blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005 blaöiö
SUSHI
TRHIÍl
Kreditkort hf.
Ixtnkalla um 200 kort
OPNAR 1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Nokkrir íslendingar urðufyrir barðinu á kortamisnotkun í Bandaríkjunum. Tjón ekki talið mikið en
fleiri kort innkölluð af öryggisástœðum.
Öryrkjabandalagið:
Málið þing-
fest í dag
Mál Öryrkjabandalags íslands
(Öí) á hendur ríkisstjórn
Islands verður þingfest fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur
í dag. Upphaf málsins má
rekja til samkomulags milli
ÖI og ríkisstjórnarinnar árið
2003 þar sem samið var um
hækkun grunnlífeyris. ÖI segir
ríkisstjórnina ekki hafa staðið
við samkomulagið að fullu og
að enn vanti fimm hundruð
millljónir upp á. Þegar ljóst var
að ekki yrði reiknað með þess-
ari upphæð í fjárlögum fyrir
árið 2005 ákvað Öfað stefna
stjórnvöldum um samningsrof.
Viðskipti:
100 sagt upp
Um 100 starfsmönnum Bakka-
vör Group i Bretlandi verður
sagt upp störfum á næstunni
samkvæmt yfirlýsingu frá
félaginu í gær. Uppsagnirnar
eru hluti af aðgerðum til
að samþætta og hagræða í
rekstri Bakkavör Group eftir
yfirtöku félagsins á Geest Ltd.
fyrr á þessu ári. I yfirlýsing-
unni kemur fram að um sé
að ræða 100 starfsmenn sem
vinna á skrifstofu félagsins
í Lincolnshire en einnig
er unnið að hagræðingu í
verksmiðjum félagsins.
Listaháskóli íslands:
Nýr rekstrar-
samningur
undirritaður
I gær var undirritaður rekstr-
arsamningur fyrir Listaháskól-
ann sem gildir til fjögurra
ára. Með samningnum eru
skólanum tryggðar 500 millj-
ónir króna á ári til reksturs-
ins. Það voru þau Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra, og Hjálmar H.
Ragnarsson, rektor skólans,
sem undirrituðu samninginn.
Kreditkort hf. innkallaði í gær
um 200 mastergreiðslukort vegna
gruns um að óprúttnir náungar
hefðu náð að afrita segulrönd
þeirra og komist yfir PIN-númer.
Aðeins kort sem notuð voru í hrað-
bönkum í Bandaríkjunum á vissu
tímabili voru innkölluð en að
sögn Kreditkort hf. er ekki talið
að margir íslendingar hafi orðið
fyrir tjóni að völdum þessa.
Nota sérstaka iesara
Forsaga málsins er sú að nokkrir
einstaklingar urðu varir við óeðli-
legar úttektir af kortunum sínum og
gerðu athugasemdir við það. I kjöl-
farið hóf svikadeild Kreditkorta hf.
rannsókn á málinu sem leiddi í Ijós
staðfestan grun um að segulrendur
kortanna hefðu verið afritaðar og
PIN-númerum stolið. Frekari rann-
sóknir beindu augum manna að
ákveðnum hraðbönkum í Bandaríkj-
unum og því ákveðið að innkalla öll
þau kort sem höfðu farið í gegnum
þábanka ávissu tímabili. I tilvikum
sem þessum er talið að þjófar noti
sérstaka lesara sem festur er á hrað-
banka til að afrita segulrönd. Þá er
einnig þekkt að þjófar noti mynda-
vélar sem komið er fyrir ofan lykla-
borð til að ná í PIN-númer en yfir-
leitt stoppa þjófar stutt við hvern
banka og oft ekki lengur en klukku-
stund í senn.
Ekki víst að kort séu í hættu
Að sögn Bergþóru Ketilsdóttur, for-
stöðumanns upplýsingatæknisviðs
Kredikort hf, þá er innköllunin
fyrst og fremst gerð í öryggisskyni
en ekki er talið að eigendur þessara
200 korta hafi orðið fyrir tjóni. Hún
segir ómögulegt að koma í veg fyrir
fyrstu tjón en ef grunur leikur á að
fleiri kort geti verið í hættu sé starfs-
reglan sú að innkalla kort. „Allir
korthafar sem lentu í tjóni höfðu
notað kortin sín í þessum hrað-
bönkum. Það sem við erum að gera
af öryggisástæðum er að finna þá
sem hafa farið í sömu hraðbanka og
loka þeim kortum. Það er ekkert víst
að þau kort séu í hættu.“ Bergþóra
segir að tjón þeirra sem urðu fyrir
barðinu á þjófunum ekki hafa verið
mikið og fylgst sé með mögulegum
kortasvindlum og þjófnaði og inn-
köllun af þessu tagi sé ekki óeðlileg
þó fjöldinn sé meiri núna en hún á
að venjast. „Þetta er dálítill fjöldi
korta en það kemur fyrir að við inn-
köllum kort þegar við teljum mögu-
lega hættu vera fyrir hendi. Okkur
finnst það vera góð vinnuregla og
viðskiptavinir eru oftast ánægðir
með það.“ ■
Þjófar nota oft hraðbanka til
að stela PIN-númerum og afrita
segulrendur.
