blaðið - 14.11.2005, Side 30
38IFÓLK
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 blaðiö
HVAÐ FINNST ÞÉR?
HEYRST HEFUR.
ABYRGÐAR-
LAUSAR FOR-
VARNIR
Smáborgarinn lætur þær forvarnarher-
ferðir sem nú standa yfirfara alveg svaka-
lega í taugarnar á sér. Sérstaklega fer sú
sem flaggar börnum i biðham í hans allra
fínustu. Þar tilkynna lítil börn að þau
ætli að bíða með að nota tóbak, áfengi
og fikniefni fram yf ir tvítugt. Smáborgar-
anum finnst slík herferð vera á æpandi
miklum villigötum. Ekki það að hann sé
einhvers konar andstæðingur forvarna.
Þvertámóti.
Smáborgarinn styður nefnilega fræðslu
og fyrirbyggjandi aðgerðir til að börn
fái að vera börn eins lengi og mögulegt
er. En honum finnst líka að með því að
láta ung börn setja sér jafn „drastísk"
markmið sé verið að koma ábyrgðinni á
neyslunni frá þeim sem móta og stjórna
þjóðfélaginu, hinum fullorðnu, yfir á
börnin. Þau eru látin lofa einhverju sem
þau hafa raunverulega hvorki þroska né
aldur til að skilja. Á meðan er þögult sam-
þykki í samfélaginu um það að viðhalda
hinum löglegu fíkniefnum, áfengi og tób-
aki, okkur sjálfum til ánægju, yndisauka
og almennrar dægrastyttingar. Með því
að láta börnin lofa upp í ermina á sér er-
um við að koma ábyrgðinni, á því að þau
nálgist ekki eiturefnin, yfir á þau. Við
sjáum um og sköpum framboðið en kenn-
um börnunum síðan um ef að eftirspurn
skapast sem hentar okkur ekki. Ábyrgðin
er þeirra. Það finnst Smáborgaranum
ekki vera sérlega ábyrg hegðun.
Önnur slík herferð sem fer mikið fyrir
brjóstið á Smáborgaranum erand-nauðg-
unarherferðin „Nei þýðir nei". I huga Smá-
borgarans er nauðgun stóralvarlegur
glæpur og það er ekki tilgangurinn sem
fer fyrir brjóstið á honum. Það er mun
frekar aðferðarfræðin. Smáborgaranum
virðist sem að verið sé að setja ákveðn-
ar leikreglur um það hvað sé nauðgun.
Ef þolandinn segir ekki nei þá sé ekki
um nauðgun að ræða. Þögn sé sama og
samþykki. Að það sé ekki upplifun fórnar-
lambsins, árás á kynferðislegt sjálfræði
þess, sem skilgreini verknað sem nauðg-
un heldur það orðaval sem það beitir.
Smáborgarinn segir nei við þessu. Hann.
segir nei við skorti á virðingu. Hann segir
nei við ábyrgðarleysi. Hann segir nei við
þessum forvarnaraðferðum.
Flosi Eirtksson, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi
Hvað finnst þér um prófkjör
framsóknarmanna í Kópavogi?
„Það var mikil þátttaka hjá þeim, þeir mega vera ánægðir með það. Það er ástæða
til að óska Ómari Stefánssyni til hamingju með að hafa tryggt sér efsta sætið. Mér
sýnist þó í fljótu bragði að það hafi ekki verið nema um 26-7% þeirra sem tóku þátt
í prófkjörinu sem völdu hann svo hann hefur nú kannski ekki breiðan stuðning.“
Flosi segir greinilegt að mikil átök hafi verið innan flokksins í aðdraganda prófkjörs.
