blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 19

blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 19
blaðið FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 VIDTALI 19 blaðiðu. Tindur > ( h ■ U I I t i Simar: 660 4753 • 462 4250 www.tindur.is • tindur@tindur.is 510-3700 510-3799 Auglýsingadeild 510-3744 Smáauglýsingar 510-3737 Guðnl Ágústsson, ráðherra: „Fyrstu minningar minar um Rúnar Júliusson eru 40 ára gamiar. Þá var ég stadd- ur á Laugarvatni. Þar var Landsmót ungmennafélaga. Séníið úr Keflavfk er að koma á lokuöum bíl inn á Landsmótið. I iögreglufylgd. Glæsilegur maður, Rúnar Júliusson. Likur Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Fullur af orku stóðhestsins stlgur hann út. Það líður yfir ungu stúlkurnar sem snerta hann. Ég stend þarna 16 ára unglingur og horfi á þetta undur og er það ógleymanlegt. Ég geri mér grein fyrir því að ég hef hitt séníið úr Keflavík sem er að breyta íslandi. Sem hefur tekiö að sér að flytja hljóminn, röddlna, heim. Sem gerir kröfur um frelsi æskunnar. Bitl- arnir, Rolling Stones, Hljómar. Afl til æskunnar, til að gera uppreisn á heimilum. Það eru fjörutíu ár síðan ég upplifði þetta vor á Laugarvatni. Engin stúlka lelt á mig. Allar elskuðu Rúnar Júlíusson." Hemmi Gunn: „Við Rúnar vorum and- stæðingar inni á vellinum en samherjar á skemmti- stöðum". öllu þessu ferli sé hvetjandi og sé að reyna að vekja von hjá þessu fólki en það er bara svo erfitt að ná árangri þegar það vantar alla umræðu. Þetta er náttúrulega bæði þreytandi og krefjandi en líka mjög gefandi. Hver einasta manneskja sem snýr við blað- inu gerir þetta allt þess virði því hver maður er fjársjóður." Hver verður að draga sína ályktun af ástandinu Árni gefur ekki mikið fyrir niður- stöður skýrslu félagsmálaráðuneyt- isins sem var birt í síðustu viku og sagði meðal annars að það væru 4-5 konur heimilislausar í Reykjavík. „Skýrslan er auðvitað gefin út með ákveðnum gefnum forsendum. Ef viðkomandi á lögheimili þá er hann ekki heimilislaus. En skýrslan er bara þannig og það er ekkert meira um hana að segja nema það að hún gefur ekki rétta mynd af ástandinu. Svona skýrslur eru raunverulega bara spurning um hvaða forsendur þú gefur þér við gerð þeirra, hvaða tölur þú vilt fá út. Hvort viltu sjá raunveruleikann eða það sem hentar þér best?“ Árni segist þó ekki efast um að póli- tískur vilji sé til staðar til að taka á vandamálinu. „Maður ætlar það að pólitíkusarnir vilji vel. Að þeir vilji gera eitthvað í þessum málum. En reyndin er samt sem áður sú að við stöndum frammi fyrir þessum vanda núna og það hefur ekki nægi- lega mikið verið gert. Hvaða ályktun á maður að draga af því? Það verður bara hver og einn að draga sína eigin ályktun af því.“ t.juliusson@vbl.is Fyrsti kossinn margar brýr að baki sér og það þarf gríðarlegan stuðning til að koma til baka. Til að öðlast von að nýju.“ Vantar sárlega úrræði fyrir heimilislausa Það sem Árni segir að fyrst og fremst vanti auk langtíma meðferða sé að fylgja þeim nægilega vel eftir þannig að sá árangur náist sem vonast er eftir. „Það vantar áfanga- heimili fyrir eftirfylgn- ina þannig að þetta fólk fari ekki aftur í sama farið. Þegar engin eftirmeðferð er í boði þá kemur það einfaldlega aftur út og lendir í sama fari. Við erum öll þrælar okkar félagslegu aðstæðna, alveg sama hvort við .............. erum forsætisráðherra eða utangarðsmaður. Við leitum alltaf aftur í það umhverfi sem við þekkjum best. Þess vegna þarf fyrst og fremst að brjóta upp það mynstur hjá þessu fólki ef á að bjarga því.