blaðið

Ulloq

blaðið - 25.11.2005, Qupperneq 20

blaðið - 25.11.2005, Qupperneq 20
20 I TÍSKA FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaðiö Einfaldur kjóll getur verið glœsilegur jólaklœðnaður Fylgihlutir gefa lit og liíga upp á Flestar konur byrja snemma að leita að jóiafötunum enda viljum við allar líta sem best út. Ekki hafa allir tök á að fjárfesta í nýjum fötum fyrir hver jól enda eru fjárútlát mikil í janúar. Það er samt yfirleitt hægt að finna eitthvað í fataskápnum sem má endurnýta, jafnvel þó það þurfi að kosta eitthvað örlítið. Margar konur eiga fallegan svartan kjól en það er hægt að hressa upp á kjólinn með ýmsu. Hann hættir þá að vera gamli, svarti kjóllinn og verður að nýjum kjól sem hægt er að dást að. Hér eru nokkrar hugmyndir en notið óhikað ímyndunaraflið. svanhvit@vbl.is Hér er failegur, hefð- bundinn svartur kjóll. Flestar konur eiga ein- hvers konar svartan kjól heima hjá sér sem, með litlum tilkostnaði, má breyta í ffnasta ballkjól. Belti skiptir kjólnum í tvennt og getur því haft mikið að segja. Til eru alls konar belti sem tilnefna í raun stflinn sem leitað er eftir. Röff belti, töff belti, ffnt belti eða glæsilegt belti. Beltið hér að ofan er fínt og snyrtilegt fyrir glamúrgellur. Skartgripir gera ótrúlega mikið fyrir klæðnað kvenna og lífgar óneitanlega upp á svartan kjól. Með skartgripum er líka hægt að velja stílinn, glæsilegan, fág- aðan eða svalan. Hálsfesti þessi er svöl en falleg f túrkfsbláum lit sem á einkar vel við svarta litinn. Rétt eins og með beltið þá getur einfalt sjal eða slæða breytt útliti kjólsins á undraverðan hátt. Augu áhorfandans beinast strax að efri part þess sem kjólinn klæðist og svarti kjóllinn verður lítið áberandi með glæsilega slæðu. Hér má sjá gylltan fallegan trefil sem setur tóninn fyrir kvöldið. Veski er sá fylgihlutur sem vekur jafnan athygli enda hefur það mikið að segja. Glæsilegt veski lyftir hefðbundnum svört- um kjól á annað plan og þá er jafnvel hægt að hafa förðun í sama lit og veskið. Hér gefur að Ifta litríkt en snyrtilegt veski sem gefur svörtum kjól líf. qt! Skórnir skipta grfðarlega miklu máli fyrir heildarútlitið. Skórnir geta því bæði ýtt undir glæsileika kjólsins eða dregið úr honum. Hér eru einstaklega fallegir bleik- ir skór en bleikt passar mjög vel við svart.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.