blaðið - 28.11.2005, Page 22
30 I ÍPRÓTTIR
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 blaðið
A&nars
vottað réttingaverkstæði
Bflasprautun
• Réttingar
• Framrúðuskipti
ðtvegmn bflaleigubfla
KJörord oliltar er „bgnKiiiuka"
Ferguson
slærásögur
um brott-
hvarf
Knattspyrnustjóri Manchester
United, Sir Alex Ferguson,
segist verða við stjórnvölinn á
Old TraíFord næstu leiktíð og
jafnvel eiga eftir þrjú ár í viðbót.
Hinn aldni kappi segist enn
gera langtíma áætlanir sem
miða að því að hann stjórni
liðinu áfram. Ferguson, sem er
64 ára, mun næsta nóvember
ná 20 ára starfsaldri sem knatt-
spyrnustjóri United. Háværar
sögusagnir hafa verið uppi um
að hann verði látinn taka poka
sinn eftir þessa leiktíð vegna
slaks gengis liðsins það sem
af er þessarar leiktíðar. Margir
stuðningsmenn liðsins eru
orðnir óþolinmóðir og vilja
sjá breytingar á Old Trafford.
Stórmeistari
ísúmóglímu
Stórmeistarinn í súmóglímu,
Asashoryu frá Mongólíu,
brosti þegar hann tók á móti
forsætisráðherra-bikarnum
frá japanska forsætisráðherr-
anum, Junichiro Koizumi, á
fimmtán daga stórmeistara-
mótinu í Fukuoka í Japan.
Asashoryu fór í sögubækurnar
þegar hann varð fyrsti í sögu
súmóglímunnar til að vinna
sjö keisarabikara í röð.
Handbolti:
Öruggur sigur íslendinga
Hnefaleikar:
RickyHatton
með enn eitt
rothöggið
Breski boxarinn Ricky „Hitt-
man“ Hatton mætti Carlos
Maussa í bardaga um IBF og
WBA léttveltivigtartitilinn
síðastliðið laugardagskvöld
í Sheffield í Englandi.
Það var mikil pressa á Hatton
þetta kvöld og í salnum voru
meðal annars
þeir Prince Naseem Hamed
og Marco Antonio Barrera.
Þessi pressa virtist hafa áhrif
á Hatton og varð til þess hann
mætti kærulaus til leiks og
gerði mörg mistök í tilraun
sinni til þess að vinna bardag-
ann hratt og örugglega.
Þetta varð til þess að hann
fékk á sig nokkur þung högg
í upphafi bardagans. Hann
fékk skurð fyrir ofan vinstra
auga eftir fyrstu lotu og annan
skurð yfir hægra auga í þeirri
þriðju. Þrátt fyrir það vann
Hatton hverja einustu lotu bar-
dagans og rotaði svo Maussa
með vinstri krók í níundu
lotu. Hatton, sem er skærasta
stjarna Breta í boxheiminum
um þessar mundir, á að baki
ótrúlegan feril. Hann hefur 40
sinnum mætt í hringinn, hefur
aldrei tapað bardaga og hafa 30
þeirra endað með rothöggi.
BMii/Steinar Hugi
Ein heitasta stjarnan í boxheiminum
í dag vann bardaga helgarinnar
örugglega.
íslenska landsliðið í handbolta vann
öruggan sigur á Norðmönnum í
þriðja og síðasta leik þessara þjóða
um helgina. Sigurinn var aldrei í
hættu hjá íslensku strákunum. Þeir
mættu mjög grimmir til leiks og
náðu strax fjögurra marka forystu
6-2. Þessi forysta hélst óbreytt og
staðan í hálfleik var 17-13, íslend-
ingum í vil. Strákarnir mættu síðan
enn grimmari f síðari hálfleikinn og
juku forystuna jafnt og þétt - staðan
um miðjan síðari hálfleik var 25-16.
En þá var eins og íslensku strákarnir
væru orðnir öruggir með sigurinn
og slökuðu aðeins á en lokatölur í
þessum leik urðu 32-26, íslandi i vil.
Sáttur við niðurstöðuna
Þegar Blaðið hafði samband við
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfara
í gær, sagðist hann vera ákaflega
sáttur við útkomu leikjanna þriggja.
„Markvarslan í bessum leik var frá-
bær og Birkir Ivar sýnir okkur að
hann er alltaf að verða betri og betri.
Hann er markmaður númer eitt hjá
íslenska landsliðinu. Hins vegar var
markvarslan slök í leiknum á laugar-
daginn, við fengum mjög fá hraða-
upphlaup og þar liggur munurinn
milli leikja. I nútíma handbolta þarf
lið að vera með 18-20 varða bolta í
leik,“ sagði Viggó.
Snorri Steinn Guðjónsson var
markahæstur í leiknum með 10
mörk og Guðjón Valur Sigurðsson
og Einar Hólmgeirsson með 6 mörk
hvor.
Fyrri leikirnir
Islenska landsliðið vann yfirburða
sigur í fyrsta leiknum sem leikinn
var á föstudaginn í Vestmanna-
eyjum. Þar var Alexander Pettersson
markahæstur íslenska liðsins með 7
mörk og þeir Róbert Gunnarsson
og Guðjón Valur Sigurðsson með 6
mörk hvor. Liðin mættust svo öðru
sinni á laugardaginn í Mosfellsbæ
þar sem íslenska landsliðið missti
unninn leik niður í jafntefli á síð-
ustu mínútunum. Leikurinn endaði
33-33 þar sem Snorri Steinn Guðjóns-
son var markahæstur með 10 mörk
og Einar Hólmgeirsson með 7 mörk.
Enski boltinn:
Bræðraslagur í
enska boltanum
Guðjón Valur Sigurðsson skorar eitt af sex mörkum sínum í leiknum í gær.
Fjórir leikir fóru fram í enska bolt-
anum í gær. Sá leikur sem vakti
mesta athygli var viðureign Manc-
hester United og West Ham United.
Þar tókust á bræðurnir Rio Ferdin-
and og Anton Ferdinand. Það voru
gestirnir sem komust yfir strax á
fyrstu mínútu leiksins með fallegu
marki frá Marlon Harewood. Það
voru svo þeir Wayne Rooney og
Jhon O'shea sem tryggðu gestunum
stigin þrjú með mörkum sínum
og eru United komnir upp í annað
sætið í ensku deildinni
Everton tók á móti Graeme Sou-
ness og lærisveinum hans í Newc-
astle. Eina mark leiksins skoraði
Yobo með skalla eftir hornspyrnu
á fyrstu mínútu síðari hálfleiks
og tryggði þar með Everton fjórða
sigur sinn á leiktíðinni. Fullham
vann Bolton með tveimur mörkum
gegn einu þar sem Fullham skoraði
öll þrjú mörkin í leiknum. Brian
Mcbride skoraði tvö mörk Fullham
snemma í fyrri hálfleik og Sylvain
Legwinski skoraði sjálfsmark á ní-
tugustu mínútu. Middlesbrough
fékk nýliðana í West Brom i heim-
sókn. Það var Ástralinn Mark Vid-
uka sem koma heimamönnum yfir
eftir ellefu mínútna leik en Nathan
Ellington jafnaði á sautjándu mín-
útu. Það var svo Kanu sem kom
gestunum yfir á fimmtugustu og
sjöttu mínútu en Yakubu jafnaði
úr víti þegar tuttugu og fimm mín-
útur voru eftir og urðu það lokatölur
leiksins.
lc