blaðið - 29.11.2005, Blaðsíða 10
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005 blaöiö
10 I ERLENDAR
Réttarhöldum yfir Saddam frestað
Réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrvemndi forseta íraks, hefur veriðfrestað til 5.
desember á meðan sakborningar útvega sér nýja verjendur. Átta menn voru handteknir
vegnagruns um að ætla að ráða dómara í málinu afdögum.
Réttarhöld yfir Saddam Hussein og
sjö samverkamönnum hans var í
gær frestað til 5. desember til þess
að hægt væri að finna nýja verj-
endur sakborninga í stað tveggja
sem myrtir voru og eins sem flúði
land. Réttarhöldin hófust á ný í
sérstökum dómsal á hinu svokall-
aða Græna svæði í Bagdad í gær.
Öryggisgæsla hefur verið aukin í
kjölfar morðanna og líflátshótana
sem öðrum verjendum hafa bor-
ist. Saddam og samverkamönnum
hans er gefið að sök að bera ábyrgð
á fjöldamorðum á meira en 140 sjíta-
múslimum í bænum Dujail árið
1982. Fjöldamorðin voru framin í
kjölfar misheppnaðrar tilraunar
til að ráða forsetann fyrrverandi af
dögum. Saddam lýsti yfir sakleysi
sínu þegar kærur voru lagðar fram
fyrir um fimm vikum.
Ramsey Clark, fyrrverandi dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna, var
meðal þeirra sem sátu í verjenda-
stúkunni í gær en talið er að hann
og Najeeb al-Nauimi, fyrrverandi
dómsmálaráðherra Qatar, taki
sæti verjendanna tveggja sem
ráðnir voru af dögum. Clark hefur
lýst því yfir að hann vilji ganga úr
skugga um að alþjóðalög og -reglur
séu virtar við réttarhöldin yfir
Saddam.
Áform um að myrða dómara
Um helgina handtókíraska lögreglan
átta súnníaraba vegna gruns um
að þeir hefðu haft í hyggju að ráða
dómara við dómstólinn af dögum.
Anwar Qadir, lögregluforingi, segir
að á mönnunum hafi fundist skrif-
aðar leiðbeiningar frá Izzat Ibrahim
al-Douri, fyrrverandi háttsettum
aðstoðarmanni Saddams, um að
myrða Raed Juhi, dómara sem undir-
bjó málið gegn Saddam. Al-Douri er
háttsettasti meðlimur ríkisstjórnar
Saddams sem enn gengur laus og er
talið að hann sé táknrænn leiðtogi
stuðningsmanna hans sem berjast
gegn bandarískum hersveitum og
hinni nýju ríkisstjórn íraks. ■
Vestrœn ríki standa ekki við skuldbindingar sínar:
Aðeins helmingur
fjárins skilar sér
Fangelsisvist
framlengd
Herforingjastjórnin í Myanmar
hefur framlengt stofufangelsisvist
Aung San Suu Kyi, leiðtoga Lýðræð-
isfýlkingarinnar, um sex mánuði.
Talsmaður fylkingarinnar sagði að
vonir hefðu glæðst um að hún kunni
að öðlast frelsi fyrr en ráð var fyrir
gert. Hann sagði ennfremur að um
svipað leyti og Suu Kyi verði látin
laus sé gert ráð fyrir að viðræðum
um nýja stjórnarskrá landsins ljúki.
Aung San Suu Kyi hefur verið
haldið í stofufangelsi síðan í maí
2003 nánast án nokkurra tengsla
við umheiminn. Stofufangelsisvist
hennar var framlengd um 12 mán-
uði fyrir ári síðan.
Hernaðaryfirvöld munu hefja við-
ræðurnar á ný í næstu viku og telja
sumir að þau muni ekki sleppa Suu
Kyi fyrr en þeim verði lokið. Lýðræð-
isfylkingin hefur neitað að taka þátt
í viðræðunum og fer fram á að Suu
Kyi verði fyrst sleppt sem og öðrum
pólitískum föngum.
Aung San Suu Kyi hlaut friðar-
verðlaun Nóbels árið 1991 ári eftir
Stjórnarskrárbreyt-
ingar samþykktar
að flokkur hennar vann stórsigur
í kosningum í Búrma. Herforingja-
stjórnin tók ekkert mark á úrslit-
unum og hélt áfram um stjórnar-
taumana í landinu. Suu Kyi hefur
eytt um áratug í fangelsi eða stofu-
fangelsi síðan 1990. ■
Alnæmisfaraldurinn í Afríku gæti
versnað enn frekar á næsta ári ef
vestrænar þjóðir standa ekki við
fjárhagsskuldbindingar sínar að
mati Stephen Lewis, sérstaks full-
trúa Sameinuðu þjóðanna. Lewis
sagði ennfremur að ef ríkin standa
ekki við skuldbindingar sínar muni
það bitna á forvarna- og umönnun-
aráætlunum samtakanna í álfunni.
Lewis benti á að borist hefðu 3,6
milljarðar Bandaríkjadala (um 216
milljarðar íslenskra króna) í alþjóð-
legan sjóð sem ætlað væri að nota í
baráttunni gegn alnæmi, berklum
og malaríu. Það er aðeins um helm-
ingur þess fjár sem hafði verið lofað
til þessara verkefna á árunum 2006
- 2007. „Það þarf að auka gífurlega
þrýsting á G8-rikin (8 helstu iðnríki
heims) til að útvega þá per.inga sem
þau hafa lofað,“ sagði Lewis.
