blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 18
26 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Tíu hlutir sem þú þarft
að vita um flensufaraldur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur tekið saman lista í tilefni mikillar umrœðu umflensu undanfarnar
vikur og mánuði.
Samkvæmt samþykkt ríkisstjórnar fslands skal fylgjast náiö meö þróun áhættumats og
viðbúnaðar í öörum löndum, hjá Evrópusambandinu og hjá WHO og aðlaga viðbúnaðar-
áætlanir hér á landi eftir atvikum í kjölfarið.
1 Flensufaraldur er öðru-
vísi en fuglaflensa
Orðið fuglaflensa á við um stóran
hóp mismunandi inflúensuveira sem
herjar að mestu leyti á fugla. f undan-
tekningartilfellum geta þessar fugla-
veirur sýkt aðrar dýrategundir, þar
á meðal svín og menn. Hins vegar
hefur mikill meirihluti fuglaflensu-
veira engin áhrif á menn. Flensu-
faraldur verður þegar nýtt afbrigði
flensu kemur upp sem hefur ekki
áður herjað á menn.
Veiran H5N1, sem herjað hefur á
fugla, er afbrigði sem mögulega gæti
stökkbreyst og smitast yfir í menn.
Þegar stökkbreytingin verður er
veiran ekki lengur fuglaveira heldur
inflúensuveira í mönnum. Flensufar-
aldrar verða vegna nýrra inflúensu-
veira sem hafa stökkbreysts yfir í
menn.
2. Flensufaraldrar koma reglulega
Flensufaraldrar verða sjaldan en
reglulega. Á síðustu öld urðu þeir
þrír talsins: Spænska veikin árið 1918,
Asíuveikin árið 1957 og Hong Kong
flensan 1968. Þegar spænska veikin
reið yfir er áætlað að um 40 til 50
milljónir manna hafi látist. Litið er
á þann faraldur, sem telst einstakur,
sem einn þann banvænasta í mann-
kynssögunni. Síðari faraldrar voru
mun vægari, um tvær milljónir létust
1957 og ein milljón manna 1968.
Faraldur verður þegar ný inflú-
ensuveira brýst fram og dreifir sér
jafnauðveldlega og hefðbundin in-
flúensa - með hósta og hnerra. Þar
sem veiran er ný hefur ónæmiskerfi
mannsins ekki nein ráð gegn henni.
Afleiðing þessa er að fólk sem sýkist
af faraldursflensu verður veikara en
þegar hefðbundin flensa ríður yfir.
3. Líkur eru á nýjum
faraldri bráðlega
Heilsusérfræðingar hafa fylgst gaum-
gæfilega með nýju og slæmu inflú-
ensuveirunni H5N1 í bráðum átta
ár. Þetta afbrigði sýkti fyrst mann-
eskju í Hong Kong árið 1997 og í
kjölfarið veiktust 18 manns, af þeim
létust sex. Frá miðju ári 2003 hefur
veiran valdið stærstu og óblíðustu
sjúkdómum í hænsnum sem menn
muna eftir. I desember það ár fund-
ust sýktir fuglar eftir að menn komu
fram með veiruna.
Nú hafa fleiri en 100 tilfelli um
H5N1 í mönnum verið staðfest af
rannsóknarstofum í fjórum löndum
Asíu (Kambódíu, Indónesíu, Tælandi
og Víetnam). Meira en helmingur
þessa fólks hefur látið lífið. I flestum
tilfellanna var um heilbrigð börn eða
ungmenni að ræða. Sem betur fer er
stökkið úr fuglum í menn erfitt veir-
unni og hún smitast ekki í miklum
mæli á milli manna. Ef hún gerði það
hins vegar, og yrði þá jafnsmitandi
og venjuleg inflúensa, gæti faraldur
hafist.
4. Öll lönd yrðu fyrir henni
Um leið og sjúkdómurinn smitast auð-
veldlega á milli manna er hnattræn
dreifing óhjákvæmileg. Sum lönd
gætu, með viðbrögðum á borð við
lokun landamæra og ferðatakmörk-
unum, seinkað komu veirunnar en
ólíklegt er að hægt sé að stöðva hana.
Faraldrar fyrri alda komust hringinn
í kringum heiminn á sex til níu mán-
uðum þrátt fyrir að þá væri farið í
millilandaferðalög með skipum um
höfin. Miðað við hraða og fjölda flug-
farþega í heiminum nú til dags á far-
aldurinn eftir að dreifast hraðar en
áður og hugsanlega ná til allra heims-
álfa á innan við þremur mánuðum.
5. Víðtæk veikindi verða
Þar sem fæstir verða ónæmir fyrir
flensufaraldrinum munu sýkingar
og veikindi líklegast verða meiri en
þegar hefðbundin og árstíðabundin
flensa gengur yfir. Áætlanir gera
ráð fyrir að í næsta faraldri muni
hátt hlutfall manna þurfa á lækn-
isaðstoð að halda. Fáar þjóðir búa
yfir mannskap, aðstöðu, búnaði og
sjúkrarúmum til að taka við þeim
fjölda sem gæti veikst.