“ Hann segist einnig vilja sjá fleiri næturgistirými fyrir fólk sem er á götunni og til að vera inni á daginn. „Það vantar gistirými þar sem fólki er hleypt inn þótt að það sé í neyslu og það vantar einhvern samastað fyrir þetta fólk á daginn. Einhvern stað með stólum, borðum og ösku- bökkum þar sem það fær bara að sitji inni og drekka.“ Hver maður er fjársjóður Árni segir að bróðurparturinn af því fólki sem er að starfa með þessum olnbogabörnum samfélagsins sé fólk sem hafi sjálft verið i þessum að- stæðum á einhverjum tímapunkti. „Það er betra að þannig fólk sé í þessu vegna þess að það þekkir þetta sjálft. Við getum litið á þetta svona svipað og með sorgina. Þú getur lesið þér til um allt sem tengist sorg og skilið hana upp að vissu marki, en þú skilur hana ekki fullkomlega fyrr en þú missir einhvern nákominn þér. Venjulegur maður skilur kannski ekki fávisku utangarðsmannsins þegar hann fer að drekka. Ég aftur á móti geri það vegna þess að ég veit hvað er í gangi og dæmi hann ekki. Ég veit hvað hann er að ganga í gegnum. Það er erfitt að útskýra fyrir blindum manni bláan lit því fólk veit ekki raunverulega hvernig það er að missa vonina fyrr en það hefur sjálft lent i því. Það er rosalega rSvona skýrslur eru raunverulega bara spurning um hvaða forsendur þú gefur þér við gerð þeirra, hvaða tölurþú vilt fá út. Hvort viltu sjá raunveruleikann eða það sem hentarþér best?" erfitt að hjálpa svoleiðis fólki,“ segir Árni og bendir á að það hætti engin að drekka nema að hann sjálfur raunverulega vilji það. Þá skipti engu máli hvort viðkomandi er hvít- flibbi eða utangarðsmaður. Þegar Árni er spurður hvort það sé ekki lýjandi að standa í svona endalausri baráttu af einskærum manneskjukærleika en mæta samt endalausum hindrunum þá játar hann því. „Þetta er bú- inn að vera rosalega ’** hrjóstrugur akur að sá í fyrir starfsfólk líkna- stofnana eins og mig. Uppskeran er ekki sam- kvæmt sáningunni, ein- mitt vegna þess að það vantar fleiri úrræði. Það vantar ekki að starfs- fólk þessara stofnana í „Rokkllfíð á Islandi er bara tilbrigði við Rúnar Júl“. Bjartmar Guðlaugsson „SKYLDULESNING!“ Hemmi Gunn Höfundur erÁsgeir Tómasson, fréttamaður. Meðal þeirra setn segjafrá: Þorsteinn Eggertsson \ f Magnús KJartansson 'f MajpjúSTorfasonj vj Gerður G. Bjarklind Hermann Gunnarsson Ámuridi Ámundason Björgvin Halldorssoiy/ Bjartmar Guðlaugsson Óttar^Eelix Hauksson Valgcrður SÝeírisdóttir , Rúnar Júliusson stendur á sextugu. Hann gekk í bítlahljómsveitina Hljóma úr Keflavík 18 ára, var kominn á topp- inn nokkrum vikum síðar og hefur verið þar síðan. Við upphaf tónlistar- ferilsins stóð knattspyrnuferillinn sömuleiðis í blóma. f bókinni HERRA ROKK lítur Rúnar yfir tónlistarferilinn til þessa dags, rifjar upp gömul afrek af knattspyrnu- vellinum og segir frá öðrum baráttu- málum sínum svo sem því að halda lífi eftir að í Ijós kom fyrir nokkrum árum að hann hafði verið með hjarta- galla frá fæðingu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.