blaðið - 16.11.2005, Page 2
1
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
2 I IKWLEWDAR FRÉTTIR_________ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 200S blaðiö
Kjarasamningar:
Samkomulag í höfn
Samkomulag náðist í gœr milli Alþýðusambands íslands og Samtaka atvinnulífsins, með
þátttöku ríkisstjórnarinnar, um aðgerðir sem tryggja eiga að kjarasamningar haldi.
BlaÖiÖ/lngó
Skrifað undir samkomulagið í húsnæði Alþýðusambands íslands í gær.
Landsbankinn
Kaupir írskt
verðbréfa-
fyrirtæki
Landsbankinn tilkynnti í gær
að hann hefði fest kaup á írska
verðbréfafyrirtækinu Merri-
on Capital. Bankinn eignast
þegar í stað 50% í Merrion
en eftirstandandi hluta á
næstu þremur árum. Heild-
arverðmæti Merrion er um
fjórir milljarðar en verðmiðun
í síðari hluta fjárfestingarinn-
ar ræðst af rekstrarárangri
verðbréfafyrirtækisins á næstu
árum. Áædaður hagnaður
Merrion árið 2005 er um hálfur
milljarður fyrir skatta. Fram
kemur í fréttaskeyti frá Lands-
bankanum að með kaupunum
felist tækifæri fyrir bankann að
þróa enn ffekar verðbréfamiðl-
un í Evrópu og að verða virkur
þátttakandi á Irlandsmarkaði.
Kaupin munu verða fjármögn-
uð með eigin fé Landsbankans.
Uppsögn kjarasamninga hefur vofað
yfir að undanförnu, þar sem verð-
bólga sfðustu tólf mánaða hefur ver-
ið yfir þeim mörkum sem forsendur
kjarasamninganna miðuðu við. Sam-
kvæmt samkomulaginu sem gert var
í gær munu launþegar fá 26 þúsund
króna eingreiðslu strax í desember
og 0,65% viðbótarlaunahækkun eftir
rúmt ár. I yfirlýsingu frá ríkistsjórn-
inni í gær kom einnig fram að atvinnu-
leysisbætur verða hækkaðar verulega,
ásamt því að létt verður á örorkubyrði
lífeyrissjóða og staðan milli einstakra
sjóðaverðurjöfnuð. Lágmarksatvinnu-
leysisbætur fyrstu tíu dagana hækka í
96 þúsund krónur úr 93 þúsund krón-
um. Atvinnuleysisbætur verða einn-
ig í fyrsta sinn tekjutengdar. Fyrstu
þrjá mánuðina sem einstaklingur er
atvinnulaus fær hann 70% af fyrri tekj-
um sínum, en þó aldrei meira en 170
þúsund krónur á mánuði.
Aðkoma ríkisstjórnar
Ríkisstjórnin hefur jafnframt ákveð-
ið, í samstarfi við aðila vinnumarkað-
arins, að hefja sérstakt átak til þess
að efla starfs- og endurmenntun
ófaglærðra, einstaklinga með litla
menntun og einnig stendur til að
bæta stöðu erlends vinnuafls. Áætl-
aður kostnaður af þessum aðgerðum
mun nema 100 milljónum á næsta ári.
I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur
einnig ffam að hún muni leggja fram
frumvarp um starfsmannaleigur áður
en Alþingi fer í jólafrí.
Þokkalega ánægðir
„Við erum þokkalega ánægðir með
þessa niðurstöðu,“ segir Gylfi Arin-
bjarnarson, framkvæmdastjóri ASl.
„Áuðvitað hefðum við viljað ganga
lengra á sumum punktum, en þegar á
heildina er litið teljum við þetta vera
mjög ásættanlega niðurstöðu fyrir fé-
lagsmenn okkar. Að taka upp talsverða
hækkun bóta og ekki síður tekjuteng-
ingu atvinnuleysisbóta eru atriði sem
við höfum lagt mikla áherslu á. Við telj-
um að til þess að skapa hér sátt í þjóðfé-
laginu þá verði samfélagið einfaldlega
að axla byrðar af því að atvinnulaust
fólk hafi betri afkomutryggingu held-
ur en er í núverandi kerfi.“ Gylfi segir
örorkubæturnar hafa verið ASl mikið
áhyggjuefni. „Fólk á hinum almenna
markaði er ekki með ríkisábyrgð á sín-
um lífeyrisréttindum, eins og starfs-
menn ríkisins njóta. Aukin byrði sjóð-
anna vegna aukinnar örorku hefur
komið fram í því að við höfum þurft
að lækka rétt til eftirlauna til að mæta
þessum útgjaldaauka. Við höfum
fært fyrir því veigamikil rök að ríkið
eigi að koma að þessu. Þetta er ekki
vinnumarkaðslegt vandamál heldur
samfélagslegt. Yfirlýsing ríkisstjórnar-
.innar er því mjög mikill landvinning-
ur fyrir þá sjóði sem eru á vettvangi
ASÍ. Við erum einnig ánægðir með
yfirlýsingu ríkisstjórnar sem snýr að
starfsmannaleigum. Við teljum að út-
færslan og aðkoma stjórnvalda skapi
þessu vonandi þann trúverðugleika
að það sé hægt að ná hér betri stjórn
á þróun efnahagsmála. Með þessu er
verið að reka traustari stoðir undir að
það verði mögulegt, en við skoðum
þessi mál aftur að ári.“
Kópavogur:
Einbýlishúsalóðir á
11 milljónir
Kópavogsbær hefur auglýst til úthlut-
unar byggingarrétt á lóðum á Kópa-
vogstúni. Ljóst þykir að eftirspurn
verður mikil eftir einbýlishúsalóð-
um enda aðeins 13 lóðir í boði á þess-
um eftirsóknarverða stað. Verðið á
lóðunum er eftir því og fyrir sjávar-
lóð þarf að reiða fram að minnsta
kosti 17,1 milljón í gatnagerðar- og
yfirtökugjöld að því er fram kemur í
auglýsingu frá bænum. Sjávarlóðirn-
ar eru 5 og þar má reisa 1 hæðar ein-
býlishús að hámarki 230 fermetrar
að grunnfleti. Ekki er gert ráð fyrir
kjallara undir húsunum. I fyrirhug-
uðu hverfi munu einnig rísa parhús,
tveggja hæða fjórbýlishús og nokkur
4-5 hæða fjórbýlishús. Uppbygging
hverfisins hefur valdið nokkrum
kurr meðal íbúa vesturbæjar Kópa-
vogs, ekki síst íbúa Kópavogsbraut-
ar, en útsýni þeirra yfir Kópavoginn
mun óhjákvæmilega skerðast nokk-
uð. Umsóknarfrestur rennur út þann
23. nóvember nk.. Með umsókn þarf
að fylgja staðfesting banka eða lána-
stofnunar á greiðsluhæfi upp á 35
milljónir króna, fyrir þá sem sækj-
ast eftir einbýlishúsalóð.
