blaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 24
32 I AFPREYING
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 blaðiö
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar & Su Doku Praut
Lausn á fyrri Su Doku
Lausn á siðusta Samurai Su Doku púsli
Su Doku þrautin snýst um
aö raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu
tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni
innan hvers níu reita
fylkis. Unnt er að leysa
þrautina út frá þeim tölum,
sem upp eru gefnar.
3
8 1 5
6 4 3 9
1 2 4 6
5 7 3 8 1
2 1 5 4
9 3 8 2
9 7 4
3
5 6 4 7 8 3 9 2 1
3 9 2 1 6 5 7 8 4
7 8 1 9 2 4 3 5 6
1 4 3 8 9 6 5 7 2
6 7 5 3 1 2 4 9 8
9 2 8 4 5 7 6 1 3
2 3 6 5 7 8 1 4 9
4 5 9 2 3 1 8 6 7
8 1 7 6 4 9 2 3 5
Spilari syrgð-
ur í sýndar-
jarðarför
Fjöldi fólks kom saman í sýnd-
arjarðarför ungrar stúlku sem
lést vegna ofspilunar tölvuleiks
á Netinu. Talið er að stúlkan
hafi ekki sofið í rúma viku með-
an hún spilaði leikinn World of
Warcraft og það hafi leitt hana
til dauða. TÖlvuleikjaspilarar
sem könnuðust við stúlkuna
sem Snowly, persónu í netút-
gáfu leiksins, komu saman í
dómkirkjunni í leiknum og vott-
uðu henni virðingu sína með
því að krjúpa í eina mínútu.
Stafræn sjáJf spilaranna mátti
því sjá í röðum þar sem þau
lutu höfði í minningu samherja.
Netvinir Snowly segja hana
hafa verið eina af iðnustu
leikmönnunum og að hún hafi
verið með einna besta mæt-
ingu af öllum sem spila hann.
Nokkrum dögum áður en hún
lést á Snowly að hafa kvartað
yfir þreytu á sama tíma og hún
bjó sig undir sérstaklega erfitt
verkefni í leiknum. Nokkrum
vikum síðar lést annar spilari
við svipaðar aðstæður.
Dauðsfóllin eru rakin til
mikillar aukningar í netspilun
tölvuleikja í Asíu. Þau hafa
- vel skiljanlega - vakið fólk til
umhugsunar þar sem dæmi
eru um spilara sem leika sér
í þrjá til fjóra daga án afláts.
World of Warcraft er einn af svo-
kölluðum netheimum, þar sem
leikmenn eru hluti af stórum
sýndarveruleikaheimi. Saman
byggja spilarar samfélög og
hjálpast að við að leysa verkefni.
Um fjórar milljónir manna taka
virkan þátt í slíkum leikjum.
Sex hönnunarnemar á iðnhönnunarbraut í Konunglega |
listaháskólanum i Lundúnum haía skapað hugmyndahús- m
gögn (svipað og hugmyndabílar) eftir þeim stellingum 0
sem fólk fer í þegar það leikur sér í PSP leikjavélinni. Hús-
gögnin eru sérstaklega ætluð til þess að vera i þeim þegar
PSPerínotkun.
aö hægt væri aö sjá á skjá vélarinnar. Þrátt fyrir að
menn sæju ekki hver annan héldu þeir áfram að kasta
óknyttum hver í annan, hæðast og tjá sig eins og áður.
SíÖar í ferlinu tóku hönnuðirnir eftir hópmyndun fólks-
ins þar sem það tók á sig líkamsmyndir sem minntu á
styttur.
Þykir hönnuðunum ávöxtur erfiðisins vera lýsandi
fyrir PSP tölvurnar sjálfar. Þær eru hvort tveggja einka-
mál hvers og eins sem og opinberar þar sem þær ýta
undir sameiginlega upplifun fólks en krefjast um leið
einangrunar.
Sýning á verkunum verður 2. til 10. desember í Royal
College of Art í Lundúnum.
íu ao gera ser grem tyrir stellmgum og hreyímgum
fólks sem leikur sér í PSP fylgdust hönnuðurnir með spil-
urum í garðveislu. Þar tóku þeir eftir þvi hvernig fólk not-
aði jakka sina til að hylja sig meðan sólin var of björt til
Evrópumeistari
í Pac-Man
Fazli Kandemir frá Hollandi hlaut
nýlega þann heiður að verða fyrsti
Evrópumeistari sögunnar í Pac-Man
tölvuleiknum. Hann kláraði með
54.450 stig. Spilað var í fimm mínút-
ur með útsláttarfyrirkomulagi og sá
sem var stigahæstur hélt áfram. Sig-
urlaunin voru ekki af verri endan-
um, sérstök 25 ára afmælisútgáfa af
upphaflega spilakassanum gerð af
upphafsmanni leiksins og forstjóra
Namco, Masaji Okubo.
Bardagagoðsögnin Bruce Lee hefði orðið 65 ára i gær væri hann enn á lífi. I tilefni afmælisins ákvað Bruce Lee klúbburinn í Hong Kong
að halda veislu til mánaðamóta og einnig afhjúpa þessa glæsilegu styttu af hetjunni.