blaðið - 16.11.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Jón Ólafsson:
írlattd:
„Skýrslum var lekið í fjölmiðla og
embætti skattrannsóknarstjóra fékk
sérstaka aukafjárveitingu til að fara
í fyrirtæki mín,“ sagði Jón Ólafsson
á blaðamannfundi í gær sem hald-
inn var í tilefni af útkomu bókarinn-
ar Jónsbók - saga Jóns Ólafssonar
athafnamanns eftir Einar Kárason.
Jón segir að tæknilegar ástæður hafi
legið á bak við því að auglýst viðtal
við hann í Kastljósi hafi ekki verið
sent út síðastliðinn mánudag.
Ekki bláa höndin
„Það var einhver hönd sem átti hlut
að máli. Hún var ekki blá. Ég held að
það hafi frekar verið guðs hönd sem
stýrði því. Ég sat bara fyrir framan
skjáinn og beið og var frekar hissa,
átti ekki orð,“ sagði Jón Ólafsson um
viðbrögð sín þegar auglýst viðtal við
hann í Kastljósinu féll óvænt út. Jón
segist trúa því fullkomlega að þarna
hefðu aðeins verið um tæknilega
mistök að ræða. „Ég og Sigurður G.
[Guðjónsson] fórum þarna í morg-
un og skoðuðum viðtalið í heild
sinni og kynntum okkur málið.
Það er alveg klárt að störf Þórhalls
í þessu máli eru fullkomlega heið-
arleg.“ 1 bókinni er fjallað ítarlega
um viðskiptaferil Jóns og m.a. um
skattrannsóknina og þær ásakanir
sem á hann voru bornar af æðstu
ráðamönnum samfélagsins. Jón er
myrkur i máli og segir ýmislegt í því
sambandi hafa verið einkennilegt
og margir hafi reynt að leggja stein í
götu hans. „Það hringdu í mig menn
úti í bæ og gerðu mér grein fyrir því
að þessi stofnunarmaður hefði verið
Ekki bláa höndin
S. 565*5970
m
Reykjavíkurvegu^r 22
SÆNSKU SUMARHÚSIN sem Elgur flytur inn eru viðurkennd
gæðahús. Þau eru bjálkaklædd eða byggð úr eininga-
veggjum. Fulleinangruð heilsárshús. Stærðir 27-110 fm. Ef þú
ert að hugsa um hús þar sem gæði og verð fara saman hefur þú
samband við okkur. Heimasíður eru www.bjalkabiistadir.is
og www.stevert.se Þar eru myndir af öllum húsum. Nú er
rétti tíminn til að festa kaup og undirbúa sig fyrir næsta vor
Afhendingartími stærri húsa er 4 - 5 mánuðir.
ELGUR BJALKASCiSTAÐIR Elgur Armúla 36, 108 Rvík S 581 4070
Fyrirhugað viðtal í Kastljósinu datt út aftœknilegum ástœðum. Sakar embœttismann um
lausmœlgi undir áhrifum áfengis.
Stafrænt dreifi-
kerfi fyrir
65% heimila
Industria ehf. hefur samið við
Magnet Networks á Irlandi um
uppbyggingu stafr æns dreifikerf-
is fyrir sjónvarp, síma og netsam-
skipti. Byggt er á ADSL2+ tækni
og felur samningurinn í sér
tengingu við allt að 65% heimila
á írlandi. Samningurinn hljóðar
upp á um 4 milljarða íslenskra
króna og verður netið hið fyrsta
sinnar tegundar þar í landi.
Breiðbandsnetið gerir Magnet
Networks kleift að bjóða staf-
ræna símaþjónustu, gagnvirkt
sjónvarp og hröðustu breið-
bandstengingu sem völ er á. Þeg-
ar netið verður fullbyggt gæti
fyrirtækið orðið næst-stærsti
bjóðandi breiðbandslausna á
írlandi. Móðurfélag Magnet
Networks, Columbia Ventures,
er í eigu Kenneth Peterson.„Ind-
ustria hefúr sýnt mikla hæfni til
að byggja flókin kerfi með nýrri
tækni, tímanlega og fagmann-
lega,“ segir Ingvar Garðarson,
forstjóri Magnet Networks. Guð-
jón Már Guðjónsson er forstjóri
Industria og hann segist óska
Magnet til hamingju með gang-
setningu kerfisins sem muni
veita mörgum írskum heimilum
aðgang að nýjum breiðbands-
þjónustum í fyrsta sinn. „Eftir
því sem Magnet Networks vex
fiskur um hrygg vonast Industr-
ia eftir áframhaldandi samvinnu
við fyrirtækið um gangsetningu
nýrra þjónustuþátta til írskra
neytenda, á þessum hratt vax-
andi markaði,“ segir Guðjón.
Jón Ólafsson í útgáfuhófi í gær. Segist alltaf hafa synt á móti straumnum gegn öflum sem vildu ekki að honum gengi vel.
Blaöið/Frikki
Sjónarhóll
í Hafnarflrói
öóruvísi gleraugnaverslun
www.sJonarfioii.is
far s e m
a u g u
n a
Leiðrétting
Þau leiðu mistök áttu sér stað
í vinnslu Blaðsins á dögunum
að sneitt var aftan af viðhorfs-
pistli Svandísar Svavarsdóttur
á leiðarasíðu blaðsins og varð
niðurlagið að vonum snubbótt.
