blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaóiö Lög gegn hryðjuverkum hert Innanríkisráðherra Frakklands hefur lagt fram frumvarp til laga gegn hryðjuverkum. Samkvœmt frumvarpinu fœr lögregla víðtœk- ari heimildir til aðfylgjast með borgurum landsins. Gagnrýnendur telja að með frumvarpinu breytist Frakkland í lögregluríki. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, kynnir nýtt frumvarp um varnir gegn hryðjuverkum í franska þinginu. „Svarta ekkjan" sigraði í kappátskeppni: Sporðrenndi kalkúni á 12 mínútum Degi áður en milljónir Banda- ríkjamanna fögnuðu þakkar- gjörðardegi á hefðbundinn hátt með því að snæða kalkún sló kona frá Virginíu heimsmet með því að borða einn slíkan á 12 mínútum. Sonya Thomas, sem er 37 ára og aðeins rúm 47 kíló, skaut sjö fílefldum karlmönnum ref fyrir rass í árlegri kalkúnaátskeppni sem fram fór í New York. Thomas sagði að kalkúnninn hefði verið mjög þurr í munni en hún þakkaði sigurinn því hversu hratt hún hefði kyngt. „Ég reyndi bara að borða hratt,“ sagði hún eftir að hún hafði tekið við sigurlaununum. Thomas sem gengur undir nafninu„Svarta ekkjan“ meðal fólks sem leggur stund á kappát sagði að hún hefði æft sig fyrir keppnina og komið kjálkunum í form með þvf að tyggja tyggigúmmí í gríð og erg. Sigur hennar kom engum á óvart en hún er í öðru sæti á lista yfir fremsta kappátsfólk heims. Hún sagðist þrátt fyrir sigurinn ætla að leggja sér kalkún til munns á þakkar- gjörðardaginn en hún myndi taka sér góðan tíma til þess. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, kynnti á miðvikudag nýtt frumvarp til laga um varnir gegn hryðjuverkum. Hann varaði jafnframt við þeirri hættu sem stæði af árásum alþjóðlegra hryðjuverka- manna sem misnotuðu íslamtrú „á viðbjóðslegan og særandi hátt“ til að réttlæta gerðir sínar. Sarkozy hefur viljað herða lög gegn hryðjuverkum í landinu síðan mannskæðar árásir voru gerðar í London í júlí. Hann og fleiri hátt- settir embættismenn innan franska stjórnkerfisins hafa jafnframt vísað á bug þeim röksemdum að vegna and- stöðu Frakka við innrásina í frak sé minni hætta á að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða í landinu. Samkvæmt frumvarpinu verður hægt að setja upp eftirlitsmynda- vélar í moskum og verslunum auk þess sem hryðjuverkamenn eða sam- verkamenn þeirra mega eiga von á harðari viðurlögum. Ennfremur er gert ráð fyrir auknu eftirliti með ferðum fólks og samskiptum þess til að mynda um síma eða tölvupóst. Þá mun lögregla geta fylgst sérstak- lega með borgurum sem ferðast til ríkja þar sem vitað er að þjálfunar- búðir hryðjuverkahópa sé að finna. Segir borgaraieg réttindi ekki fótum troðin Sarkozy reyndi að fullvissa þing- menn um að með lögunum yrðu borgaraleg réttindi ekki fótum troðin eins og margir óttast. Gagn- rýnendur hafa jafnvel haldið því fram að með lögunum breytist Frakkland í lögregluríki en Sarkozy vísar þeirri gagnrýni á bug. Um- deildustu tillögurnar verður að endurnýja eftir þrjú ár. Þingmenn munu greiða atkvæði um frum- varpið á þriðjudaginn en gert er ráð fyrir að það verði endanlega af- greitt fyrir lok árs. ■ Umsátur í Jenin á Vesturbakkanum: Háttsettur Jihad-foringi handtekinn fsraelskar hersveitir handtóku í gær Iyad Abu el-Rob, foringja Jihad-samtakanna á Vestur- bakkanum, eífir umsátur um dvalarstað hans í Jenin. Rob gaf sig fiam við annan mann effir að hermenn höfðu skotið eld- flaugum á hús sem þeir höíðust við í. Heimildarmaður innan fsraelshers sagði að Rob hefði lagt á ráðin um þrjár sjálfsmorðs- árásir i ísrael, þar á meðal árás í bænum Hadera í síðasta mánuði sem varð sex ísraelsmönnum að bana. Þá hefði tekist að koma í veg fýrir fjórar árásir. f tilkynningu frá hernum var Rob lýst sem háttsettum hryðjuverkamanni Jihad-sam- takanna sem hefði komið út úr húsinu með hvitan fána í hendi. Innandyra fannst mikið af vopnum og skotfærum. Pal- estínsk yfirvöld sögðu að einn Palestínumaður hafi látist og 12 slasast á meðan á umsátrinu stóð. fsraelsher sagði að hermenn hefðu hafið skothríð eftir að vopnaðir menn réðust á þá. Tveir ísraelsmenn særðust í átökunum. (sraelsher handtók háttsettan foringja í Jihad-samtökunum í gær f bænum Jenin á Vesturbakkanum. Spine Support Queen (153x203) var kr. 132.680,- Núkr98.500 JKiiNO Koil i Amerískar heilsudýnur í hæsta gæðaflokki. King Koil hafa fram- leitt hágæða rúm í Bandaríkjunum síðan árið 1898 og framleiða í dag einu dýnurnar sem eru bæði með vottum frá FCER sxsel Alþjóðasamtök kiropraktora Og Good HoUSekeeping Stærstu neytendasamtök í Bandaríkjunum. Sissel heilsukoddar Sissei koödarnir hafa veriö fram- ieiddir stðan 1985. Peirstyðja vel við nöfuðið og korrta þanrtia í veg fyrir láréttan þrysting á háisliðina. Koddarnir veita fullkorninn stuðníng og eru ofnæmis- prófaðir og framleiddír é umhverfis-vænan hátt. Tvegaja ára ábyrgð. Sissel Orginai koddinn er á frábæru verði hjá okkur. Verð aðeins kr. 5.900,- Frábær jólagjöf Tilboðsdagar 25% afsiáttur af öllum amerískum heilsudýnum Dýnur frá kr. 38.500,- w Gleymum ekki í leit okkar að góðu lífi að það eru Iffsgæði að fá góðan svefn. Rekkjan Skipholt 35 • Sími 588 1955 ^ www.rekkjan.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.