blaðið - 14.11.2005, Síða 29
blaöið MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005
DAGSKRÁ I 37
Barnakrydd
klœðir sig í
Emma Bunton, sem einnig er þekkt sem „Baby Spice“ eða barnakrydd,
segist vera of gömul til að klæðast mínípilsum. Fyrrum Kryddpian seg-
ist ekki vilja sjá myndir af appelsínuhúð sinni í slúðurblöðunum. Hún
segir: „Ég ætla aldrei aftur að fara í mínípils. Ég þoli ekki að fletta tíma-
ritum og sjá mynd af einhverjum að fara út úr bíl og búið er að draga
hringi í kringum appelsínuhúðina á lærunum. Ég myndi fá taugaáfall
ef svoleiðis myndir birtust af mér. Þess vegna ætla ég að halda mig við
gallabuxur í framtíðinni. Barnakrydd er liðin tíð. Ég er orðin of gömul til
að fara í öll þessi klæðalitlu föt. Þau eru of stutt og sýna of mikið og mér
líður ekki vel í þeim lengur."
Stöð 2 - You Are What You Eat
- kl. 21:15
Óhollt mataræði er eitt helsta heilsu-
vandamál fólks á Vesturlöndum.
Alltof margir spá ekkert í hvað þeir
láta ofan í sig og geta afleiðingarnar
verið skelfilegar. Offita er orðið mik-
ið vandamál en stundum þarf ekki
mikið til að koma hlutunum i lag.
Skjár 1- The O.C. - kl. 20:00
Það er Valent-
ínusardagur
og Ryan reynir
að sættast við
Caleb svo hann
geti eytt degin-
um með Linds-
ey. Julie reynir
allt til þess að
ná sáttum við Marissu en það geng-
ur ekki vel hjá henni. Það færist hiti
í leikinn á milli Sandy og Rebbeccu.
...hönnuði
Sirkus - The Cut - kl. 22.00
Það er eng-
inn annar en
Tommy Hiifi-
ger sem er
hönnuðurinn
að þessum
raunveru-
leikaþætti en
Hilfiger er eitt
þekktasta
vörumerkið
í tískuheiminum í dag. 16 manns
berjast um að ná hylli Hilfiger í hin-
um ýmsu verkefnum sem eru lögð
fyrir hópinn, allt frá fatahönnun til
markaðsmála".
Berglind er önnur umsjónarkvenna Hlaupanótunnar sem er á
dagskrá Rásar 1 mán.-fim. kl. 16:13-17:00
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það Ijómandi gott, þakka þér fyrir.
Hvenær hófstu fyrst störf í útvarpi?
Það var fyrir tæpum tveimur árum. Þá byrj-
aði ég fyrst að vera með pistla í Hlaupanót-
unni. (vetur var ég hins vegar fastráðin.
Er vinnan í fjöimiðlum öðruvísi en þú
hafðir ímyndað þér?
Ég hafði nú kannski ekki velt henni mikið
fyrir mér né hugsað um hvernig hún væri
nákvæmlega. (meginatriðum er hún
samt ekki öðruvísi, það er ekkert sem
kemur mér stórkostlega á óvart.
Hvað er það skemmtiiegasta við
starfið?
Það er hvað þetta er skapandi og
skemmtilegt starf. Þessi þáttur sem ég
vinn við er svo ótrúlega skemmtilegur. Við
erum með svo frjálsar hendur til að fjalla
um þá tónlist sem okkur þykir forvitnileg
og skemmtileg. Við þurfum ekki að fara
eftireinhverjum fyrirfram ákveðnum„play-
lista" heldur spilum við það sem okkur
finnst vert að fái að hljóma.
Er þetta eitthvað sem þú ætlaðir þér að
starfa við þegar þú varst lítil?
Nei. Ég man ekkert hvað ég
ætlaði að verða.
Einhvern
tímann í
menntaskóla ætlaði ég að fara í sálfræði,
sem ég gerði sem sagt ekki. Ég fór að
starfa á Rás 1 í framhaldi af starfi mínu
sem tónlistarmaður. Ég erflautuleikari
og búin að mennta mig í tónlist. Þetta er
svolítið sérhæfð deild á Rás 1, tónlistar-
deildin, og það liggur mjög beint við að
tónlistarmenntaðfólkvinni hérna.
Gætirðu lýst dæmigerðum degi í lífi
Berglindar Maríu Tómasdóttur?
Þeir eru afskaplega misjafnir. Ég er í
mörgum öðrum verkefnum en í útvarp-
inu. Hér í útvarpinu er ég að undirbúa
þátt, fer á safnið og vel tónlist og hlusta
og les mértil. Svo kemur mjög oft fyrir
að ég fer og tek viðtöl. Dagurinn er mjög
misjafnlega langur. Ég er í eðli mfnu mikil
skorpumanneskja þannig að það hentar
mér mjög vel að vinna í skorpum, en hefð-
bundinn skilgreindur vinnutími erfrá 9-5.