Blaðið biðst velvirðingar á mis-
tökunum, en að neðan eru máls-
greinarnar, sem upp á vantaði:
„Flokkur sem berst fyrir
réttinum til forréttinda er
ekki sá sem mest þörf er á f
pólitísku landslagi borgarinnar.
Rík, hugrökk og kröftug
borg er borg sem vill búa
öllum bestu hugsanleg
skilyrði. Við eigum að setja
okkur háleit markmið. Hvergi
í heimi á að vera betra að
vera barn, manneskja.
Vinstri græn bjóða fram
kraftmikinn lista þar sem
hugmyndir gerjast á hverjum
degi í takti við pólitískt bak-
land, borgarbúa, alþjóðlega
strauma, hugmyndafræði
sjálfbærrar þróunar og daglegt
líf. Nýgræðingur hugmynda og
sköpunar á greiða leið um ört
vaxandi félag vinstri grænna
í Reykjavík. Við erum að búa
til pólitík, nýja hugsun. Við
hlökkum til að takast á við
trénaða hugmyndafræði fortíð-
ar. Við hlöldcum til að takast
á við forréttindaflokkinn.“
Framleiðsluverð:
Vísitala
lækkar
Vísitala framleiðsluverðs lækk-
aði á milli 2. og 3. ársfjórðungs
2005.1 dag mælist hún 97,4
stig sem er um 0,5% lægra en
hún mældist á síðasta ársfjórð-
ungi þessa árs. Þá hækkar
verðvísitala sjávarafurða um
0,9% og mælist nú 95,7 stig en
vísitöluáhrif hennar eru um
0,37%. Verðvísitala annarrar
iðnaðarframleiðslu lækkar
um i,5% á milli ársfjórðunga
og mælist nú 98,7 stig. Vísi-
töluáhrif hennar eru 0,87%.
á fylleríi úti í bæ og sagt þar við vin
sinn að honum hefðu verið boðnar
tuttugu milljónir sem aukna fjár-
veitingu til stofnunarinnar í tvö ár í
senn gegn því að hann færi í mig og
Jón Ásgeir,“ segir Jón og bætir við að
hann hafi einnig heyrt ávinning af
þessu frá öðrum stöðum. „Svo þetta
er ekkert einsdæmi að þessi maður
[Skúli Eggert] hafi farið frjálslega
með sín embættisstörf. Alla vega
tvö dæmi liggja fyrir hérna en ég
hef heyrt fleiri þar sem hann hefur
verið mjög lausmáll þegar hann er
undir áhrifum áfengis."
Brutu lög
Jón gagnrýndi einnig stjórnvöld og
sagðist hissa á því að ekki hefði ver-
ið rannsakað betur hvernig skýrslur
um hann hefðu lekið út úr kerfinu í
fjölmiðla. „ Ég held að það sé ekki til
það réttarríki sem hefði ekki tekið
fyrir þegar allar þessar skýrslur sem
voru teknar af mér sem krakka um
eitthvert smá fikt í fíkniefnamálum
láku út úr kerfinu og birtust í fjöl-
miðlum. Ég mundi halda að í hvaða
ríki sem er hefði dómsmálaráðuney t-
ið fyrirskipað rannsókn. Það er al-
veg klárt mál að það brýtur einhver
starfsmaður öll þau lög sem kveða á
um opinbera starfsmenn. En af því
að þetta var ég þá var það fínt. Menn
voru bara ánægðir með þetta.“
Samkeppnisstofnun hefur urskuröað aö auglýsingar á Malt-O-Meal morgunkorni og
umbúðir þess brjóti f bága við lög.
Innflytjandi morgunkorns:
Braut samkeppnislög
Fyrirtækið Dreifing ehf. braut sam-
keppnislög með auglýsingum sinun-
um á morgunkorni frá framleiðand-
anum Malt-O-Meal. í auglýsingu
frá Dreifingu sagði meðal annars:
„Hagstæðara verð. Malt-O-Meal kost-
ar minna". I auglýsingunni voru
nafngreindar sjö tegundir morgun-
korns sem Dreifing ehf. hafði um-
boð fyrir og þær bornar saman við
sjö nafngreindar tegundir morgun-
korns frá keppinauti. Hvað umbúðir
vörunnar varðar segir í kvörtun til
stofnunarinnar að ljóst sé að fram-
leiðslan sé eftirlíking á vörumerkj-
um í eigu General Mills Inc., sem
meðal annars framleiðir Cheerios
og Cocoa Puffs. Varan hafi þannig
verið kynnt sem ódýrari eftirlíking
nokkurra tegunda morgunkorns
þess framleiðenda.
Verða að breyta umbúðum
1 áliti Samkeppnisstofnunar segir
meðal annars að á auglýsendum
hvíli sú skylda að sanna þær fullyrð-
ingar sem notaðar séu, vöru hans
til framdráttar. Segir ennfremur
að Dreifingu ehf. hafi ekki tekist að
sanna að morgunkorn þeirra „kosti
minna, verð sé hagstæðara og gæði
meiri en hjá keppinautum" eins og
þeir hafi auglýst.
Segir í ákvörðunarorðum Sam-
keppnisstofnunar að Dreifing hafi
brotið í bága við ákvæði laga um
óréttamæta viðskiptahætti og gagn-
sæi markaðarsins. Fyrirtækinu er
því bannað að birta auglýsingar
sínar áfram. Ennfremur er fyrirtæk-
inu óheimilt að nota áfram „ósann-
aðar fullyrðingar" á umbúðum vör-
unnar.