blaðið - 16.11.2005, Qupperneq 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
Neysluvísitala:
Spá hækkun
á bensínverði
Vísitala neysluverðs í desember-
mánuði mun hækka um o,i%
og tólf mánaða verðbólga mun
verða um 3,9% og færast nær
verðbólgumarkmiði Seðlabank-
ans. Þetta kemur fram í Vegvísi
Greiningardeildar Landsbank-
ans. Þar er því einnig spáð að
matvælaverð muni breytast
lítið milli mánaða sökum vax-
andi samkeppni yfir jólavertíð-
ina. Þá gerir Greiningardeildin
ráð fyrir um 0,87% hækkun á
húsnæðismarkaðinum og að
eítirspurn eftir olíu til hitunar
muni valda hækkun á bens-
íni á komandi mánuðum.
Áfallahjálp:
Ný skýrsla
Nauðsynlegt er að setja löggjöf
um heildrænt skipulag áfalla-
hjálpar í landinu til að hægt
sé að byggja upp samræmt
kerfi áfallahjálpar á landsvísu.
Þetta kemur fram í skýrslunni
Áfallahjálp á landsvísu sem
kynnt var í gær. Skýrslan er
afrakstur vinnuþings sem hald-
ið var í apríl síðastliðinn þar
sem mættir voru fulltrúar frá
Rauða kross íslands, Landlækn-
isembættinu, Landspítalanum,
almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra og Biskupsstofu. Þá
kemur einnig fram í skýrslunni
að koma ætti á fót þverfagleg-
um sérfræðihóp og áfallahjálp-
arteymum víða um land og
að ráða ætti starfsmann í fullt
stöðugildi fyrir sérfræðihópinn.
Fjárhagsáœtlun Reykjavíkurborgar:
R-listinn gefst ekki upp í skatta
hækkunum og skuldasöfnun
- segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóraefni sjálfstœðismanna
Við fyrri umræðu um fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar í gær
gagnrýndi Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson hana harðlega og sagði
hana dæmigerða fyrir öll vinnu-
brögð R-listans, sem væri kominn
af fótum fram. „En jafnvel í
dauðateygjunum er haldið áfram
að níðast á fjárhag borgarinnar
og borgarbúa," segir Vilhjálmur í
samtali við Blaðið.
„Þessi síðasta fjárhagsáætlun R-list-
ans afhjúpar fullkomlega þetta
veikburða og langþreytta kosninga-
bandalag, sem á svo sannarlega
skilið að fara frá völdum eftir borg-
arstjórnarkosningar í vor,“ sagði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson í samtali
við Blaðið. Hann sagði hér um dæmi-
gerða R-listaáætlun að ræða. „Það er
farið í vasana hjá launafólki og fjöl-
skyldufólki með skattahækkunum
og lóðasölu, en það er ekki nóg svo
skuldirnar eru hækkaðar líka. Þar
fyrir utan sannar þessi áætlun svo
enn og aftur glundroðakenninguna.
Vinstriflokkarnir eru veikir fyrir
og þeir vita það. Það skortir allan
kraft, þrek og frumkvæði, sem þarf
í stjórn borgarinnar."
Tekjur aukast en skuldirnar líka
Vilhjálmur minnir á að útsvarið
hafi á síðasta ári verið hækkað í há-
mark þess, sem lög leyfa eða 13,03%,
en þar fyrir utan hafi borgin hagn-
ast gríðarlega vegna hækkandi fast-
eignaskatta. „Skatttekjur borgarinn-
ar hafa hækkað um hvorki meira né
minna en tæpar 100 þúsund krónur
á hvern íbúa frá og með árinu 2000.
Þær voru 238 þúsund árið 2000 og
stefna í að verða 324 þúsund á næsta
ári.“
Hann segir að enn sem fyrr stand-
ist engar fjárhagsáætlanir borgar-
innar. Hreinar skuldir borgarinnar
hækki um 13 milljarða og séu áætl-
aðar rúmir 77 milljarðar króna í lok
árs 2006. „En samkvæmt glænýrri
þriggja ára áætlun áttu skuldirnar
aðeins að vera um 72 milljarðar í lok
ársins, en þær hækka um 5 milljarða
eins og hendi sé veifað. Samt hafa
skatttekjur hækkað langt umfram
áætlun og tekjur af lóðasölu sömu-
leiðis, samtals um einn og hálfan
milljarð. Það er kristalklárt að R-
listinn hefur enga stjórn á fjármál-
um borgarinnar og meirihlutanum
virðist standa hjartanlega á sama
um það.“
Mikið verk framundan
Vilhjálmur gefur lítið fyrir þá nið-
urgreiðslu skulda borgarsjóðs, sem
R-listinn hefur boðað. „Hún er ekki
fengin með aðhaldi eða hagræðingu.
Þvert á móti eru reykvískar fjöl-
skyldur skattpíndar enn frekar með
hámarksútsvari, holræsagjaldi og
fasteignasköttum."
Vilhjálmur segir að þessi hinsta
fjárhagsáætlun R-listans dýpki enn
á fjárhags- og stjórnunarvanda borg-
arinnar. „Það verður nóg að gera
fyrir nýja meirihlutann í vor, ekki
aðeins við að koma lagi á fjármála-
Útvarpsstjóri:
Ráöningarferli svifaseint
Smáauglýsíngar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
blaði&=
Lög um ráðningarferti hjá Rík-
isútvarpinu gerir stofnunina of
svifaseina í nútíma samkeppni
og þeim þarf að breyta segir Páll
Magnússon, útvarpsstjóri. Hann
segir að ráðning Þórhalls Gunn-
arssonar og Jóhönnu Vilhjálms-
dóttur hafi mætt fullum skilningi
hjá útvarpsráði.