Reykjanesbraut:
Alvarlegum slysum fækkar
Tvöföldun Reykjanesbrautar hefur hingað til gefið góða raun og ekki meira um hraðakst-
ur en áður að sögn lögreglu.
Alvarlegum umferðarslysum hefur
stórfækkað á Reykjanesbrautinni
eftir tvöföldun vegarkaflans frá
Hvassahrauni að Vogaafleggjara.
Frá formlegri opnun þann 27. júní á
síðsta ári til dagsins í dag hafa engin
banaslys orðið og aðeins einu sinni
voru meiðsli talin alvarleg.
Ekki meira um hraðakstur
SamkvæmtupplýsingumfráUmferð-
arstofu létust átta manns í fimm um-
ferðarslysum á þessum vegarkafla
frá árinu 1998 til ársins 2004. Árið
2000 létust fjórir í tveimur slysum,
árið 2001 lést einn, árið 2003 létust
tveir og í fyrra lést einn. Frá tvö-
földun vegarkaflans hafa orðið 13
umferðarslys þar sem meiðsli voru
í eitt skipti talin alvarleg. I tvö skipti
var um smávægileg meiðsli að ræða
og í tíu umferðaróhöppum sluppu
allir án líkamlegs tjóns. Á síðast-
liðnum átta árum hefur það þrisvar
komið fyrir að heilt ár hefur liðið án
þess að banaslys hefur átt sér stað og
aðeins tvisvar á síðastliðnum fimm
árum. Árið 1998,1999, 2002 og 2005.
Þess ber þó að geta að árið 1999 lét-
ust tveir í tveimur alvarlegum um-
ferðarslysum á Reykjanesbrautinni
sem áttu sér stað fyrir utan vegar-
kaflann sem nú hefur verið tvöfald-
aður. Lengi var óttast að breikkun
vegarkaflans mundi leiða til þess
að aukning yrði á hraðakstri og al-
varlegri slysum. Samkvæmt lögregl-
unni í Keflavík hafa þær spár ekki
ræst og hraðakstur ekki almennari
nú en fyrir tvöföldun. Lögreglan
bendir þó á að nú þurfi tvær lög-
reglubifreiðar til að vakta brautina
í stað einnar áður þ.e. einn bíl fyrir
hvora akstursátt. ■
Akureyri:
Sjúkraliðar
kjósa um verk-
fallsboðun
Sjúkraliðar sem starfa hjá sveit-
arfélögum kjósa um hvort heim-
ila skuli boðun verkfalls. Vilji
mun vera fyrir verkfallsboðun
verði ekki samið við sjúkraliða
á næstu dögum, en samningar
hafa verið lausir í eitt ár.
Formaður deildar sjúkraliða
á Norðurlandi eystra gerir
fastlega ráð fyrir að verk-
fallsheimild verði samþykkt,
enda hafi samningaviðræður
gengið afar hægt. Verkfall
hefst 19. desember, hafi ekki
verið samið fyrir þann tíma.
Ríkið hefur þegar samið
við sjúkraliða. Sjúkraliðarnir
eru samtals 170, langflestir
hjá Akureyrarbæ, en sveitar-
félögin sem um ræðir reka
sjúkrastofnanir fýrir ríkið.
Aðalfundur deildar sjúkraliða
á Norðurlandi eystra skoraði
á dögunum á samninganefnd
sveitarfélaganna að semja
hið snarasta og benti á að
Akureyrarbær hefði ekki greitt
út orlofsuppbót í sumar.
Áhrifamikil og sönn
Ingólfur Margeirsson fékk
heilablóðfall fyrir fáum árum og
fjallar í þessari bók um baráttu
sína við að öðlast bata á nýjan
leik.
Afmörkuð stund er einstök
lesning og mikil uppörvun
öllum þeim sem lent hafa í
alvarlegum skakkaföllum í
lífinu.
Lifandi og sönn frásögn
eins og Ingólfi Margeirssyni
er einum lagið.
SKRUDDA
fyjarslóð 9-101 Reyfcjavik
$. SS2 8866 - skrudda&'skrudda-ls
www.skrudda.is
O Heiðskfrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjaö
Rigning, lítilsháttar /// Rigning 9 9 Súld
Snjókoma
*
Sjj Slydda \JJ Snjóél ^jj
Skúr
Amsterdam 05
Barcelona 11
Berlín 03
Chicago 02
Frankfurt 03
Hamborg 02
Helsinki 01
Kaupmannahöfn 03
London 02
Madrid 06
Mallorka 14
Montreal 12
NewYork 15
Orlando 20
Osló -03
París 03
Stokkhólmur -01
Þórshöfn -02
Vín 01
Algarve 11
Dublin 05
Glasgow 04
9 9
1° ’
*o
/ /
'9s>
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum fró Veöurstofu íslands