blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 29

blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 29
blaðið MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 DAGSKRÁI37 ■ Spurning dagsins Hver heldur á sjónvarpsfjarstýringunni heima hjá þér? ÚTÁFUGLEÐI Guðný Björg Björnsdóttir Ég held sjálfá henni. Hugrún Malmquist Jónssdóttir Við höldum bæði á fjarstýringunni, ég og kærastinn minn. Helga S. Magnúsdóttir Maðurinn minn sér umfjarstýringuna. Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir Égsjálfafþvíað ég býein. Sigurbjörn Jakobsson Það er ég sem held á henni. EITTHVAÐ FYRIR. .œvintýrafíkla Sjónvarpið - H.C. Andersen - Saga af skáldi - kl. 21.10 Ný leikin dönsk heimildamynd í tveimur P hlutum um skáldið Hans ChristianAnd- ersen. Danir hafa haldið upp á það með ýmsum hætti að í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu skáldsins. Leikstjóri er Piv Bernth og meðal leikenda eru Lars Mikkelsen, Christiane Bjorg Nielsen, Lars Sidenius, Lars Lippert, Morten Staugaard og Gisela Stille. Seinni hlutinn verður sýndur að viku jiðinni. .yfirnáttúrulega Sirkus - HEX - kl. 22.00 Yfirnáttúrulegir þættir sem gerast 1 skóla einum í Englandi. Cassie er feimin ung stelpa sem uppgötvar einn daginn að hún hefur hættu lega krafta sem hafa gengið í gegnum ætthenn ar, kynslóð eftir kynslóð. . stœrðfrœðinga Stöð 2 - Numbers - kl. 21:15 Nýir bandarískir sakamálaþættir um stærðfræðisnilling sem vinnur með bróður sínum, sem er yfirmað- ur hjá FBI, við að leysa snúin saka- mál. Bönnuð börnum. IJ-g.« ason Sölvi er fréttamaður á Nfs fréttastofunni. Er vinnan í sjónvarpi öðruvísi en þú hefðir búist við? „Ég var ekki búinn að gera mér miklar væntingar en það má segja að þetta sé aðeins afslappaðara en ég hélt." Horfirðu á þættina sem þú hefur verið í? „Ég gerði það fyrst þegar ég var í beinni út- sendingu í morgunfréttunum til að skoða hvað ég gæti gert betur. Upp á síðkastið hef ég þó ekki gert mikið af þv(' Geturðu lýst dæmigerðum degi hjá Sölva? „Ég byrja daginn snemma og vakna á mjög ókristilegum tíma eða fyrir kiukkan fimm. Ég vinn til klukkan þrjú og eftir það geri ég eitthvað tilfallandi, fer á kaffihús, kíki í ræktina eða eitt- hvað slíkt." Hvað er uppáhalds sjón- varpsefnið þitt? „Það er annars vegar fréttir og fréttatengt efni og hins vegar íþróttir og þá sérstaklega fótbolti." Ef þú mættir velja síðustu spurn- inguna hver myndi hún vera? Hver er í síman- um?" „Það ert þú." Hvernig hefurðu það í dag? „Ég hef það Ijómandi gott." Hvenær byrjaðirðu að vinna í fjölmiðl- um? „Ég byrjaði fyrir rúmu ári síðan. Þá varég í sumarafleysingum í kvöldfréttunum. Þá fór ég í netfréttir og um slðustu áramót byrjaði ég í morgunfréttunum." Langaði þig að verða sjónvarpsmaður þegar þú varst lítill? „Nei, þetta var ekkert sem hvarflaði að mér fyrr en ég kláraði sálfræðinám árið 2003. Þá ætlaði ég að fara í framhaldsnám en frestaði því um eitt ár og skellti mér í stað- inn í hagnýta fjölmiðlun. Það var svo fyrir tilviljun að ég fór að vinna í fjölmiðlum." Hvernig finnst þér að vinna í sjónvarpi? „Mér finnst það mjög gaman. Þetta er lifandi miðill og sérstaklega fréttastofan þar sem hægt er að fara með fréttirnar beint í loftið. Á móti eru ókostirnir við það kannski að oft getur maður ekki unnið hlutina eins vel og maðurvildi." SOLKU í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikudaginn 30. nóvember, kl. 20 Höfundar og þýðendur SÖLKU munu lesa upp úr nýjum verkum sínum. Ingibjörg Hjartardóttir, Guðlaugur Arason, Þóra Jónsdóttir, Kristian Guttesen, Hildur Hákonardóttir, Þórhallur Heimisson ofl. Auk upplesturs mun Þórunn Clausen ieikkona flytja eintal hinnar tragísku brúðar úr leikriti Benónýs Ægissonar, Drauganetið. Kynnir: Hlín Agnarsdóttir ALLIR VELKOMNIR MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR Nú er jólastemmning á Strikinu Skemmtisögur á hverju götuhorni guðlaugur arason SfrikiS glitrar í Ijósahafi - „jolefrokost" eins og hann gerist bestur - köflótt teppi og glögg í Tívolí: Gamla góóa Kaupmannahöfn er bók sem lifgar sannarlega upp á jólastemmninguna í gömlu höfuborginni okkar! Tónlistarmaðurinn Morrissey hefur nýlega gefið út nýja plötu sem hann segir vera nýtt upphaf og ekki eiga neitt sameigin- legt með sínum fyrri verkum. Hann var söngvari hljómsveitarinnar Smiths en hefur sungið einn síðustu ár. Hann lofar framleiðandann Tony Visconti sem vann með honum að plötunni og segir hann hafa haft mikil áhrif á efni hennar. „Lögin eru mjög sterk. Við erum mjög samrýmdir og erum allir góðir vinir sem vinnum að plötunni. Hann var mjög jákvæður og sagði að fæðing hverrar plötu væri hamingjusömustu stundir ævi sinnar."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.