blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 26
26 I HELGIN
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Jólin koma...
Nú þegar aðventan er að ganga t garð eru ýmsir spennandi hlutir í
boðifyrir barnafólk. Það er um aðgera að njóta tímansfyrirjól með
börnunum ognjóta aðventunnar. Hérkoma nokkrar hugmyndir að
skemmtilegum hlutum sem hœgt er að gera um helgina. Nú erujóla-
þorpin að rísa og eitthvað fyrir alla og má þar nefna:
.. Jólaþorpið í Hafnarfirði
Jólaþorpið er nú risið í Hafnarfirði.
Það er frábært fyrir barnafólk að
rölta um í Hafnarfirðinum og
skoða litlu jólahúsin sem risið hafa
í jólaþorpinu á nýuppgerðu Thors-
planinu. Þessa dagana er verið að
skreyta öll húsin og stemmningin
magnast með hverjum deginum. í
dag koma um 700 leikskólabörn í
Jólaþorpið og skreyta jólatrén. í jóla-
þorpinu verður án efa skemmtileg
stemmning og ekki spillir ilmurinn
af greninu og piparkökuilmurinn.
Jólasveinninn og Grýla eru sögð lögð
af stað til byggða og vonast er eftir
)ví að þau mæti á laugardaginn. Jóla-
jorpið opnar klukkan 12:00 og er
opið til 18:00. Klukkan 14:00 verður
kveikt á jólatrénu á Thorsplani og
verður skemmtidagskrá í boði.
...Solla stirða í Ráðhúsi Reykjavíkur
1 Ráðhúsinu verða tónleikar klukkan
þrjú á laugardaginn með lúðrasveit
verkalýðsins. Leikin verða lög ætluð
yngri áhorfendum til dæmis úr
leikritinu Kalli á þakinu, Latabæ,
Disney myndum og þá verða íslensk
ættjarðarlög leikin. Kynnir er engin
önnur en Solla stirða (Linda Ásgeirs-
dóttir). Aðgangur er ókeypis.
...Náttúran skoðuð
Það mun sennilega koma mörgum
á óvart hversu gaman krakkar hafa
af því að skoða sig um og fræðast
í leiðinni. Heimsókn í Náttúru-
gripasafnið er hrein upplifun fyrir
krakka og minningin lifir oft lengi
hjá börnunum og það eru eflaust
margar spurningar sem vakna hjá
þeim um náttúruna. Það er alltaf
nóg að skoða fyrir börn í Náttúru-
gripasafni fslands. Þar geta krakkar
skoðað ýmsa fróðlega hluti, skoðað
skrýtna steina, dýr og plöntur.
Krökkum finnst flestum mjög fróð-
legt og skemmtilegt að fræðast um
náttúruna og á safninu er svo sann-
arlega hægt að skoða margt fróðlegt
og skemmtilegt. Safnið er opið á
laugardögum og sunnudögum frá
klukkan 13:30 til 16:00. Ókeypis er
inn fyrir krakka 17 ára og yngri en
300 krónur fyrir þá sem eldri eru.
.Friður og ró í amstrinu
Þá er alltaf gott að slappa af og mörg
börn hafa gaman af því að heim-
sækja sunnudagaskólana. Flestar
kirkjur bjóða upp á skemmtilegt
barnastarf og má þar nefna Digra-
neskirkju. Þar verður boðið upp
á sunnudagaskóla þar sem Stopp
leikhópurinn flytur leikþáttinn
Kamilla ogþjófurinn eftir Kari Vinje
á sunnudaginn klukkan ellefu.
Ðl HAFNARFI
S. 555 4420
Kveikt á
jólatrénu í
Kringlunni
ásunnu-
daginn
Kveikt verður á jólatrénu í Kringl-
unni klukkan þrjú á sunnudaginn
og mun skólakór Kársness syngja
við það tækifæri ásamt stúlknasveit-
inni Nylon og Heiðu í Unun. Dorit
Moussaieff, forsetafrú, kveikir á
trénu og jólasveinarnir verða á
staðnum. Dorrit mun einnig hefja
pakkajól Kringlunnar og Bylgj-
unnar með því að setja fyrsta pakk-
ann undir tréð. Eins og undanfarin
ár standa Mæðrastyrksnefnd og Fjöl-
skylduhjálp Islands að söfnuninni.
Söfnunin er opin til 21. desember en
fram að þeim tíma getur fólk komið
gjöfum til skila í Kringluna.
Samkvæmt upplýsingum frá Her-
manni Guðmundssyni, markaðs-
stjóra Kringlunnar, var fjölmennt
þegar kveikt var á jólatrénu í fyrra
og fólk farið að safnast saman við
tréð nokkru áður en kveikt var á
því.
Litlir listamenn
Uppboö til
styrktar Mæöra-
styrksnefndar
Á laugardaginn verður uppboð með
myndum eftir börn til styrktar
Mæðrastyrksnefndar haldið
klukkan 17:15 í verslun Yggdrasils,
Skólavörðustíg 16. Leikarinn Örn
Árnason verður uppboðshaldari.
Uppboðið er afbragðs tilefni til að
mæta í jólaskapi með börnin og
leggja um leið góðu málefni lið í
anda jólanna. Boðið verður upp
á léttar veitingar fyrir börn og
fullorðna.
Myndirnar verða síðan seldar á
uppboði til styrktar Mæðrastyrks-
nefndar og var þess farið á leit við
nokkrar verslanir í miðbænum að
þær tækju að sér að sýna myndirnar
í búðargluggum sínum fram að upp-
boðinu. Eftirtaldar verslanir verða
með myndirnar til sýnis fram að
uppboði:
Kaffi Hljómalind - tískuverslunin
Joss - Kós leðurvörur - Yggdrasill
- GK Reykjavík - Sipa - Leikbær
- Jurtaapótek - Húfur sem hlæja
- Rauði kross íslands - Hattabúð
Reykjavíkur - barnafataverslunin
Du pareil au meme - Villtar og vand-
látar - Dressmann - Ecco skóbúðin
- Englabörnin.
Þann 22. október síðastliðinn
fengu börn tækifæri til að styðja gott
máíefni í verslun Yggdrasils, Skóla-
vörðustíg 16. Þá var öllum börnum
boðið að koma og mála myndir með
náttúrulegum litum undir leiðsögn
Helgu Óskarsdóttur frá Waldorfleik-
skólanum Sólstöfum. Europris og
Litir og föndur gáfu rammana. Þátt-
taka var góð og söfnuðust margar
myndir.
Brúðuleikhús með
selnum Snorra
A laugardaginn mun Helga Steffen-
sen frumsýna nýja brúðuleiksýn-
ingu um selinn Snorra. Leikritið er
byggt á samnefndri norskri sögu
sem skrifuð var 1941. Að sögn Helgu
er þetta í fyrsta skiptið sem sagan
er sögð í brúðuleikhúsi. Það eru
Helga Steffensen og Erna Guðmars-
dóttir sem sjá um brúðugerð og Örn
Árnason er leikstjóri. Sýningin
tekur hálfa klukkustund og er fyrir
börn sem eru tveggja ára og eldri.
Sýningin er ferðasýning sem verður
meðal annars sýnd í leikskólum.
Um stjórn á leikbrúðum sér, auk
Helgu, Aldís Davíðsdóttir. Sýningin
verður frumsýnd á laugardaginn í
Gerðubergi og verður einnig sýnd 3.
desember í Gerðubergi. Miðaverð er
600 krónur.