blaðið - 16.11.2005, Qupperneq 22
22 I FERÐALÖG
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 blaðid
Ástiii er fíkniefni glaða mannsins
Egill Fannar Kristjánsson, tónlist-
armaður og aðstoðarkokkur á Iðnó,
lagði upp í reisu um heiminn með
besta vini sínum, Samúel Alexand-
erssyni, fyrir rétt rúmu ári síðan.
Þeir félagar ferðuðust frá byrjun
október og komu aftur heim í mars
síðastliðnum eftir viðkomu á mý-
mörgum stöðum í Asíu, Eyjaálfu og
víðar áður en að þeir luku reisunni
með rútuferð þvert yfir Bandaríkin.
Aðspurður segir Egill ástæðurnar
fyrir þessari útþrá hafa verið þörf
fyrir að komast í burtu og einskær
ævintýraþrá. „ Ég vildi bara komast
í burtu frá lífsgæðakapphlaupinu og
kynnast framandi slóðum í leiðinni,“
segir Egill og bætir við að þetta hafi
verið svakalega gefandi reynsla.
,Það er svo mikil ást í þessu, enda er
ástin fíkniefni glaða mannsins. Við
kynntumst gríðarlega mikið af fólki
og sáum alveg ótrúlega mikið.“
Ást og virðing fyrir náunganum
Egill segir að þessi ferð hafi verið
gífurlega þroskandi og mikill skóli.
Hann ítrekar þó að svona ferðir geti
verið hættulegar og því skipti miklu
máli að vera skynsamur og fara var-
lega. „ Maður verður bara að passa
sig á vondu köllunum og lúsugu
flækingshundunum,“ segir Egill og
kímir. Hann hvetur alla sem mögu-
Egili Fannar Kristjánsson er hér hægra megin með Samúel Alexanderssyni, ferðafélaga
sínum, á góðri stundu í Tailandi.
Egill á f ramandi strönd á Fíjí-eyjum.
lega geta að fara í svona ferð og ráð-
leggur þeim sem hug hafa á að taka
fyrst og fremst með sér ástina, opna
hugann og ótakmarkaða virðingu
fyrir öllum þeim sem á vegi þeirra
verða. „ Ég fer alveg pottþétt aftur í
svona reisu. Ég á nefnilega eftir að
fara til allra hinna landanna sem ég
fór ekki til síðast,“ segir Egill að lok-
um og bætir við að jafnvel standi til
að setjast að í Kambódíu í nálægri
framtíð þar sem hann hefur verið að
skoða það að opna gistiheimili í sam-
starfi við nokkra aðra aðila.
t.juliusson@vbl.is
Ferðalög í kringum heiminn:
Leiðarvísir um heiminn
Ferð hringinn í kringum heim-
inn er frábær leið til þess að læra
meira um sjálfan sig, vaxa og
þroskast sem einstaklingur á
sama tíma og ótrúlegustu kimar
hnattarins eru upplifaðir í návígi.
Mörgum finnst þetta líklega fjar-
lægur draumur en það er ótrúlegt
hvað það getur verið auðvelt með
smávægilegu átaki að safna fyrir,
panta og demba sér í svona ferð.
Blaðið kynnti sér málið nánar.
Það fyrsta sem fólk verður að gera
áður en haldið er í svona ferð er að
leggja fyrir, því að þessar ferðir hafa
tilhneigingu til að taka lengri tíma
og kosta meira en hin venjubundna
helgarferð til London eða Kaup-
mannahafnar. Því er ekki mælt með
að fólk treysti einvörðungu á krítar-
kortin til að greiða fyrir allan pakk-
ann eins og oft vill verða þegar um
styttri ferðir er að ræða. Einnig væri
skynsamlegt að gera strax ráð fyr-
ir þeim ferðalögum sem þú hyggst
leggja í, utan þeirra föstu áfanga-
staða sem það félag sem þú ákveður
að fljúga með býður upp á, sem fyrst
svo að hægt sé að reikna þau áform
inn í kostnaðaráætlunina. Síðan er
ekkert annað eftir en einfaldlega að
selja aleiguna, vinna alla yfirvinnu
sem er til boða og leggja allt kostnað-
arsamt líferni tímabundið á hilluna.
Hvernig snýr maður sér?
Ef þeir „Around the World Travel“-
miðar sem fjallað verður um hér að
neðan eru keyptir þá þýðir það ekki
endilega að viðkomandi sé raunveru-
lega að fara umhverfis allan heim-
inn, þó að slíkt standi vissulega til
boða. Vanalega er hins vegar um að
ræða ferðalag í lengri kantinum um
tiltekna kima jarðarinnar. Það er ein-
faldlega heitiá pakka sem inniheldur
flugmiða, eða samansafn nokkurra
miða, sem gerir ferðalöngum kleift
að fljúga á milli mýmargra áfanga-
staða og dvelja á hverjum þeirra eins
lengi og viðkomandi kýs.
