á hárgreiðslu- stofu þar sem sjampó sem fást í hefðbundnum matvöruverslun- um séu ekki nógu góð. ,Sjampó sem eru seld í hefðbundnum búðum eru ekki nógu sterk, það þarf að nota miklu meira af þeim og þau virka ekki nærri því jafn vel. Ef þú kaupir sjampó á hárgreiðslustofu þá þarftu miklu minna magn auk þess sem þau eru virkari. Mörg þessara sjampóa í búðunum safna himnu utan um hárið og það eyðileggur fyr- ir hárgreiðslufólki og gerir til dæmis litun erfiðari." Nanna segir að ótrú- lega margir noti rangt sjampó, fólk með þurrt hár notar kannski sjampó fyrir venjulegt hár en þarf í raun miklu meiri raka í sitt hár. „Ég get ekki ítrekað það nægilega oft að fólk verður að vera með rétt sjampó, að vera ekki að nota vörur sem eru ekki að gera neitt fyrir hárið.“ Nanna seg- ist sjálf finna mikinn mun á hárinu á sér ef hún notar sjampó úr búð- um. „Hárið á mér verður miklu fyrr skítugt og himna myndast. Ég finn þvílíkan mun á þessu tvennu. Þegar maður er vanur því að nota góð efni þá finnur maður mun.“ Þarf alltaf að vera með vörn í hárinu Þegar Nanna er beðin um góð ráð fyrir umhirðu hársins segir hún að hárvörur skipti miklu máli. „Ef maður ætlar að hugsa vel um hárið á sér þá þarf að leita aðstoðar hjá fag- fólki. Það er mjög mikilvægt að velja rétt sjampó en það fer eftir hárteg- undinni, hvort það er gróft, fínt, mikið litað eða kannski mikið skemmt. Það skiptir því miklu máli að nota réttar vörur og að nota vör- urnar rétt.“ Aðspurð um hvort það sé nauðsynlegt að passa hárið betur á veturna en sumrin segir Nanna að það sé nauðsynlegt að fara vel með hárið allan ársins hring. „Sól, rok og kuldi þurrka upp hárið þannig að með réttu þarf alltaf að vera vörn í hárinu, til dæmis rakanæring (leave in) eða hitavörn. Eins þarf alltaf að setja hitavörn í hárið þegar það er blásið eða slétt.“ Þarf að verja endana vel Nanna segir að það sé kannski ekki alltaf nauðsynlegt að setja hárnær- ingu i hárið en þá þurfi að setja til dæmis rakanæringu. „Þetta fer vit- anlega allt eftir því hvernig hárið er. Endarnir eru vitanlega gamalt hár og því þarf mikið til að verja þá, þetta á sérstaklega við þá sem eru með litað hár. Svo þarf vitanlega alltaf að djúp- næra hárið,“ segir Nanna. „Djúp- næring nærir innsta lag hársins. Ef einstaklingur litar oft á sér hárið þá fer hann nær kjarnanum og hann skemmist. Of mikil litun getur eyði- lagt hárið og þess vegna er svo mikil- vægt að nota góðar vörur til þess að fyrirbyggja að hárið skemmist. Það eiga allir að eiga djúpnæringu, góð sjampó og blástursefni," segir Nanna Björnsdóttir, hárgreiðslukona á Rauðhettu og úlfinum Nanna og bætir því við að í dag sé fólk miklu meðvitaðra um að kaupa góðar hárvörur. Að endingu féllst Nanna á að mæla með nokkrum góð- um vörum fyrir hár en hún tekur fram að þessar vörur séu einungis fyrir litað og fíngert hár. En það er alltaf hægt að finna vörur sem henta öllum hártegundum. svanhvit@vbl.is <fis5&r Stálpottasett á góðu verði Brúðhjónalistar og gjafakort búsáhöld KRINGLUNNI Slmi: 568 6440 I busahold@busahold.is Redken BodyFul Þetta sjampó gerir meira úrhárinu. Ég er meðfíngert hárog ég vil gera mikið úr mínu hári. SPDav * Redken Extreme Ég nota alltaf þessa djúp- næringu enda f innst mér hún best. Bumble and Bumble, Thickening spray Þetta efni set ég alltaf f mig áður en ég blæs á mér hárið enda er i því hitavörn. Redken Leave In All Soft Ég set pínulítið af þessari rakanæringu áður en ég blæs á mér hárið. Ég þarf raka f endana á hárinu þar sem það er elsta hárið. —MBMOB—IMM—W—■—MMMMWPIfWriWHff —■’l Oll snyrting á einum stað Erum bvrjaðar að bóka fyrir jólin. > SNYRTISTOFAN yyársnyrtxstofajj t T / 7 7*7 X\NADtT 'jiarblik S: 577 - 21 21 S: 557 - 8i 8o Verið velkomiim til okliar í Eddufell 2 Falleg naglalökk við öll tækifæri Það er alltaf gaman að skarta nýjum og fallegum nagla- lökkum enda er það hluti af heildarímyndinni. Naglalökk gera konu kvenlega og um leið glæsilega. Það er ekki nauðsyn- legt að vera með langar og glæsi- legar neglur til að skarta falleg- um naglalökkum en þó mega þær sem eru með styttri neglur vara sig á að nota ekki of dökk naglalökk. Þær sem eru með lengri neglur hafa hins vegar frjálst val því allt kemur vel út á löngum og glæsilegum nöglum. Hér eru þrjú falleg naglalökk sem henta við ýmis tækifæri. Sérstaklega glæsi- legt naglalakkfrá OPIsemhentaröll- um glæsikvend- um og ber nafnið l'm not really a waitress. Lakkið erfallega rautt og hentar þvf eflaust betur að kveldi til. Naglalakkið hefur fengið verðlaun og sagan segir að Gwen Stefani noti það reglu- lega. -ítSíSí' Hversdagslegt og snyrtilegt naglalakkfrá Bourjois sem ber nafnið Beige Paris. Naglalakk- ið er drapplitað og hentar vel á daginn jafnt og á kvöldin. Snyrtiiegt naglalakk sem hæfir öllum vel. very VERNIS BOURjÓlS Smekklegt nagla- lakk frá OPI sem er bleikt og þvf uppá- hald allra kvenna. Lakkið heitir Windi City pretty og erfallega bleiktog hentar þvf öllum alltaf. Hvervillekki vera bleikurog lokkandi? Kvenleg og góð lykt Emporio Armani hefur sent frá sér nýjan ilm fyrir konur. Ilmurinn ber nafnið City Glam eða borgarglæsileiki. Glasið er einkar kvenlegt og fallegt enda bleikt sem hæfir borgarstúlkum sérstaklega vel. Ilmurinn einkennist af orku, ákefð og kynþokka enda samanstendur hann af sól- berjum, rósum, moskus ogkrist- almosa. Þetta er því kvenleg og góð lykt.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.