„Atkvæðin virðast vera að dreifast rosalega í efstu sætin en það er árangur Samúels
sem kemur mest á óvart. Þetta er auðvitað frábær árangur fyrir mann sem gekk í
flokkinn um leið og hann bauð sig fram! Það virðist meira að segja muna litlu að
hann nái fyrsta sætinu.“
Sean Connery vinnur AFI-verð-
launin fyrir œviframlag sitt
Sean Connery hefur hlotið verðlaun ameríska kvikmyndaiðnaðarins (AFI) fyrir ævi-
framlag sitt til kvikmynda. Hann verður sá 34. til að hljóta þau, en þetta er talinn æðsti
heiður sem hægt er að fá fyrir kvikmyndastörf. Verðlaunin verða afhent Connery við
hátíðlega gala-verðlaunaafhendingu í Los Angeles í júní á næsta ári. Howard Stringer,
yfirmaður AFI-dómnefndarinnar, sagði: „Herra Sean Connery er alþjóðleg ofurstjarna
í kvikmyndum. Þótt hans sé best minnst sem manninum sem tókst að skapa mestu hetju
allra tíma, liggja hæfileikar hans mun víðar í kvikmyndaiðnaðinum. Hann hefur sjálfur
hlotið stórkostlegri starfsframa en sjálfur James Bond. Sean Connery er listamaður af hæstu
gráðu og AFI er heiður af því að veita honum þessi verðlaun".
Huston i nýrri
stríðs-dramamynd
Anjelica Huston leikur á móti Pierce Brosnan og Liam Neeson í nýrri dramatískri
mynd um borgarastríðið. Hún gerist í lok borgarastríðsins og segir frá ofursta sem
neitar að leggja niður vopnin, en fer þess í stað að leita að manni sem hann á óupp-
gerð mál við úr stríðinu. Huston fer til Nýju-Mexíkó i næstu viku þar sem hennar
þáttur í myndinni er kvikmyndaður. Von Ancken skrifaði handritið með Abbey
Everett Jaques fyrir fyrirtæki Mel Gibson og Bruce Davey.
Össur Skarphéðinsson
„Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og
alþingismaður hefur með sínum
djúpa rómi gert fræga setninguna:
,Það er gott að búa í Kópavogi!“
Ég dreg þá fullyrðingu ekki í efa.
Hann tók við góðu búi. Kópavogur
var á sínum tíma byggður upp af
vinstri mönnum. Finnbogi Rútur,
bróðir Hannibals föður Jóns Bald-
vins, og kona hans Hulda, héldu
styrkum höndum utan um þróun
bæjarins fyrstu áratugina. Ég er
líka viss um að Gunnar skilar góðu
búi í hendur Flosa vinar míns Eiríks-
sonar. í kvöld rakst ég hins vegar á
upplýsingar sem sýna hvað það er
hagkvæmt og gott að búa í Reykja-
vík! Þær sýna, að meðalfjölskylda
á höfuðborgarsvæðinu greiðir á
ári hverju í leikskóla, sund, tón-
listarskóla, frístundaheimili, og
fasteignagjöld 670 þúsund á ári.
í Reykjavík kostar þetta hins vegar
töluvert mikið minna, eða 535 þús-
und krónur á ári.
www.ossur.hexia.net
Mörður Árnason
,DV segir frá því að fyrirtæki sem
Ásta Möller þingmaður á að fimmt-
ungi bjóði þjónustu á heilbrigðis-
stofnunum sem reknar eru fyrir
opinbert fé. Þetta virðist bæði vera
vinna sem ekki er í boði á þessum
stofnunum, svo sem líknarþjónusta
sem aðstandendur annast allajafna,
og þjónusta sem ætti að veita á þess-
um sjúkrahúsum og -heimilum
en er ekki veitt vegna fjárskorts,
svo sem eftir útskrift sjúklings.
Mér virðist þó að meginstarfsemi
fyrirtækisins sé á öðrum sviðum,
og örugglega er unnið þarna ágætt
og þarft starf.
www.mordur.is
Einar K Guðfinnson
Ákvörðun Landsbanka íslands í
fyrradag um hækkun vaxta sýnir
ábyrgð og framsýni og er í rökréttu
samhengi við hækkanir á stýri-
vöxtum Seðlabankans. Ástæða er til
að fagna þessari ákvörðun. Hún get-
ur leitt til þess að minni tilefni verði
fyrir frekari stýrivaxtahækkanir
Seðlabankans og að ofurgengið fari
að ganga eitthvað til baka. Astæða
er til að ætla að aðrar lánastofnanir
fylgi Landsbankanum eftir. Þar
með talið íbúðalánasjóður. Það er
mjög mikilvægt."
