blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaðiö Geimferðum kann að fækka NASA þarf að fá aukafjárveitingu til að halda áfram geimferðaáœtlun sinni. Að öðrum kosti kann mönnuðum geimferðum aðfœkka um helming ogframkvœmd geimrannsóknar- stefnu Bush að tefjast. Mönnuðum geimferðum á vegum NASA mun fækka verulega á næstu árum nema til komi aukafjárveiting frá stjórnvöldum. Mikill halli á geimferðaáætlun bandarísku geimvísindastofnun- arinnar (NASA) kann að leiða til þess að tafir verði á því að George Bush forseti geti hrint í framkvæmd geimrannsóknarstefnu sinni. Stjórn- völd verða að samþykkja að verja milljörðum Bandaríkjadala í mann- aðar geimferðir eða fækka að öðrum kosti fyrirhuguðum geimferðum um helming. Bandaríska dagblaðið The Wash- ington Post greindi frá þessu í gær. Heimildarmenn blaðsins sem fylgj- ast vel með gangi mála í viðræðum NASA og bandarískra stjórnvalda segja að ríkisstjórnin hafi ekki í hyggju að verja meira fé til áætlun- arinnar. Sérfræðingar telja að hugs- anlega sé þörf á meira en 6 milljarða fjárveitingu frá 2006-2010. Hallann má rekja til þess áfalls sem geimferðaáætlunin varð fyrir með hrapi Columbia-flaugarinnar árið 2003 en mikil vinna hefur farið í að bæta öryggi við geimferðir í kjölfar þess og geimskotum hefur fækkað. Geimferðum fækkað Einn valkostur sem hefur verið íhug- aður er að takmarka fjölda geimferða við tvær á ári og draga úr mannafla en Wayne Hale, framkvæmdastjóri geimferðaáætlunarinnar, hefur lýst því yfir að ekki sparist mikið fé með því. Michael D. Griffin, forstjóri NASA, hefur lýst því yfir að það yrði alveg jafndýrt að leggja geimferða- áætlunina á hilluna og að halda henni gangandi. Um þriðjungur fjár- hagsáætlunar NASA fer á ári hverju í geimferðaáætlunina. Fíll varð fyrir lest Áhorfendur fylgjast með þegar fíl er lyft af járnbrautarteinum í útjaðri borgarinnar Guwahati í Assam-hér- aði í norðausturhluta Indlands í gær. Járnbrautarlest ók á fílinn og barst hann rúmlega 1,5 kílómetra með henni. W Cltboð á bifreiðum og tækjum frá Varnarliðinu verður dagana 24. - 28.nóv á www. geymslusvaedid. is Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.geymslusvaedid.is og i sima 565 4599 Qeym&lv&vmðlö ehf Um 80 km löng mengunarbrák barst með Songhua-ánni gegnum borgina Harbin í gær. Mengunar- slys í Harbin Um 8o kílómetra löng brák af eiturefninu benseni barst með Songhua-ánni í gegnum Harbin, eina af stærstu borgum Kína, í gær. Brákin mengaði um leið helstu vatnslind nærri fjögurra milljóna manna. Skrúfað hafði verið fyrir vatnsveitu borgarinnar um 30 klukkustundum áður en brákin barst til borgarinnar og ekki hefur verið tilkynnt um að nokkur maður hafi komist í snertingu við mengunina eða orðið meint af henni. Búist var við að það tæki brákina um 40 tíma að fara í gegnum borgina en ekki er ljóst hver langtímaáhrif hennar verða. Skólar og fýrirtæki voru lokuð í gær og íbúar héldu áfram að birgja sig upp af neysluvatni í flöskum og öðrum vistum. Heilbrigðisyfirvöld hafa beðið íbúa á svæðinu um að athuga hvort þeir verði varir við einkenni bense- neitrunar en í stórum skömmtum getur efnið valdið blóðskorti og öðrum dreyrasjúkdómum sem og skemmdum á lifur og nýrum. Wen Jiabao, forsætisráðherra, hefur gefið út tilskipun um að tryggja skuli nægt framboð af neysluvatni á svæðinu. Zhang Zuoji, ríkisstjóri, hefur skipað sjúkrahúsum að vera búin undir hugsanleg tilfelli eitrunar og lofaði því að hann myndi drekka fyrsta vatnsglasið úr vatnslindum borgarinnar þegar mengunarhættan væri liðin hjá. Áætlað er að um 100 tonn af benseni og skyldum efnum hafi komist í ána eftir að sprenging varð í efna- verksmiðju í nágrannaborg Harbin um síðustu helgi. Fjórðungur Dana býr einn Næstum fjórðungur Dana býr einn samkvæmt nýrri könnun sem Jótlandspósturinn lét gera. Könnunin leiðir í ljós að um 22% Dana á aldrinum 20 til 69 ára, eða um 700.000 manns, búa einir og hefur fjöldi þeirra sem býr einn hækkað um 53% síðan 1980. Könnunin sýnir ennffemur að flestir sem búa einir kjósa fremur að leigja húsnæði en að eiga það. Þá þiggja fleiri einhleypir eftirlaunagreiðslur eða félagslegar bætur af ein- hverju tagi sem virðist benda til þess að félagsleg vandamál og fj ölskylduvandræði haldist oft í hendur. Karlar sem búa einir eru enn sem fyrr fleiri en konur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.