blaðið - 28.11.2005, Síða 16
16 I SNYRTIVÖRUR
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Púðurmeik
með satínáferð
Púðurmeikið frá Chanel er sérstaklega gott og hentar öllum húðgerðum. Þetta er þurrt púðurmeik
með satínáferð en eiginleikar þess gera það að verkum að skuggar, fínar línur og fleira sem konur
vilja hylja verður ekki eins sýnilegt. Púðrið hylur mjög vel án þess þó að það liggi ofan á húðinni
og verði of áberandi. Flestar konur þekkja það eflaust að meik og púður geta orðið of áberandi á
húðinni og minna einna helst á grímu. Með þessari vöru er hægt að ná fram náttúrulegri og fallegri
förðun án þess að skil myndist en áferðin er alveg eðlileg. Púðurmeik sem allar konur, ungar sem
aldnar, ættu að prófa enda góð vara sem gerir áferð húðarinnar afar fallega. Hentar bæði hversdags
og við ýmis fínni tilefni.
Pœgilegur
augnhára-
maskari
trá CEE
Auðveldur í notkun og endist vel
í stað þess að lita augabrúnirnar með augn-
skugga getur verið afar þægilegt að nota þartil-
gerðan maskara. CEE býður upp á augnháralit í
formi maskara en liturinn endist vel og hentar
öllum. Vel er hægt að stjórna hversu dökkar
augabrúnirnar verða með því að setja minna
eða meira í burstann, eftir því sem við á. Með
maskaranum er einnig auðvelt að móta auga-
brúnirnar á fallegan og eðlilegan hátt.
Afar skemmtileg nýjung í línunni frá CEE.
Farðu á www.bladid.net
og losaðu þig vlð gamla dótið eða hringdu í
Smáauglýsingasíma Blaðsins 510-3737
Smáauglýsingar Blaðsins losa þig
við gamla bílinn hratt og örugglega, á aðeins
Djúphreinsandi og
endurnýjandi maski
Frábœr varafrá Elizabeth Arden
Allar konur þurfa að huga að um-
hirðu húðarinnar enda mikilvægt
að húðin sé í góðu lagi þegar notuð
eru hin ýmsu efni við förðun. Það er
ekki nóg að farða sig flott og reyna
eftir fremsta megni að líta vel út
- húðin skiptir öllu máli og nauðsyn-
legt að sinna henni sem skildi.
Hægt er að fá mjög góðan djúp-
hreinsandi og endurnýjandi maska
frá Elizabeth Arden, en maski þessi
er með mjög sérstöku sniði. Olíkt
flestum öðrum möskum er hann
penslaður á og tekinn af í heilu
lagi. Hann myndar lag á húðinni
og er síðan bara tekinn mjúklega af
og ekkert þarf að notast við þvotta-
poka, bómull eða annað til þess að
ná honum af. Dauðar húðfrumur og
önnur óhreinindi losna undan yfir-
borði húðarinnar og andlitið verður
ferskara og mýkra
auk þess sem
raki húðar-
innar verður
meiri. Sér-
staklega
góður maski
fyrir allar húð-
gerðir sérstak-
lega á tíma sem
þessum þegar
tekið er að kólna
og húðin á auð-
veldara með að
þorna. Maskinn
fæst í öllum
helstu snyrtivöru-
verslunum á góðu
verði.
Vaxaðu auga-
brúnirnar heima
Nýtt vaxfrá Sally Hansen
Flestar konur kannast eflaust við
leiðinleg og óvelkomin lítil hár sem
taka sér bólstað í kringum auga-
brúnirnar, munninn eða önnur
svæði. Þar sem plokkun dugar oft
ansi skammt getur verið sniðugt að
vaxa þessi svæði og vera þannig laus
við alla umhirðu í nokkrar vikur.
Sally Hansen hefur nú sett skemmti-
lega vöru á markað - vax sem notað
er heima fyrir og hentar öllum húð-
gerðum. Það eina sem þú þarft að
gera er að hita vaxið í örbylgjuofni
í nokkrar mínútur og bera síðan á
þau svæði sem þarf að laga. Það er
svo alveg óþarfi að notast við papp-
írsstrimla. Efnið festist á þann hátt
að auðvelt er að rífa það af eftir ör-
fáar sekúndur - með öllum þeim
hárum sem undir eru. Þess má geta
að ekki er um mikinn sársauka að
ræða eins og oft þegar vax er notað.
Varan er afar auðveld í notkun
og hefur varanleg áhrif. í pakkning-
unni er einnig krem sem sett er á
húðina til þess að losna við ertingu
og roða, auk þess sem lítill plokkari
fylgir fyrir þau hár sem ekki nást
með.