blaðið - 16.11.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 ! blaöiö
Sharon yngri segist vera sekur
Réttarhöld yfir Omri Sharon hófust í Tel Aviv í gœr en honum ergefið að sök að hafafjár-
magnað með ólöglegum hœtti kosningabaráttu föður síns. Málið þykir vandrœðalegt fyrir
Ariel Sharon sem á í vök að verjast í eiginflokki.
Omri Sharon, sonur Ariels Sharons,
forsætisráðherra ísraels, sagðist í
gær vera sekur af ákærum um að
hann hefði fjármagnað með ólög-
legum hætti kosningabaráttu föður
síns árið 1999. Áður hafði Sharon
yngri, sem er þingmaður og einn
helsti ráðgjafi föður sins, sagst ætla
að mótmæla ákærum um að hann
hefði stofnað fyrirtæki í því skyni
að gera erlendum aðilum kleift að
veita fé til kosningabaráttu Sharons
eldri til leiðtoga Líkúdbandalagsins.
Dan Sheinmann, verjandi Sharons,
sagði aftur á móti við upphaf réttar-
haldanna í Tel Aviv að hann myndi
ekki mótmæla sumum ákæruliðun-
um. „Það var mikilvægt fyrir Omri
að segjast vera sekur og axla fulla
ábyrgð,“ sagði Sheinmann.
Þrátt fyrir að engar kærur hafi
verið lagðar fram gegn Ariel Sharon
í málinu þykir hneykslið vandræða-
legt fyrir hann. Á sama tíma þarf
hann að takast á við harðlínumenn
innan Líkúdbandalagsins sem eru
honum margir reiðir fyrir að hafa
kallað ísraelska landnema af Gasa-
svæðinu. Ariel Sharon hefur neitað
öllum misgerðum í málinu og segir
að Omri og hinn sonur sinn Gilad
hafi einir séð um fjármögnun kosn-
ingabaráttunnar.
Meinsæri, fjársvik og
trúnaðarbrestur
Omri Sharon hefur verið ásakaður
um meinsæri, fjársvik og trúnaðar-
brest. Undir venjulegum kringum-
stæðum gæti hann átt allt að sjö ára
fangelsi yfir höfði sér en samkomu-
lag við saksóknara mun að öllum
líkindum verða honum til refsilækk-
unar. Samkvæmt samkomulaginu
lýsir hann yfir sekt sinni fyrir ákær-
ur um fals og að hafa brotið kosn-
ingalög sem setja hömlur á erlenda
fjármögnun kosningabaráttu.
Lögmenn hafa farið fram á að
saksóknarar dæmi Sharon aðeins
til greiðslu sektar en dómsmálaráðu-
neytið hefur sagst ætla að fara fram
Gömul mynd af feðgunum Omri og Ariel Sharon.
á fangelsisvist fyrir brotin. Israelska elsisvistar með þeim skilyrðum að
sjónvarpið sagði að hann yrði hugs- hann hætti afskiptum af stjórnmál-
anlega dæmdur til níu mánaða fang- um. ■
Eldur í Kaup-
mannahöfn
Um 80 íbúðir skemmdust í
miklum bruna i fjölbýlishúsa-
stæðu á Amager í Kaup-
mannahöfn á mánudagskvöld.
Eldurinn braust út í íbúð í
þaki eins hússins og breiddist
fljótt út um allar hæðir. Maður
í íbúðinni þar sem eldurinn
kom upp liggur þungt haldinn
á sjúkrahúsi. Allir íbúar í
samstæðunni, um 200 manns,
þurffu að hafa sig á brott og
hefur þeim verið komið fyrir
á hótelum víða um borgina.
Ennfremur þurfti að rýma hús
í nágrenninu um tíma þar sem
hætta var tahn á að eldurinn
breiddist út til þeirra. Kalla
þurffi út aukalið slökkviliðs-
manna til að ráða niðurlögum
eldsins. Vakt var við svæðið
í gær en talin var hætta á að
einn veggur húsasamstæðunn-
ar kynni að hrynja til grunna.
Alifuglum
slátrað í stór-
um stíl
M8W
^yniarií1
150 mg
SILYMARIN
Ráðist á KFC-veitingastað í Karachi:
Bílsprengja verður
NR , f AMERÍKU nokkrUm ^
Ljósin í bænum
* SUOURVFRI
Stigahlíð45 • 105 Reykjavík
LIFRARHREINSUN
GÓÐ HEILSA-GULU BETRI
Að minnsta kosti þrf r menn fórust og
nokkrir slösuðust þegar bílsprengja
sprakk fyrir utan KFC-veitingastað
f Karachi, stærstu borg Pakistans, í
gærmorgun. „Þetta var öflug spreng-
ing og hávaðinn heyrðist í nokkrum
borgarhlutum. Það lítur út fyrir að
KFC hafi verið skotmarkið," sagði
Mushtaq Shah, lögregluforingi í Kar-
achi.