Hver er þinn uppáhaldstími dagsins?
Mér finnst 9-12 á morgnana vera góður
tími því það er svo flott birta á morgnana,
sérstaklega á veturna. Samt er sumarið
mín uppáhaldsárstíð því þá er birtan flott
allan sólarhringinn!
Hefur eitthvað neyðarlegt komið fyrir
þig í útvarpinu?
Ekkert brjálæðislega neyðarlegt sem er í
frásögur færandi. Það á ábyggilega bara
eitthvað eftir að gerast. Það neyð-
arlegasta er þegar geisladiskur
hoppar en það þykir víst ekki
mjög neyðarlegt og gerist í
öðrum hvorum þætti. En það
þarf víst líka að bregðast við
því og segja:„Nú er tæknin
víst eitthvað að stríða
okkur."
Hver myndir þú vilja að
væri lokaspurningin í
þessu stutta spjalli?
Ég myndi vilja að hún
væri:„Af hverju ætti
maður að hlusta á Hlaupa-
nótuna?" og svarið væri:
„Til þess að uppgötva nýja
forvitnilega tónlist og heyra
eitthvað sem maður heyrir
hvergi annars staðar."
Vegabréf Pete
Pete Doherty er á nippinu
hann heldur að
einhver hafi stol-
ið vegabréfinu
sínu. Söngvari
Baby-shambles
þarf
lega að finna
það svo hann
geti flogið
til New York
til að hitta
elskuna sína,
Kate Moss.
Söngvarinn, sem býr
nú á hóteli í austur-
því
hluta Lundúna, er brjálaður út af
missinum, en það er haft eftir heim-
ildarmanni The Sun. „Hann held-
ur að einhver hafi rænt því af hon-
um svo hann geti ekki hitt Kate.
Hann er að gera sjálfan sig og alla
í kringum sig geðveika. Hann hef-
ur hringt í alla vini sína og ásakað
þá um að hafa tekið vegabréfið.
Hann er ofsóknarbrjálaður og
sannfærður um að allir séu
að halda honum frá Kate.‘
Kate er í Bandaríkjunum
að jafna sig á eiturlyfja-
vanda sínum sem hún hef-
ur barist við.
w
Utgáfu Guerolito
frestað
Hljóðblöndu-útgáfu plöt-
unnar Guero, með tónlist-
armanninum Beck, hefur
verið frestað til næsta árs.
Platan á að heita Guerolito en
upphaflega átti hún að koma út 5.
desember 2005, en nú hefur henni
verið frestað til 23. janúar 2006. Á
nýju plötunni munu frægir lista-
menn rugla aðeins í lögunum og
hljóðblanda upp á nýtt. Þar verða
meðal annars Ad Rock úr Beastie
Boys, John King úr Dust Brothers,
Octet, Mario C, Boards of Canada
og Homelife. Einnig hefur verið átt
við plötualbúm Guero en Marcel
Dzama, sem gerði fyrra umslagið,
sér um að breyta því aðeins. Hér
eru lögin og hljóðblandararnir
sem verða á Guerolito:
Ghost Range (E-Pro) meö Homelife
Guero meö Islands
Girl meö Octet
Heaven Hammer (Missing) meö Air
Shake Shake Tambourine (BlackTambo-
urine) með Ad Rock
Terremento Tempo (Earthquake Weat-
her) með Mario C
Ghettochip Malfunction (Hell Yes) með
8 Bit
Broken Drum með Boards of Canada
Scarecrow meö El-P
Wish Coin (Go It Alone) með Superthriller
Farewell Ride með Subtle
Rental Car með John King
Emergency Exit meðTh'Corn Gangg
Cameron
Diaz vann
ropkeppni
Stjarnan Cameron Diaz segir að bestu verð-
laun sem hún hafi unnið til hafi verið
í ropkeppni. Diaz, sem meðal annars
lék í myndinni In Her Shoes, tók þátt í
sjónvarpskeppni þar sem að leitað var
að meistara í ropi. „Ég vann verðlaun í
Nickelodeon ropkeppni og drakk Diet Coke
áður. Þannig ropaði ég hátt og snilldarlega
þegar ég kom á sviðið - Bwaaapp. Ég held þetta
séu skemmtilegustu verðlaun sem ég hef unn-
ið.“
OREIND
Víltu sjá fullt af fríum sjónvarpsrásum
beint um gervihnött?
Þá höfum VÍÖ búnaðinn.
Verð frá 16.900,- stgr.
Smart Rapido FTA móttakari,
65 cm stáldiskur
0,3dB stafrænn nemi.
mm HORROH
mtntmotsrs
QEBQ
© am
ana
ONE
nna
TWO
Auðbrekka 3 - Kópavogur
sími: 564 1660
QBHWORID ÖEJHnCWS h
Leiöandi í
loftnetskerfum
mögnurum
tenglum
loftnetum
gervihnattadiskum
móttökurum
örbylgjunemum
loftnetsköplum
www.oreind.is