Snarpur slagur milli
sjónvarpsstöðva
í skriflegu svari menntamálaráð-
herra við fyrirspurn Sigurjóns Þórð-
arsonar, alþingismanns, sem fjallað
var um í Blaðinu í gær, kom fram
að í fjögur skipti hefur verið ráðið í
fastar stöður hjá RÚV síðan 1997 án
undangenginna auglýsinga sem er
www.diza.is
15% afsláttur af
náttfötum til mánaðarmóta
<Diza ehf
Ingólfsstræti 6 sími 561-4000
opið 11-18 virka daga, 12-16 laugardaga
Útvarpsstjóri vill að RÚV verði gert kleift að bregðast við með skjótari hætti þegar kem-
ur að ráðningum starfsmanna.
skýrt brot á lögum. Aðspurður seg-
ist Páll Magnússon, útvarpsstjóri,
að tvær af fjórum tilgreindum ráðn-
ingum snúi að sér en um er að ræða
ráðningu Þórhalls Gunnarssonar og
Jóhönnu Vilhjálmsdóttur. „Það varð
þarna mjög snarpur slagur milli
sjónvarpsstöðvanna um nokkra ein-
stáklinga. Það liggur eiginlega í aug-
Verslunareigendur og útstillingahönnuðir!
ALLT FYRIR PAKKANN
efní • pappír * borðar • slaufur • púðar • gluggaskreytingar • jólas
jólaseríur • kerti • silkiblóm • greinar • jólatré • kertastjakar •
b I ó maskreytingar • greinar • pakkaskraut * gjafabönd • servéttur
kraut • gjafapokar
jólakúlur *dúkar
öskjur • kransar
DANCO
Melabraut 19 • 220 Hafnarfjörður • Sími 575 0200 • danco@danco.is heildverslun
um uppi að ef í öllum tilvikum þarf
að ganga þannig til verka að auglýsa,
fá umsagnir hjá útvarpsráði og þar
fram eftir götunum þá verða menn
nú helst til svifaseinir í samkeppni
af þessu tagi.“
Bam síns tíma
Páll segir lögin vera barn síns tíma
og vonast til þess að með breyttri
löggjöf um RUV verði breyting þar
á. „I þessu tilviki þá gerði ég útvarps-
ráði grein því fyrir af hverju var stað-
ið að þessum ráðningum á þessum
tveimur einstaklingum með þessum
hætti og ég fann ekki annað en að
það mætti fullum skilningi þar,“ seg-
ir Páll og bætir við að hann myndi
ekki hvika frá samkeppni um góða
starfskrafta ef upp kæmi sú staða
í dag. „Ég mundi reyna sjá til þess
og búa þannig um hnútana að ég
gæti gert þetta með þeim hætti að
ég væri ekki fyrirfram dæmdur til
að tapa spretthlaupinu en jafnframt
að gera þetta með þeim hætti að það
uppfyllti ákvæði laga.“
stjórnina, því það verður að taka öll
þessi vinnubrögð til endurskoðunar
og móta raunverulega framtíðarsýn
fyrir Reykjavík og Reykvíkinga."
Dagur íslettskrar tungu:
Verðlaun
Jónasar Hall-
grímssonar
veitt í dag
Dagur íslenskrar tungu er í dag,
16. nóvember. Dagurinn er fæð-
ingardagur Jónasar Hallgríms-
sonar og í Listasafni Reykjanes-
bæjar mun Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir veita verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar og jafn-
framt sérstakar viðurkenningar
fyrir störf í þágu íslenskunnar.
Verðlaunin eru veitt einstak-
lingum er hafa með sérstökum
hætti unnið íslenskri tungu
gagn í ræðu eða riti, með skáld-
skap, fræðistörfum eða kennslu,
og stuðlað að eflingu hennar,
framgangi eða miðlun til nýrrar
kynslóðar. Þetta er í tíunda sinn
sem verðlaunin eru veitt og á
meðal fyrri vinningshafa eru
Vilborg Dagbjartsdóttir, Matt-
hias Johannessen og Megas.
Mikið um að vera
Á degi íslenskrar tungu er at-
hyglinni sérstaklega beint að
stöðu íslensks máls og gildi
þess. Margvíslegir atburðir
verða í tilefni dagsins. Þar má
nefna ljóðatónleika Söngskól-
ans í Reykjavík, dagskrá í Kenn-
araháskólanum og málþing um
Grunnavíkur-Jón í Þjóðminja-
safninu. Ennfremur verður
efnt til bókmenntaþings ungra
lesenda en það er ætlað börn-
um og unglingum á aldrinum
ío - 16 ára. Að þinginu standa
íslensk málnefnd, Fræðsluskrif-
stofaReykjanesbæjarogSÍUNG,
Samtök íslenskra barna- og
unglingarithöfunda. Dagur ís-
lenskrar tungu markar jafnan
formlegt upphaf stóru upplestr-
arkeppninnar sem haldin er
á hverju hausti í öllum grunn-
skólum landsins. Dagskrá er
víða í grunnskólum landsins
sem og í leikskólum þar sem
börnin skipuleggja dagskrá fyr-
ir foreldra og forráðamenn og
syngja íslensk lög.