Fréttaritari AFP-fréttastofunnar
sagði að veitingastaðurinn og banki f
nágrenninu hefðu eyðilagst í spreng-
ingunni. Þá kviknaði í mörgum bíl-
um til viðbótar og rúður brotnuðu
í nálægum byggingum. „Um leið
og ég steig út úr strætisvagninum
Betri nýting
- aukið hreinlæti
Nýjung fyrir snyrtinguna
Snertifrír handþurrkuskammtari
7.956kr
Lotus enMotion snertifrír
skammtari fyrir Lotus
enMotion tveggja laga
handþurrkur.
Nú á tilboði
Snertifrír enMotion
handþurrkuskammtari frá
Lotus Professional
Rekstrarvorur
w
R
w
V
- vinna með þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Pakistanskir lögreglumenn flytja lík
eins fórnarlamba sprengjutilræðisins í
Karachí.
heyrði ég allt í einu háværa spreng-
ingu og féll á jörðina. Það var reykur
um allt,“ sagði maður sem vinnur á
skrifstofu í nágrenninu.
Um hryðjuverk að ræða
Lögregla lokaði svæðinu sem er í
nágrenni Sheraton og Pearl Contin-
ental hótela.
Mannzoor Mughal, háttsettur lög-
regluforingi, sagði við fréttaritara
AFP á vettvangi að um hryðjuverk
væri að ræða og bætti við að hugsan-
lega hafi verið notast við fjarstýrða
sprengju.
Sprengingin átti sér stað á sama
tíma og réttarhald fyrir dómstóli
í Karachi vegna áfrýjunar dauða-
dóms sem íslamski öfgamaðurinn
Sheikh Omar hlaut fyrir að hafa
rænt og myrt bandaríska blaða-
manninn Daniel Pearl árið 2002.
Sprengingin átti sér einnig stað degi
eftir að Pervez Musharraf, forseti
Pakistans, hafði lýst því yfir í viðtali
við CNN-sjónvarpsstöðina að ekki
hefðu verið gerðar hryðjuverkaárás-
ir á vestræn skotmörk í Pakistan í
meira en ár. Sex starfsmenn annars
KFC-veitingastaðar í borginni fór-
ust þegar kveikt var í staðnum af
reiðum sjítamúslimum. ■
Alifuglum var slátrað í stórum
stíl 1 tveimur stærstu borgum
Vietnams í gær en héðan í
frá verður ekki leyft að ala
þar fugla. Stjórnvöld í Víet-
nam reyna hvað þau geta til
að koma í veg fyrir frekari
útbreiðslu fuglaflensunnar
sem talið er að hafi hugsan-
lega borist í fleiri manneskjur.
Dagblað sagði að verið væri
að rannsaka hvort að kona á
áttræðisaldri sem dó í Hanoi í
síðustu viku hafi verið haldin
hinu banvæna HsNi-afbrigði
flensunnar. Einnig er verið að
rannsaka andlát konu á svip-
uðum aldri í Quang Binh-hér-
aðinu í miðhluta landsins. Alls
hafa 42 látist úr fuglaflensu í
Víetnam síðan 2003, þar af einn
síðan sjúkdómsins varð aftur
vart í landinu í síðasta mánuði.
Prinsessa
giftist al-
múgamanni
Sayako prinsessa, einkadóttir
Akihito Japanskeisara, gekk
í gær að eiga almúgamann í
látlausri athöfn á hóteli í Tókýó.
Þar með hefur hún jafnframt
sagt skilið við þá forréttinda-
stöðu sem hún hefur verið í
sem meðlimur keisarafjölskyld-
unnar. Sayako, sem er 36 ára
gömul, gekk í hjónaband með
Yoshiki Kuroda, fertugum skipu-
lagsfræðingi. Hjónabandið hef-
ur í för með sér að hún verður
að afsala sér titlinum, flytja úr
hinni glæsilegu keisarahöll í lát-
lausari íbúð og láta af þátttöku
í opinberum athöfnum. Sayako
kann að vera síðasta prinsessan
sem yfirgefur keisarafjölskyld-
una þar sem ríkisstjórnin hefur
í hyggju að breyta lögum í þá
veru að konur fái jafnan rétt á
við karla til að erfa krúnuna
og halda titlum sínum þó
að þær gangi í hjónaband.
Auglýsingar 510 3744
blaðið=