Faraldurinn hvergi jafnskæður
Hvergi er alnæmisfaraldurinn jafn-
skæður og í Afríku þar sem talið er
að um 26 milljónir manna séu smit-
aðir af HlV-veirunni sem veldur
alnæmi. Þar af eru um fjórar millj-
ónir sem þurfa á brýnni meðferð að
halda en aðeins tíu prósent þeirra
hafa aðgang að slíkri meðferð.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHÓ) baðst í gær afsökunar á því
að geta ekki náð því markmiði sínu
Talið er að um 26 milljónir manna
séu smitaðir af HlV-veirunni
sem veldur alnæmi í Afríku.
um að útvega þremur milljónum
manna í þróunarlöndum alnæmis-
lyf fyrir árslok 2005. Dr. Jim Yong
Kim, yfirmaður alnæmisdeildar
WHO, viðurkenndi að stofnunin
hefði ekki brugðist nógu skjótt við
til að ná þeim markmiðum sem hún
hefði sett sér. ■
Armenar samþykktu með yfirgnæf-
andi meirihluta að dregið skuli úr
völdum forseta landsins í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um helgina. Þegar
nær öll atkvæði höfðu verið talin
höfðu 93,3% lýst yfir stuðningi við
tillöguna en aðeins 5,3% voru henni
mótfallnir.
Þrátt fyrir að flestir séu fylgjandi
stjórnarskrárbreytingunum er óvíst
hvort þeim verður hrint í fram-
kvæmd þar sem stjórnarandstaðan
hvatti til að atkvæðagreiðslan yrði
hunsuð þar sem hún telur ríkis-
stjórnina ólögmæta.
2,3 milljónir voru á kjörskrá og
voru kjósendur beðnir um að sam-
þykkja eða hafna breytingatillögum
sem munu ennfremur hafa í för með
sér að þingið fái frekari völd, sjálf-
stæði dómstóla eykst og banni við
tvöföldum ríkisborgararétti verður
aflétt.
Sérfræðingar frá Evrópuráðinu
tóku þátt í að gera stjórnarskrár-
drögin og hvöttu þeir kjósendur til
að samþykkja þau. ■
Búningur Sadd-
ams á uppboði
Uppboðshús í Bandaríkjunum
hefur boðið einn af einkenn-
isbúningum Saddam Hussein,
fyrrum Iraksforseta, til kaups
á Netinu. Byrjunarboð fyrir
hinn ólífugræna búning er
5.000 Bandaríkjadalir (um
300.000 íslenskar krónur) en
vonast er til að mun hærra
verð fáist fyrir hann. Uppboðs-
haldarinn segir að aðeins einu
sinni áður hafi einkennisbún-
ingur Hussein ratað á uppboð
hjá sér og hann hafi selst á
meira en 20.000 dali (um 1,2
milljónir íslenskra króna).
Samkvæmt reglum bandaríska
hersins í írak er hermönnum
óheimilt að hafa með sér hvers
kyns muni eða minjagripi frá
landinu nema í undantekn-
ingartilfellum. Uppboðshúsið
hefur lýst því yfir að hluti af
andvirðibúningsins muni
renna til góðgerðarmála.
Uppboðinu lýkur 1. des-
ember og í gær höföu þrjú
boð borist í gallann góða.
Rafik al-Hariri, fyrrverandi
forsetisráðherra Libanons
Þvingaður
til að bera
ljúgvitni
Sýrlenskur maður sem
segist hafa unnið með
leyniþjónustum Sýrlands og
Líbanons segir að líbanskir
embættismenn hafi þvingað
sig til að bera ljúgvitni fyrir
rannsóknarnefnd Samein-
uðu þjóðanna á morðinu á
Rafik al-Hariri, fyrrverandi
forsætisráðherra Líbanons. í
þeim hópi var sonur Hariris.
Maðurinn, sem heitir Hosam
Taher Hosam, sagði að hann
heföi verið beittur pyntingum,
hótunum og mútum til að
fá hann til að bera ljúgvitni
fyrir Detlev Mehlis, formanni
sérstakrar rannsóknarnefndar
Sameinuðu þjóðanna.
Hosam lýsti þessu yfir í
sjónvarpsþætti á sunnudag
eftir að sýrlensk yfirvöld
samþykktu að fimm sýr-
lenskir embættismenn fengju
að fara til Vínarborgar til
yfirheyrslu í tengslum við
rannsókn á morðinu.
Fólk festist í
skíðalyftu
Skíðalyfta á skíðasvæðinu
við Louise-vatn í Kanada
bilaði á sunnudag með
þeim afleiðingum að um 65
manns sátu fastir í fáeinar
klukkustundir í myrkri og
kulda. Þegar umsjónarmenn
svæðisins gátu ekki komið
lyftunni í gang á ný sendu þeir
björgunarsveitir á staðinn til
að bjarga fólkinu með þar til
gerðum útbúnaði. Björgunar-
mönnum tókst að koma öllum
skiðamönnunum til jarðar og
varð engum þeirra meint af.