Westernair er dæmi um ferðaskrif-
stofu sem sérhæfir sig í ferðum með
mörgum áfangastöðum víðs vegar
um heiminn, en áhugasamir eru þó
hvattir til að skoða fleiri söluaðila
og bera saman til að ná fram hag-
stæðasta verðinu. Westernair lýsir
sjálfum sér á þann veg að þeir bjóði
ferðalöngum upp á bestu flugfélögin,
bestu ráðleggingarnar og bestu þjón-
ustuna á lægsta verðinu. Á heima-
síðu skrifstofunnar kemur fram að
hægt sé að bóka ferðir umhverfis
heiminn með mismunandi mörgum
áfangastöðum frá rétt tæplega 700
pund, eða í kringum 75.000 krónur,
þó að áhugasamir megi vissulega
reikna með því að ýmiss konar skatt-
ar, gjöld og uppfærslur á farrýmum
muni bætast við áður en að heildar-
verð liggur fyrir. Sem dæmi um ferð-
ir í svipuðum verðflokki og rætt var
um hér að ofan má nefna að það er
hægt að kaupa ferð sem inniheldur
flug frá London til Rio de Janiero í
Brasilíu, þaðan til Buenos Aires í
Argentínu, áfram til Santiago Chile,
svo Auckland og Queenstown á Nýja
Sjálandi, því næst til Sydney í Ástr-
alíu, til Denpasar á Balí, viðkomu
í Hong Kong og endað í Bangkok á
Tælandi þaðan sem flogið er að nýju
til London. Á heimasíðu Westernair,
www.westernair.co.uk, er hægt að
nálgast allar nánari upplýsingar og
skoða mýmargar mismunandi ferða-
leiðir.
Skipulagning nauðsynleg
Þegar búið er að panta ákveðinn
pakka þá er næsta skref á dag-
skránni að hanna áætlunarleið um
það hvernig þú vilt helst ferðast ut-
an hans og til hvaða staða þú myndir
helst vilja fara. Afar skynsamlegt er
að forgangsraða til hvaða landa mað-
ur vill allra helst fara sem ekki eru
í flugleiðinni og hvaða maður hrein-
lega verður að upplifa. Þær áætlanir
verða þó alls ekki ófrávíkjanlegar
því að nánast undantekningalaust er
hægt að breyta flugmiðunum ef vilji
er fyrir án mikils kostnaðar. Það
er samt sem áður gott að hafa tíma-
ramma til málamiðlunar á ferðinni
í heild sinni fyrirliggjandi áður en
lagt er af stað. Þá væri ekki úr vegi
að kynna sér þau lönd sem þú ert að
fara til og nánasta umhverfi þeirra
ítarlega á Veraldaravefnum eða á
næsta bókasafni því að það er aldrei
að vita hvort að staðurinn, sem þú
ert búinn að leita að alla ævi en viss-
ir ekki að væri til, leynist í einhverri
skruddunni eða sé lýst ítarlega á
bloggsíðum annarra ferðalanga.
Heilsa og öryggi
Þegar ferðast er um heiminn til fjar-
lægra og framandi áfangastaða þá
veit maður aldrei hvaða tegundir af
sýklum og sjúkdómum maður gæti
komist í tæri við. Sumir þeirra gætu
meira að segja verið lífshættulegir.
Því er bráðnauðsynlegt að láta bólu-
setia sig áður en lagt er af stað.
Á heimasíðu landlæknisembætt-
isins er mælt með því sérstaklega
að leita til læknis helst tveimur
mánuðum áður en lagt er í ferðir
til hitabeltislanda til þess að fram-
kvæma nauðsynlegar bólusetningar.
Á Islandi er hægt að fá bólsetningar
á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
og almennum heilsugæslustöðvum
sem veita allar nánari upplýsingar.
Á heimasíðu landlæknisembættis-
ins eru líka veitt holl ráð og verðandi
ferðalöngum ráðlagt hvað taka skuli
með í ferðir. Þá er sérstaklega mælt
með því að verðandi ferðalangar
kaupi sér viðunandi ferðatryggingu
því það er Hklega fátt verra en að
sitja fárveikur og fastur á ókunnug-
um stað án nokkurra peninga til að
koma sér heim og án nauðsynlegs að-
gengis að læknisþjónustu.
t.juliusson@vbl.is
LVK4U AD OÓOU SAMBAH
X
HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG GLÆSILEGA
VERSLUN AÐ HLÍÐARSMÁRA 13 í KÓPAVOGI
ALLAR VHS MYNDIR Á KR. 1250.- (hvergi ódýrari)
ÓTRÚLEGT TILBOÐ Á TITRURUM KR. 500.-
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST www.tantra.is
HLÍÐARSMÁRI 13 S. 587 6969 Opið virka daga 12-20
FÁKAFENI 11 S. 588 6969 Laugardaga 12-18