6. Lyfjabirgðir verða ónógar
Birgðir af bólu- og mótefnum verða
ónógar í öllum löndum þegar veiran
breiðist út og í marga mánuði í kjöl-
farið. Þetta eru tvær mikilvægustu
aðgerðirnar sem læknisfræðin býður
upp á til að minnka vanlíðan og
fækka dauðsföllum í faraldri. Ónógar
birgðir eru sérstakt áhyggjuefni þar
sem litið er á bóluefni sem fremstu
vörn gegn veikjum. Eins og málin
standa í dag mun fjöldi þróunarlanda
vera úrræðalaus. Engin leið verður
fyrir þau að komast í bóluefni meðan
á faraldrinum stendur.
7. Fjölmargir munu falla
1 sögu heimsfaraldra hefur fjöldi lát-
inna verið mjög breytilegur. Hversu
margir látast fer aðallega eftir fjórum
þáttum: Hversu margir veikjast, sýk-
ingarmætti veirunnar, hversu ber-
skjaldaðir sjúklingar eru og hversu
vel forvarnarstarf gengur. Rétta spá
um dánartíðni er ekki hægt að birta
áður en faraldursveiran kemur fram
og byrjar að dreifa sér svo allar áætl-
aðar tölur eru með öllu getgátur.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur haldið aftur af sér í spám sem
gera ráð fyrir að 2 til 7,4 milljónir
manna muni deyja í faraldrinum.
Matið er byggt á hinum tiltölulega
væga faraldri árið 1957 og þykir raun-
hæft í skipulagningu forvarna. Ef gert
er ráð fyrir annarri spænsku veiki,
þ.e. að veiran sé af svipuðum styrk-
leika, verður tala látinna mun hærri.
Eins og áður sagði er spænska veikin
þó talin heyra til undantekninga.
8. Efnahags- og samfélags-
leg áhrif verða gríðarleg
Búast má við háu hlutfalli veikra
samfélagsþegna með tilheyrandi
veikindadögum frá vinnu og verður
það til þess að efnahagsleg og samfé-
lagsleg áhrif faraldursins verða gif-
urleg. Eldri faraldrar hafa dreift sér
um heiminn í tveimur og stundum
þremur bylgjum. Þannig er ekki bú-
ist við að allir heimshlutar eða öll
héruð landa verði fyrir faraldri sam-
tímis. Truflun á samfélaginu og efna-
hagnum getur því orðið tímabundin
en meiri en ella vegna samþættingar
verslunar og viðskipta. Einnig munu
tapaðar vinnustundir trufla mikið
hjá nauðsynlegum þjónustuaðilum,
s.s. orkuveitum, samgöngu- og
samskiptafélögum.
9. Öll lönd verða að vera tilbúin
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur gefið út margar tilskipanir um
hvernig ráðlagt er að bregðast við
faraldursógninni. Viðbrögðin eru
ætluð til að gera lagskipta varnar-
áætlun sem tekur mark á því hversu
flókið ástand getur myndast. Mælt
er með mismunandi viðbrögðum
við mismunandi aðstæðum: Eins og
ástandið er i dag, þegar veiran stökk-
breytist, þegar faraldur breiðist út
og þegar veiran hefur dreifst út um
allan heim.
10. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin mun tilkynna
heiminum um þróun
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
vinnur náið með heilbrigðisráðu-
neytum og ýmsum opinberum heilsu-
samtökum í eftirliti með afbrigðum
inflúensu í heiminum. Nákvæmt eft-
irlitskerfi sem getur numið inflúensu-
faraldur áður en hann verður er nauð-
synlegt svo verjast megi honum.
Sex mismunandi varnarstig hafa
verið skilgreind svo auðvelda megi
viðbúnað og viðbrögð fyrir ríkis-
stjórnir, iðnað og Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunina. Sem stendur er
varnarstig þrjú í heiminum, veira
sem er áður óþekkt í mönnum veldur
veikindu, en hún dreifist ekki auð-
veldlega á milli manna.
Frá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni
Taktu forskot á betri heilsu á árinu 2006
Skráðu þig núna
og fáðu desember
FRÍAN
Fyrir allar konur
Byrjaðu núna og gerðu árið 2006
að besta heilsuárinu hingað til!
Skráðu þig hjá Curves, þar sem
þú nærð árangri í 30 mínútna
æfingakerfinu okkar
Sítni: 566-6161
Bajarlind 12
201 Kopavogur
Cutvefr
Ihc povver to amaxe yoursdf
Tilboðið gildir á 12 mánaða kortum greiða þarf þjónustugjöld