Eðlilegt verð fyrir svona lóð
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, vill lítið tjá sig um þetta
verð. Hann bendir á að lóðir hafi far-
ið fyrir svipað verð á uppboðum í nær-
liggjandi sveitarfélögum þó hann vilji
ekki tjá sig um að það sé ástæðan fyr-
ir þessu verði. „Þetta eru örfáar lóðir
og við teljum þetta bara eðlilegt verð.
Við vitum að þetta verða eftirsóttar
lóðir og margar umsóknir munu ber-
ast. En ég vill ekki tjá mig um þetta
að öðru leyti, umsóknarfresturinn
rennur út í næstu viku, og við sjáum
hvað setur þá.“ ■
Neysluvenjur unglinga:
Sumarið eftir 10.
bekk er áhættutími
Lýðheilsustöð og Rannsóknir &
greining kynntu í gær niðurstöður
kannana á notkun tóbaks, áfengis
og annarra vímuefna meðal fram-
haldsskólanema. Könnunin er ein
sú stærsta sem gerð hefur verið hér
á landi og náði hún til um 11.000
nemenda í 30 skólum um allt land
árið 2004. Dr. Inga Dóra Sigfúsdótt-
ir kynnti efni skýrslunnar en í henni
kom margt forvitnilegt í ljós. Sumar-
iðeTtir 10. bekkvirðist vera sérstakur
áhættutími fyrir ungt fólk á íslandi.
Sami hópurinn var borinn saman
vorið 2004, þegar nemendur voru að
klára 10. bekk, og aftur haustið 2004
þegar þeir voru að hefja nám í fram-
haldsskóla. Undanskildir eru þó
þeir sem ekki fóru í framhaldsskóla.
Áthugað var hverjir reyktu og í ljós
kom að tæplega 12% þeirra gerðu það
um vorið, en rúmlega 15% um haust-
ið. Einnig kemur fram að mun fleiri
framhaldsskólanemendur reykja, ef
annað eða báðir foreldrar reykja. Ef
tölur frá 2004 eru bornar saman við
tölur frá 2000 kemur í ljós að færri
strákar í framhaldsskóla reykja árið
2004, en lítil breyting hefur orðið á
meðal stúlkna.
Á einnig við um áfengi og fíkniefni
Sumarið eftir 10. bekk er einnig var-
hugavert ef litið er til áfengisneyslu,
en 48% nemenda í 10. bekk höfðu
orðið drukknir að minnsta kosti
einu sinni um ævina. Þegar sami
hópur var spurður sömu spurningar
um haustið höfðu 66% þeirra drukk-
ið áfengi a.m.k einu sinni. Þeir sem
höfðu orðið dukknir a.m.k. einu
sinni síðasta mánuðinn fjölgaði
einnig, en 26% höfðu orðið það um
vorið, á móti 53,4% um haustið. Önn-
ur fíkniefni eru ekki undanskilin
hvað þetta varðar. 9% 10. bekkinga
höfðu prófað hass, en talan fer í
12,7% um haustið. ■
KROSSTRÉ EFTIRJÓN HALLSTEFÁNSSON
KRONPRINS
ISLENSKU SAKAMALASOGUNNAR
ERFÆ
„KROSSTRÉ ER SÉRLEGA VEL SKRIFUÐ BÓK
★ ★★★ Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðið
„SAGAN ER ALGER NAUTN OG MAÐUR
ÖFUNDAR BARA ÞÁ SPENNUFIKLA
SEM EIGA EFTIR AÐ LESA HANA“
Silja Aflalsteinsdóttir, TMM
„HÖRKUSPENNANDI,.
GLÆSILEG SAKAMALASAGA"
I ★ ★ ★ ★ Páll Baldvin Baldvinsson
f'
BJARTUR
C3 Heiðskírt (^Léttskýjaí ^ Skýjað ^ Alskýjaö ,• ^ Rigning, litilsháttar //ý Rigning ? t Súld 'L Snjókoma
*
Jj Slydda ijj Snjóél !
Amsterdam 07
Barcelona 16
Berlín 05
Chicago 0
Frankfurt 05
Hamborg 05
Helsinki 02
Kaupmannahöfn 05
London 07
Madrid 11
Mallorka 16
Montreal 15
New York 18
Orlando 18
Osló 04
París 07
Stokkhólmur 01
Þórshöfn 01
Vín 08
Algarve 18
Dublin 06
Glasgow 06
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
Á morgun
-i’
/ //