www.ekg.is
Green Day staðfesta
kvikmyndagerð
Hljómsveitin Green Day hefur staðfest að hún muni ekki leika í
kvikmyndaútgáfunni af nýjustu plötu sinni American Idiot. Billy
Joe Armstrong, andlit sveitarinnar, segir að jafnvel þótt hljóm-
sveitin skrifi handritið og framleiði myndina, muni þeir þó ekki
koma fram í henni. Hann segir: „Ég mun koma að skriftum og
framleiðslu á myndinni, sem verður í sama stíl og bíómyndirnar
Tommy og Quadrophenia sem hljómsveitin The Who sendi frá
sér. En hljómsveitin ætlar ekki að taka að sér aðalhlutverkin, því
við erum ekki leikarar. Við hleypum fagmönnunum að til þess.“
eftir Jim Unger
argir í Framsókn
undrandi þegar
Magnússon,
ráðherra og
urðu
Páll
bróðir Árna
aðstoðarmaður
Valgerðar Sverr-
isdóttur, lagði
ekki í prófkjör
í Kópavogi.
Hann hefur
verið iðinn við
að byggja upp
stöðu sína þar
bæði með því að stela kvenfé-
lögum og stofna ný með dyggri
aðstoð konu sinnar, Aðalheiðar
Sigursveinsdóttur. Menn Sivjar
Bjargar Juhlin Friðleifsdóttur
segja að þetta geti einungis
þýtt það, að Páll ætli að leggja
til atlögu við hana í prófkjöri
um þingsæti. Áflogum þeirra
bræðra, Páls og Árna, við Siv
ætlar því seint að linna...
Hannes Smárason, forstjóri
FL-group, er sagður orð-
inn þreyttur á að ferðast með
áætlunarvélum Icelandair,
nema tryggt
sé að hann sé í
góðravinahópi
og ekki trufl-
aður af sam-
ferðamönnum
sínum, sem
greitt hafa
fyrir far sitt
fullu verði. Ekki fylgir sögunni
hvers vegna þessi flugþreyta
sækir svo á Hannes forstjóra
nú um stundir. Æðsti draumur
hans mun vera sá að FL-Group
kaupi undir hann einkaþotu,
sem félagið ætti að geta nú eftir
íið vel lukkaða hlutafjárútboð,
)ví ekki á að nota nema lítinn
íluta þess til að kaupa Sterling.
Verði einhver með múður get-
ur Hannes alltaf sagt: „Á ÞAÐ
- MÁ ÞAÐ!“
Gárungarnir segja það
tímanna tákn um stöðu
Reykjavíkurborgar að sjálfur
miðborgarpresturinn, séra
Jóna Hrönn Bolladóttir, sé flú-
inn í svefnhverfin, en hún hef-
ur verið valin til þess að verða
nýr sóknarpestur í Garðabæ.
Þar bíður hennar sjálfsagt krefj-
andi verkefni við að setja niður
þrætur í sókninni. Við þessa
fremd hennar kvarnast enn úr
R-listanum, en Jóna Hrönn er
jafnframt varaborgarfulltrúi
fyrir hann. I hennar stað kem-
ur Stefán Jóhann Stefánsson,
hagfræðingur, sem vafalaust
styrkir stöðu hans í prófkjöri
Samfylkingarinnar, en þar sæk-
ist hann eftir 3. sætinu.
Róbert Marshall, oft nefnd-
ur Róbert GMT eftir að í
ljós kom að hann vissi ekki að
tímamismunur gat verið milli
landa, hlýtur
að koma sterkur
inn sem næsti
handhafi bjart-
sýnisverðlaun-
anna. Að ætla
að áskriftar-
fréttastöð muni skáka fréttum
RÚV í áhorfi lýsir meiri bjart-
sýni en blaðamannastéttin á að
venjast. Nema að Róbert ætli
að fara þá leið að leggja saman
heildaráhorf hvers og eins þátt-
ar á nýju stöðinni og tilkynna
síðan þjóðinni að svokallað
uppsafnað áhorf stappi nærri
100 prósentum, þrátt fyrir að
meðaláhorf verði kannski um
5% yfir daginn. Annað eins hef-
ur nú verið reynt.